Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 68
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Franska leikkonan Juliette Binoche
hlaut á dögunum heiðursverðlaun
Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna
(EFA), fyrir framlag sitt til kvik-
myndalistarinnar, líkt og leikstjórinn
Werner Herzog. „Outstanding Euro-
pean Achievement in World Cinema“
sem þýða mætti sem framúrskarandi
árangur Evrópubúa í kvikmyndalist
á heimsvísu.
Binoche fæddist í París 1964 og hóf
að leika á sviði á barnsaldri. Rúmlega
tvítug vakti hún mikla athygli fyrir
leik sinn í kvikmynd Andrés Téch-
inés, Rendez-vous, þar sem hún fór
með eitt af aðalhlutverkunum og hef-
ur hún starfað með mörgum heims-
kunnum leikstjórum upp frá því, m.a.
Jean-Luc Godard, Philip Kaufman og
Krzystof Kieslowski.
Binoche hefur hlotið mikinn fjölda
verðlauna fyrir leik sinn á ferlinum
og má af þeim nefna frönsku Cesar-
verðlaunin, Óskarsverðlaunin,
BAFTA og verðlaun kvikmyndahá-
tíðarinnar í Cannes, að ógleymdum
EFA-verðlaunum í þrígang. Hún hef-
ur leikið í yfir 60 kvikmyndum, bæði
á ensku og frönsku, þótt móðurmálið
sé öllu meira áberandi þegar litið er
yfir ferilinn.
Veit ekki hvort verðlaunin
eru mikilvæg
Blaðamaður var viðstaddur verð-
launahátíðina í Berlín um síðastliðna
helgi og var meðal þeirra sem fengu
að ræða við Binoche fyrir afhendingu
heiðursverðlaunanna. Í seinna holli af
tveimur, reyndar, þar sem Binoche
var þegar búin að svara spurningum
annars hóps í um 30 mínútur. Blaða-
menn kepptust við að koma spurn-
ingum sínum að.
Rúmensk blaðakona tók af skarið
og nefndi við Binoche að hún væri
sannarlega verðugur heiðurs-
verðlaunahafi og bar lof á glæsilegan
feril leikkonunnar. Í kjölfarið fylgdi
hin algenga spurning hvort leikkonan
teldi verðlaunin mikilvæg, eða öllu
heldur verðlaun af þessu tagi. „Ég
veit ekki hvort þau eru mikilvæg!“
svaraði Binoche að bragði og ekki
ljóst hvort henni þætti athyglin góð
eða ekki.
Hver er árangurinn?
„Heiður er skrítið orð, að ákveðnu
leyti, en það er ákveðinn sannleikur
fólginn í því. Ég spyr mig að því hver
sé árangurinn því við erum alltaf að
vaxa og núið skiptir mig meira máli
en annar tími. Í núinu nær maður
tengingu við hvers vegna maður er
hérna og það er skynsamlegt að
dvelja í því. Þessi hugmynd um að
hafa náð einhverjum árangri tengist
fortíðinni og er skrítin en um leið er
gott fyrir mig að klappa mér á bakið
og segja við sjálfa mig að ég hafi stað-
ið mig sæmilega. Mér finnst þetta
heiður og hef notið blessunar þegar
litið er til þeirra sem ég hef unnið
með,“ segir Binoche.
Leikkonan segir engla innra með
sér hafa leiðbeint sér við verkefnaval
í gegnum tíðina og bætir við að djöfl-
arnir hafi líka haft sitt að segja. „Þeg-
ar valið stendur milli margra ólíkra
verkefna er þessi innri leiðsögn mik-
ilvæg því hún sýnir þér kannski ekki
stóru dyrnar heldur frekar þær litlu
sem hægt er að ganga inn um,“ segir
Binoche og þakkar aftur sínum innri
leiðsögumönnum. „Þeir hafa veitt mér
aðhald, þroskað mig og haldið fyrir
mér vöku,“ segir leikkonan og hlær að
þessari lýsingu sinni.
„Þegar maður er fyrir framan töku-
vélina og veit ekki hver stefnan er
finnur maður fyrir ákveðnu tómarúmi
og þarf því að vera í góðum tengslum
við hin ýmsu lög innra með sér. Í mínu
tilfelli hafa englarnir skipt miklu máli
og ég hef líka verið með raunverulega
engla í kringum mig og þá er ég til
dæmis að tala um aðstoðarmann minn
til 26 ára og barnfóstrur sem hafa
gætt barnanna minna. Ég gæti nefnt
þær allar. Börnin mín hafa líka sýnt
mikla þolinmæði og unnustar mínir,“
segir Binoche og nefnir einnig fram-
leiðendur og leikstjóra.
Orkunni beint í rétta átt
Binoche segir orkuna á tökustað
mikilvæga og mikilvægt að hún sé já-
kvæð. Grundvöllur hennar sé sam-
heldið tökulið og ríkjandi tilfinning
fyrir því að allir séu jafnmikilvægir í
hinu listræna ferli. Leikkonan segir
stundum taka tíma að ná þessu stigi,
þessari jákvæðu orku, og ef einhver í
tökuliðinu sé niðursokkinn í símann
sinn, líkt og hún hefur upplifað, og því
ekki með hugann við verkefnið, þurfi
hún einfaldlega að leika enn betur og
af meiri krafti. Við það missi hinn
andlega fjarverandi starfsmaður
áhugann á símanum sínum.
