Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
Félagið Aumingja Ísland ehf. hefur
verið tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta
kemur fram í tilkynningu í Lögbirt-
ingablaðinu.
Félagið var stofnað árið 2011 og
var tilgangur þess framleiðsla á
heimildarmyndinni Aumingja Ísland.
Ennfremur kaup og sala fasteigna og
rekstur þeirra, lánastarfsemi og
nauðsynleg umsvif í því sambandi.
Ari Alexander Ergis Magnússon
kvikmyndargerðarmaður leikstýrði
myndinni, sem fjallaði um íslenska
þjóðarsál, eins og kynnt var þegar
myndin var frumsýnd 2016. „Þegar
bankakerfið á Íslandi hrundi 2008 fór
Ari Alexander að mynda atburða-
rásina og reyna að átta sig á afleið-
ingunum fyrir íslenskt samfélag.“
Benedikt Erlingsson leikari leiddi
frásögnina sem sögumaður
Skiptastjóri þrotabúsins er Þ.
Skorri Steingrímsson lögmaður.
Lýsa þarf kröfum í búið innan
tveggja mánaða.
Aumingja
Ísland
gjaldþrota
Hrunið í mynd Ástandið skoðað í
kjölfar gjaldþrots bankanna.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Persónuvernd hefur komist að þeirri
niðurstöðu að vinnsla Vinnumála-
stofnunar (VMST) á persónuupplýs-
ingum um IP-tölur þeirra sem þiggja
atvinnuleysisbætur þegar þeir skrá
sig inn á ,,Mínar síður“ á vef stofn-
unarinnar, samrýmist ekki lögum
um persónuvernd og vinnslu per-
sónuupplýsinga. Hefur Persónu-
vernd gefið VMST þau fyrirmæli að
láta af notkun upplýsinga um IP-tölu
umsækjenda um atvinnuleysisbætur
á meðan ekki eru til úrræði til að
staðfesta áreiðanleika þeirra. Er
VMST gert að staðfesta í síðasta lagi
28. janúar að farið hafi verið að þess-
um fyrirmælum.
Þurfa að vera á Íslandi
Atvinnuleitendur þurfa að vera
staddir á Íslandi og í virkri atvinnu-
leit til að eiga rétt á atvinnuleysis-
bótum og hefur eftirlitsdeild VMST
á umliðnum árum kannað IP-tölur
þeirra sem skrá sig inn á Mínar síður
til að kanna hvort staðsetning IP-
talna á netþjónum gefa til kynna að
þeir séu staddir erlendis. Eftirlits-
deildin fylgist með hvort um mis-
notkun eða bótasvik sé að ræða. Oft
eru eðlilegar skýringar á erlendum
uppruna IP-tölu en í mörgum tilvik-
um hefur svo ekki verið og kemur
fram í ársskýrslum VMST að fjölda
slíkra mála hefur lokið með viður-
lagaákvörðun. Árið 2017 voru t.d.
send út 486 bréf vegna staðfestinga
eða innskráninga erlendis frá og
lauk 160 málum með viðurlögum, þar
sem skuld þeirra var samtals um
15,5 milljónir kr. Í fyrra voru send út
664 bréf vegna staðfestinga/inn-
skráninga erlendis frá. Þá var 161
máli lokið með viðurlagaákvörðun,
þar sem atvinnuleitendur höfðu ver-
ið erlendis án þess að tilkynna ferð
sína til stofnunarinnar.
Ráðlagt að segjast hafa nýtt
sér streymisþjónustu Netflix
Í málinu sem kom til kasta Per-
sónuverndar kvartaði kona yfir því
að VMST hefði unnið með upplýs-
ingar um IP-tölu hennar utan þess
tíma er hún þáði atvinnuleysisbætur
frá stofnuninni auk þess sem um-
ræddar upplýsingar hafi ekki verið
réttar. Fékk konan bréf frá VMST í
ágúst 2018 þar sem fram kom að
stofnuninni hefðu borist upplýsingar
um að hún hefði verið erlendis í júní
það ár. Byggðist bréfið á því að IP-
tala kvartanda hefði verið skráð í
Bretlandi við innskráningu hennar á
„Mínar síður“ á vef stofnunarinnar.
Innskráningin átti sér stað á meðan
konan þáði enn atvinnuleysisbætur,
en hún sagðist hafa verið stödd á Ís-
landi á þeim tíma.
Fram kemur að við rannsókn
málsins hjá Persónuvernd lagði kon-
an m.a. fram gögn sem sýndu fram á
að notkun VPN-forrits, sem gerði
henni kleift að velja hvar í heiminum
IP-tala hennar væri skráð, hefði leitt
til þess að IP-tala hennar birtist eins
og hún hefði verið stödd í Bretlandi.
