Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Margoft hefur verið bent á þann
möguleika að hafa flugvöllinn áfram
í Vatnsmýri og lengja austur-
vestur-braut hans á landfyllingu út í
Skerjafjörð. Suðurgata færi í göng
undir brautina. Yrði þetta niður-
staðan væri nýr flugvöllur í Hvassa-
hrauni óþarfur. En ljóst er að þessi
framkvæmd þyrfti að fara í um-
hverfismat.
Í nýlegu innleggi á Moggablogg-
inu sagði Ómar Ragnarsson frétta-
maður og flugmaður m.a.:
„Langeinfaldasta og hagkvæm-
asta lausnin felst í því að lengja
austur-vestur-braut vallarins svo að
hann þjóni hlutverki sínu sem best
sem varaflugvöllur fyrir millilanda-
flug og hugsanlega takmarkað milli-
landaflug þess utan, eftir atvikum
og nauðsynlegum reglum.
Ef austur-vestur-brautin verður
aðalflugbraut vallarins leggst mest-
allt flug niður á norður-suður-
brautina, nema þegar hvasst er og
vindurinn er nálægt þeirri braut-
arstefnu.“
Með nýlegri skýrslu starfshóps
um mögulega flugvallarkosti á suð-
vesturhorni landsins fylgir minnis-
blað frá skrifstofu umhverfisgæða,
umhverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkur. Þar er skoðaður sá
möguleiki að framlengja A-V-braut
Reykjavíkurflugvallar til vesturs
með því að gera 1.000 metra langa
og um 300 metra breiða landfyllingu
út í Skerjafjörð. Í minnisblaðinu er
greint frá stöðu svæðisins með tilliti
til náttúruverndar og líklegra um-
hverfisáhrifa framkvæmdarinnar.
Höfundur minnisblaðsins er
Snorri Sigurðsson líffræðingur.
Niðurstaða hans er í hnotskurn
þessi: Í heildina má álykta að miðað
við þekktar stærðir í dag og það
verndargildi sem svæðið í heild sinni
hefur er líklegt að niðurstaða um-
hverfismats fyrir framkvæmdina
yrði í heildina neikvæð. Mjög margt
bendir til þess að fyrir flesta um-
hverfisþætti sem væru til skoðunar
yrðu áhrifin metin neikvæð og óaft-
urkræf. Þörf væri á margs konar
mótvægisaðgerðum til að draga úr
neikvæðum áhrifum þar sem því
verður við komið.
Snorri bendir jafnframt á að
áform um stækkun A-V-flugbrautar
Reykjavíkurflugvallar séu ekki í
samræmi við stefnu Reykjavíkur-
borgar um skipulag í Skerjafirði.
Í Skerjafirði eru fjölbreytileg
fjöru- og grunnsævisbúsvæði og
svæðið hefur lengi verið talið mik-
ilvægt náttúrusvæði, segir í minn-
isblaðinu. Þar finnast ýmsar strand-
vistgerðir sem eru metnar með hátt
verndargildi miðað við alþjóðleg við-
mið, þar á meðal þangfjörur af ólík-
um gerðum, sjávarfitjar og leirur.
Botndýralíf er mjög auðugt og mikil
fjölbreytni smádýra finnst í fjörum.
Skerjafjörður allur er skilgreindur
sem alþjóðlega mikilvægt fugla-
svæði. Fjörðurinn er viðkomustaður
fargesta t.d. margæsa og rauðbryst-
inga, þar eru æðar- og kríuvörp og á
veturna sækir fjöldi fuglategunda
fjörðinn heim t.d. sendlingar, tjald-
ar, grágæsir, hávellur, stokkendur,
rauðhöfðaendur, dílaskarfar og
ýmsar máfategundir. Landselir eru
einnig nokkuð tíðir gestir í Skerja-
firði. Strandlína Skerjafjarðar er að
stórum hluta óröskuð meðal annars
vestan við Ægisíðu og sunnan við
íbúðabyggðina í Gamla Skerjafirði.
Framlenging á A-V-flugbraut
myndi liggja yfir strandsvæði og
grunnsævi austan megin í miðjum
Skerjafirði. Strandlínan er á þessu
svæði að stærstum hluta uppruna-
leg en einnig er þar lítilsháttar land-
fylling frá sjöunda áratug tuttug-
ustu aldar. Samkvæmt vistgerða-
korti Náttúrufræðistofnunar eru á
svæðinu klóþangsfjörur sem eru
metnar með mjög hátt verndargildi
og sandmaðksleirur sem eru metnar
með hátt verndargildi. Þær falli
jafnframt undir lög um náttúru-
vernd, en samkvæmt lagagreininni
ber að forðast að raska slíkum vist-
kerfum nema „brýna nauðsyn beri
til“.
Lenging færi í umhverfismat
Landfylling út í Skerjafjörð undir lengri A/V-flugbraut hefði neikvæð áhrif að mati sérfræðings
Í Skerjafirði eru ýmsar strandvistgerðir sem eru með hátt verndargildi miðað við alþjóðleg viðmið
Ljósmynd/Kristján Birgisson
Fór fram af brautinni Það óhapp varð 10. mars 1986 að Fokker-flugvélin Árfari TF-FlO fór út af austur-vestur-brautinni og endaði úti á Suðurgötu. Í flug-
taksbruni heyrði flugstjórinn hávaða og ákvað að hætta við flugtak. Um borð í vélinni voru 45 manns og sakaði engan. Myndin sýnir fólk yfirgefa vélina.
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
leg lenging fl ugbrautar út í Skerjafjörð
Skerjafjörður
Hagar
Vatnsmýri
Öskjuhlíð
Einarsnes
H
ringbraut
B
ústaðavegur
S
uð
ur
ga
ta
Austur-vestur-
brautin lengd
í vestur yfi r
Suðurgötu og
út í sjó.
Allt að 1.000 m
löng og 300 m breið
landfylling.
Mögu
Í kjölfar óhappsins þegar Árfari fór
fram af brautinni urðu umræður um
öryggismál á Reykjavíkurflugvelli.
Morgunblaðið ræddi m.a. við Ósk-
ar Ólason, yfirlögregluþjón umferð-
ardeildar, sem sagði að litlu hefði
munað að þarna yrði stórslys. Bílar
hefðu ekið um brautina rétt áður en
vélin fór út af. Olíustöð væri þarna
rétt hjá og ekki hefði þurft að spyrja
að því hvernig farið hefði ef olíubíll
hefði orðið fyrir flugvélinni.
Óskar sagði að öryggismál við
völlinn hefðu verið til umræðu lengi.
Ein hugmyndin hefði verið sú að
grafa Suðurgötuna undir flugbraut-
ina og önnur sú að setja upp umferð-
arljós sem myndu stöðva umferð á
meðan vélar tækju á loft.
„Ég vona bara að þetta atvik verði
til að gripið verði nú þegar til ráð-
stafana varðandi umferðaröryggi við
Reykjavíkurflugvöll,“ sagði Óskar
Ólason í viðtalinu. Honum varð ekki
að ósk sinni. Ástandið er óbreytt í
dag, 33 árum eftir óhappið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Árfari Aðstæður skoðaðar í kjölfar óhappsins árið 1986. Flugvélin var í
framhaldinu fjarlægð af Suðurgötu og við tók viðgerð í marga mánuði.
Krafa um úrbætur
Öryggismál við flugvöllinn voru
rædd eftir óhappið Allt óbreytt