Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 2. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 292. tölublað 107. árgangur
ATVINNU-
BLAÐ MORG-
UNBLAÐSINS
BRETAR
GANGA AÐ
KJÖRBORÐINU
FIÐLULEIKARI FRAM-
KVÆMDASTJÓRI
SINFÓNÍUNNAR
KOSIÐ Í DAG 40 LÁRA SÓLEY 72FINNA VINNU
Rarik fékk aðstoð slökkviliðsins á Sauðárkróki við að afísa
rafspennana í aðveitustöð sinni með heitu vatni.
Rafmagn fór af á Sauðárkróki og víðar í Skagafirði í óveðr-
inu í fyrradag vegna bilunar í landskerfinu. Varaaflsvélar
voru gangsettar og rafmagn skammtað til notenda. Mjólkur-
samlag KS gat haldið öllum kælum í gangi með varaafli.
Ljósmynd/Birgir Bragason
Rafspennar
afísaðir með
heitu vatni
Giljagaur kemur í kvöld
12 dagartil jóla
jolamjolk.is
Ragnhildur Þrastardóttir
Hjörtur J. Guðmundsson
Guðni Einarsson
Áhrifin sem veðurofsi þriðjudags
hafði á rafmagn í landinu undirstrika
mikilvægi þess að flutnings- og
dreifikerfi raforku sé eflt á lands-
vísu. Þetta segir Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, sem tekur þó
fram að veðrið hafi verið óvenjulegt.
Rafmagn sló út víða um land á
þriðjudag og miðvikudag, sérstak-
lega á landinu norðanverðu. Engar
rafmagnstruflanir urðu á höfuðborg-
arsvæðinu. Fjarskiptasamband
rofnaði víða um land, aðallega vegna
rafmagnsleysis. „Það er auðvitað al-
gjörlega augljóst að raforku- og fjar-
skiptakerfi snýst um þjóðaröryggi,“
segir Þórdís og bætir við að umbæt-
ur á flutnings- og dreifikerfinu séu
væntanlegar.
Ófullnægjandi innviðir
„Það er deginum ljósara eftir
þetta gjörningaveður sem gengið
hefur yfir að það vantar mjög mikið
upp á það að innviðir raforkukerf-
isins séu í lagi. Það hlýtur að vera
forgangsverkefni stjórnvalda, eftir
að farið verður að kortleggja þær af-
leiðingar og það tjón sem þetta veður
hefur valdið, að hlutast til um að
gerðar verði ráðstafanir til þess að
byggja upp raforkuinnviðina. Það
vantar mikið upp á að þeir séu í lagi,“
sagði Þórólfur Gíslason, kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Skagfirðinga, í
samtali við mbl.is. Hann sagði að öll
vinnsla í frystihúsi, sláturhúsi,
mjólkursamlagi og steinullarverk-
smiðju hefði stöðvast vegna raf-
magnsleysisins.
„Þetta var ekta fárviðri og meira
en það,“ sagði Árni S. Þórarinsson,
bóndi á Hofi í Svarfaðardal, síðdegis
í gær. „Það er ekki gott að vera kúa-
bóndi núna. Það er búið að vera raf-
magnslaust síðan kl. ellefu í gær-
morgun. Það er allt rafmagnslaust á
Dalvík og hér í Svarfaðardal.“
Árni er með rafknúið rörmjalta-
kerfi til að mjólka um þrjátíu kýr.
„Þær eru ómjólkaðar. Við reyndum
aðeins að handmjólka þær en það
þýðir bara ekkert að handmjólka.
Kýrnar eru ekki vanar því og svo er
allt í kolsvartamyrkri. Þær verða
hálfhvekktar á því að komið sé með
ljós í fjósið.“
Snýst um þjóðaröryggi
Iðnaðar- og nýsköpunarráðherra segir mikilvægt að efla raforku- og fjarskipta-
kerfi á landsvísu Rafmagnsleysið hefur víða komið illa niður á atvinnurekstri
MÓveðrið »4 & 6 og mbl.is