Í umfjöllun Persónuverndar segir
að konan hafi haldið því fram að
starfsmaður VMST hafi ráðlagt
henni ,,að svara erindi stofnunarinn-
ar á þann veg að hún hefði nýtt sér
streymisþjónustu Netflix og IP-tala
hennar því skráðst í öðru landi en á
Íslandi. Vinnumálastofnun hefur
ekki andmælt því að kvartandi hafi
fengið ráðleggingar þess efnis. Verð-
ur því að ætla að stofnuninni hafi
verið kunnugt um að upplýsingar um
IP-tölur fælu ekki í sér nægilega
áreiðanlegar upplýsingar um stað-
setningu notenda.“
Persónuvernd segir í úrskurðin-
um að í ljósi þess hversu auðvelt er
að nálgast og nota VPN-tengingar
með þessum hætti sé það niðurstaða
Persónuverndar að upplýsingar um
IP-tölur uppfylli ekki kröfur per-
sónuverndarlaganna um áreiðan-
leika persónuupplýsinga.
Breytt vegna nýrrar tækni
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri
VMST, segir að stofnunin sé að
skoða málið. ,,Við erum ekki búin að
ákveða hvernig við bregðumst við en
það er ljóst að Persónuvernd er líka í
ljósi nýrrar tækni að breyta sinni af-
stöðu til þessara mála. Þetta er svo-
lítið flókið vegna þess að það er alveg
skýrt í lögunum að þú átt að vera
staddur á Íslandi ef þú færð greiddar
atvinnuleysisbætur og einhvern veg-
inn höfum við reynt að fylgja því eft-
ir.“ Í dag svari margir stofnuninni
því að þeir séu með nettengingar er-
lendis og það sé alltaf tekið til greina.
Gert að hætta eftirliti með IP-tölum
Könnun Vinnumálastofnunar á IP-tölum atvinnuleitenda stangast á við lögin um persónuvernd
Stödd á Íslandi þó IP-tala benti til annars IP-tölur ekki áreiðanlegar um staðsetningu notenda
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Íslenskir barir og barþjónar voru
verðlaunaðir í fyrsta sinn á hinni ár-
legu verðlaunahátíð Bartenders’
Choice Awards um liðna helgi. Þetta
var í tíunda sinn sem verðlaunin eru
veitt og fór verðlaunahátíðin fram á
Grand Hotel í Stokkhólmi.
Slippbarinn var valinn besti kok-
teilabarinn og þótti sömuleiðis vera
með besta kokteilaseðilinn hér á
landi. Fjallkonan var valin besti nýi
kokteilabarinn. Besta andrúmsloftið
þótti vera á Veður og besti veitinga-
staðurinn var Matbar.
Apótekið sigraði í vali fólksins,
Siggi Sigurðsson hlaut viðurkenn-
ingu fyrir framlag til að bæta bar-
menningu en Jónas Heiðarr á
Jungle þótti vera besti barþjónninn.
Besti kokteillinn var valinn Dillagin
sem reiddur er fram á Apótekinu.
Bransaverðlaunin Bartenders’
Choice Awards eru veitt ár hvert og
markmiðið með þeim er að verð-
launa þá sem skara fram úr á nor-
rænu barsenunni. Stofnað var til
verðlaunanna árið 2010 og þykja þau
afar eftirsóknarverð innan veitinga-
bransans.
BCA-verðlaunin voru fyrstu árin
aðeins veitt í Svíþjóð en árið 2017
bættust fleiri lönd við. Að þessu
sinni voru þau veitt börum og bar-
þjónum í Svíþjóð, Danmörku, Nor-
egi, Finnlandi og Íslandi í fyrsta
sinn. Þar að auki eru veitt sérstök al-
þjóðleg verðlaun BCA.
Niðurstöðurnar eru fengnar með
vali yfir þrjú hundruð fagmanna inn-
an veitingabransans og sérfræðinga
um kokteila.
Þrjár tilnefningar voru í hverjum
flokki. Meðal íslenskra bara sem
hlutu tilnefningu en misstu af verð-
launum að þessu sinni voru Karólína
craft bar, Eiríksson brasserie, Pablo
Discobar, Sumac, Public House og
Kol.
Slippbarinn valinn
besti kokteilabarinn
Norræn verðlaunahátíð í tíunda sinn
Ljósmynd/Facebooksíða Slippbarsins
Slippbarinn Þykir skara fram úr
öðrum kokteilabörum hér á landi.
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
falalalala ...
Biti fyrir börnin
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu.
Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu
tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur.
Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er
hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og
mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir
hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum,
köstulum eða húsum frá miðöldum.
www.transatlantic.is Sími 588 8900
GLÆSILEGARMIÐALDA
BORGIR Í A-EVRÓPU
Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg
Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg
Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá
að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg
með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir
hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna-
yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum,
mikið er af söfnum og menningarviðburðir í
borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir.
Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji
tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka.
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd-
aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í
Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
RIGA Í LETTLANDI
WROCLAW
TALLINN EISTLANDI
NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ
Vilnius,
Budapest, Prag
Gdansk, Krakow,
Varsjá, Bratislava
St. Pétursborg,
Vínarborg og
Brugge
Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu
og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga-
rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á
ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar,
byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að
varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni
beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best
varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur
henni verið bætt við á heimslista UNESCO.