„Þú getur beint orkunni að
ákveðnum stað innra með fólki,“ segir
Binoche og að hún telji mikilvægt að
umgangast líka þá sem sjá um tækni-
legu hliðarnar á tökustað, ljósamenn,
sviðsmenn og aðra. Þannig verði til
hin fyrrnefnda samheldni og jákvæða
orka.
Leitið, verið, njótið og fljúgið!
Binoche er spurð hvort henni þyki
mikilvægt að leiðbeina ungum leik-
urum með masterklössum svoköll-
uðum og segist hún vissulega njóta
þess og þá bæði að leiðbeina ungum
leikurum og leikstjórum. „Þá kafar
maður djúpt í fagið,“ bendir hún á.
En á hún þá mikilvægt heilræði
handa ungum leikurum? ,,Leitið, leit-
ið, leitið … verið, verið, verið … og
takið áhættu! Njótið, njótið, njótið …
fljúgið, fljúgið, fljúgið og látið vaða!
svarar Binoche með tilþrifum og hlær
þegar sænskur blaðamaður segir
hana minna á fótboltaþjálfara.
Traust er grundvöllurinn
Leikurum verður tíðrætt um það
traust sem verður að ríkja milli leik-
ara og leikstjóra. Ef slíkt traust er
ekki fyrir hendi er betra að sleppa því
að gera kvikmyndina, segir Binoche.
Það sé ekki aðeins nauðsynlegt í við-
kvæmum atriðum á borð við kynlífs-
senur heldur í tökum almennt. „Mað-
ur þarf að búa yfir nægu hugrekki
sem leikari til að tala við leikstjórann
ef hann er feiminn,“ segir Binoche og
að hún hafi oft þurft að glíma við slíka
feimni leikstjóra, til dæmis þegar hún
lék í Óbærilegum léttleika tilver-
unnar undir stjórn Philips Kaufmans.
Íslenski blaðamaðurinn spyr þá
hvort Binoche hafi upplifað á ferli sín-
um að geta ekki treyst leikstjóra.
Hún segir að jú, það hafi komið fyrir,
og nefnir að í seinni kvikmyndinni
sem hún hafi leikið í fyrir leikstjórann
André Téchine, Alice et Martin, hafi
verið atriði sem hún hafi verið ósátt
við. Hún hafi ekki verið sátt við
sjónarhorn leikstjórans. „Ég sagði
honum að mér líkaði ekki nálgun hans
og hann svaraði því til að ég mætti
skoða atriðið eftir tökur og ef mér lík-
aði það ekki myndi hann sleppa því.
Eftir að hafa séð atriðið eins og hann
ætlaði að hafa það sagði ég honum að
mér líkaði það ekki, mér þætti það
óþægilegt, en honum var alveg sama.
Hann ætlaði að hafa þetta svona í
myndinni og þarna rofnaði traustið á
milli okkar. Ég var miður mín og
hringdi í framleiðandann, Alain
Sarde, og hann sagði mér að hafa
engar áhyggjur, atriðið yrði ekki í
myndinni,“ segir Binoche.
Hún er að endingu spurð um bar-
áttuna fyrir jöfnum launum leikara
og leikkvenna í kvikmyndum og seg-
ist hún auðvitað styðja slíkt jafnrétti.
„En hvernig á að mæla það? Þar er
vandinn,“ segir Binoche og að líklega
verði alltaf fundin leið til að borga
körlum meira en konum fyrir sam-
bærileg störf, þótt þau eigi á papp-
írunum að heita þau sömu.
Óskarsmynd Binoche og Ralph Fiennes í The English Patient frá árinu
1996. Kvikmyndin hlaut níu Óskarsverðlaun og Binoche ein þeirra.
Blár Binoche í kvikmynd Krzysztofs Kieslowskis, Þrír litir: Blár, frá 1993.
Hún hlaut frönsku Cesar-verðlaunin fyrir leik sinn í henni.
Englar og djöflar vísa veginn
Juliette Binoche, heiðursverðlaunahafi EFA, kýs að lifa í núinu „Mér finnst þetta heiður og
ég hef notið blessunar þegar litið er til þeirra sem ég hef unnið með,“ segir hin dáða leikkona
AFP
Glæsileg Binoche fyrir afhendingu EFA-verðlaunanna í Berlín á dögunum.
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
kassagerd.is kassagerd@kassagerd.is Klettháls 1, 110 Reykjavík +354 545 2800
Vandaðar vörur þurfa hágæða umbúðir til að komast ferskar í hendur
kröfuharðra kaupenda. Hver sem varan þín er þá höfum við umbúðirnar sem
henta henni.
Áralöng reynsla og sérþekking okkar tryggir að við finnum bestu lausnina
sem hentar fyrir þinn rekstur, hratt og örugglega. Við bjóðum breitt úrval
umbúða frá traustum og öflugum samstarfsaðilum. Þannig getum við tryggt
þér lausnir sem auka árangur þinn í rekstri, í sátt við umhverfi og náttúru.
Ef þú hefur spurningar varðandi umbúðir þá höfum við svörin. Hafðu
samband eða kíktu í kaffi og leyfðu okkur að hjálpa þér að finna
lausnirnar sem henta þínum þörfum. Spjöllum um umbúðir.
UmBúÐiR eRu oKkAr fAg