Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
VIGUR Ullarvettlingar Kr. 2.990
VIGUR Ullarhúfa með dúsk Kr. 3.990.-
VOGAR Húfa Kr. 990.-
GRÍMSEY E-Tip hanskar Kr. 2.99
VIÐEY E-Tip hanskar Kr. 3.300.-
0.-
icewear.is
.-
Hlýjar
jólagjafir
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Moccamaster kaffivélar – margir litir
Verð 35.900 kr.
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Þetta er bókin sem ég vildi að ég
hefði átt þegar ég var yngri og kunni
lítið sem ekkert fyrir mér í eldhús-
inu,“ segir Frikki um bókina en bók-
inn er sneisafull af girnilegum upp-
skriftum sem eiga það sammerkt að
vera bæði bragðgóðar og einfaldar.
Frikki segir að hugmyndin að
bókin hafi kviknað yfir léttri máltíð
með góðum vinum. „Okkur datt í
hug að það væri gaman að gefa út
einfalda og aðgengilega mat-
reiðslubók sem innihéldi einfaldar
en bragðgóðar uppskriftir. En það
sem gerir bókina finnst mér samt
vera allar viðbótarupplýsingarnar.
Bæði þær sem fylgja uppskriftunum
og líka þessar grunnupplýsingar
sem við förum yfir á léttan og
skemmtilegan máta í byrjun bók-
arinnar.“
Engar afsakanir lengur
„Bókin er ætluð öllum byrjendum
í eldhúsinu og þeim sem hafa reynt
að byrja en gefist upp. Ég segi alltaf
að þetta sé bókin sem ég hefði viljað
eiga þegar ég kom heim í hádeginu
sem unglingur og líka þegar ég flutti
að heiman.
Svo er ég líka að vona að fólk sem
er í sambandi með einhverjum sem
er meistari í afsökunum í eldhúsinu,
gefi maka sínum bókina. Þar með
hverfa allar afsakanir á einu bretti
og makinn breytist í hreinræktaðan
meistara í eldhúsinu.“
Hvað finnst þér skemmtilegast að
elda?
„Mér finnst alveg rosalega gaman
og mikil stemning í að leika mér í
pítsugerð. Skemmtilegast er á sumr-
in að bjóða fólki heim á pallinn og
dæla út pítsu á eftir pítsu þar sem
maður prófar hinar og þessar sam-
setningar. Ég á líka svona lítinn eld-
ofn, það gefur alltaf nokkur auka
stemningsstig! Svo er uppáhalds-
maturinn spaghetti carbonara - það
klikkar aldrei.“
Hvað er nauðsynlegt að eiga alltaf
í ísskápnum?
„Ég myndi segja egg. Hvort sem
maður vill sjóða, steikja, hræra eða
gera ommelettu, nota þau í bakstur,
carbonara eða hvað sem er. Egg
koma sér ótrúlega oft vel.“
Bókin sem ég hefði viljað eiga
Út er komin bókin Léttir réttir með Frikka Dór sem er, eins og nafnið
gefur til kynna, matreiðslubók eftir einn ástsælasta tónlistarmann
þjóðarinnar. Hann vendir hér kvæði sínu í kross og kennir byrjendum
í eldhúsinu öll helstu handtökin eins og honum einum er lagið.
Morgunblaðið/Eggert
Einföld og æðisleg Bókin ætti að vera skyldueign allra þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref í eldhúsinu.
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Bókin ber titilinn Ég elska þig
PIZZA og þykir mikill hvalreki fyr-
ir gourmet-gæðinga enda er mikill
áhugi hérlendis á pítsugerð og
rjúka eldofnar og steypujárns-
pönnur út sem aldrei fyrr. Það er
því ljóst að bókin er skyldueign í
hvert eldhús enda er það nánast
Eldhús 101 að kunna að baka al-
mennilega pítsu.
Höfundar bókarinnar eru þeir
Haukur Már Gestsson og Brynjar
Guðjónsson sem eiga heiðurinn af
pítsunum á Flatey. Ferðalag þeirra
um lendur súrdeigsbaksturs og
pítsugerðar reyndist mun meiri og
ítarlegri skóli en þá hafði grunað og
má segja að bókin sé glósubókin
þeirra þar sem allar mikilvægustu
upplýsingarnar er að finna.
Þeir félagar segja að bókin sé í
senn kennslubók, sjálfshjálparrit og
uppskriftabók í einum pakka.
Markmiðið sé að ná góðum tökum á
þeirri ævafornu matargerðarlist að
búa til gott deig og þar af leiðandi
gott brauð og pítsur, úr engu nema
hveiti, vatni og smá salti – ásamt
smá þolinmæði.
Bókin sé fyrir alla þá sem vilji
gera ekta pítsu og súrdeigsbrauð
frá grunni og til baksturs í ofninum
heima. Hún ætti að nýtast bæði
byrjendum sem og laghentum
heimabökurum sem vilja þróa að-
ferðir sínar enn betur. Súrdeig sé
miklu meðfærilegra en margan
gruni og um leið og þú ert kominn
upp á lag með það mun lífið snögg-
breytast til hins betra.
Bókin skiptist í tvo hluta. Sá fyrri
fjallar um súrdeigsbrauð og sá
seinni er helgaður hinni háheilögu
pítsugerð þar sem meðal annars er
farið gaumgæfilega yfir það hvernig
á að búa til ekta handverkspítsu
eins og voru gerðar í Napólí á Ítalíu
á 19. öld. Farið er yfir allt sem þú
þarft að kunna og vita til að geta
titlað þig heimaskólagenginn pítsu-
gerðarmeistara og gott betur.
Alvöru pítsur Bókin kennir lesandanum hvernig á að gera alvöru pítsur.
Biblía pítsu-
áhugamannsins
Mörgum þykja Flateyjar-pítsur þær allra bestu hér
á landi og nú ber svo við að mennirnir á bak við
Flatey hafa ákveðið að ljóstra upp öllum leynd-
armálum sínum og kenna fólki hvernig á að baka
ekta handverkspítsu frá Napólí og ómótstæðileg
súrdeigsbrauð í eldhúsinu heima.
Jólagjöf matgæðingsins Ljóst er
að bókin er mikill happafengur
fyrir áhugafólk um pítsugerð.