Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 67
ÍÞRÓTTIR 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
Þegar öflugustu skytturnar
í handboltanum á Austurlandi á
áttunda áratug síðustu aldar,
eins og Unnar Vilhjálmsson frá
Egilsstöðum og Eyjólfur Skúla-
son frá Borgarfirði eystra, skutu
boltanum í áttina að mér á 100
kílómetra hraða datt mér ekki í
hug að það gæti verið varasamt
að standa í marki í handbolta-
leikjum.
Vissulega gat verið vont að
fá boltann í sig frá þessum köpp-
um, sem sem betur fer voru ann-
ars yfirleitt með mér í liði.
Ekki hafði ég heldur neinar
áhyggjur af verðandi eiginkonu
þegar ég fylgdist með henni í
leikjum með félagsliðum og
landsliði Íslands nokkrum árum
síðar.
Þegar dóttir okkar, sem auð-
vitað fór líka í markið, fékk
þrumuskot í höfuðið frá helstu
stórskyttu landsins í 1992-
árganginum í leik í 4. flokki var
það aðallega „úff-augnablik“
frekar en að ótti við eitthvað al-
varlegt léti á sér kræla.
En eftir alla umræðuna um
höfuðhöggin í íþróttunum und-
anfarin misseri er ljóst að maður
hefði horft á atvik á borð við það
öðrum augum í dag.
Viðtal Kristjáns Jónssonar
við Lárus Helga Ólafsson mark-
vörð Fram sem birtist í blaðinu í
gær var sláandi á margan hátt.
Að Lárus skuli velta fyrir sér
mögulegum afleiðingum þess að
fá boltann 15 sinnum í höfuðið á
þremur mánuðum er afar skiljan-
legt.
En kannski var mest sláandi
það sem Lárus sagði um sam-
vinnu sína við sjúkraþjálfara liðs-
ins. „Hann hefur oft spurt mig
hvort ég vilji fara út af og hvort
ég vilji hvíla mig.“ Í svona stöðu
á leikmaðurinn ekki að hafa at-
kvæðisrétt.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
HM KVENNA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þórir Hergeirsson er kominn með
norska kvennalandsliðið í hand-
knattleik í undanúrslit á stórmóti í
ellefta skipti í þrettán tilraunum eft-
ir sigur á Þýskalandi, 32:29, í loka-
umferð milliriðlakeppni heimsmeist-
aramótsins í Japan í gær.
Þórir er á sínu ellefta ári sem
aðalþjálfari norska liðsins og hefur
þegar unnið með því sex gull-
verðlaun á heimsmeistaramótum,
Evrópumótum og Ólympíuleikum.
Reynslan hjá Þóri og mörgum
leikmönnum norska liðsins skilaði
sér vel í leiknum gegn Þjóðverjum í
Kumamoto í gær. Það hafði yf-
irhöndina nær allan tímann en
þýska liðið var aldrei langt undan
og minnkaði muninn jafnóðum eftir
að Noregur hafði nokkrum sinnum
náð vænlegu forskoti, þannig að úr-
slitin voru ekki ráðin fyrr en á loka-
mínútunni.
Kari Skaar Brattset lék afar vel á
línunni hjá norska liðinu og skoraði
sex mörk úr jafnmörgum til-
raunum. Emilie Hegh Arntzen,
Stine Bredal Oftedal og Marit Ja-
cobsen gerðu sín fimm mörkin hver
og Silje Solberg varði 14 skot í
markinu. Emily Bolk var at-
kvæðamest hjá Þjóðverjum með sex
mörk.
Metnaður og vinnusemi
„Ég er gríðarlega stoltur af
frammistöðu liðsins í keppninni.
Sumir hafa kallað okkur B-liðið á
þessu móti, okkur vantar vissulega
nokkra góða leikmenn en höfum
sýnt okkar styrkleika í öllum leikj-
um. Það er hefð í þessu liði og gríð-
arlegur metnaður og vinnusemi í
hópnum,“ sagði Þórir í viðtali við
TV3 í Noregi eftir leikinn.
Afrekaskrá Þóris með norska
landsliðinu frá 2009 lítur þannig út:
2009: Bronsverðlaun á heims-
meistaramótinu í Kína.
2010: Gullverðlaun á Evrópu-
mótinu í Danmörku og Noregi.
2011: Gullverðlaun á heims-
meistaramótinu í Brasilíu.
2012: Gullverðlaun á Ólymíu-
leikunum í London.
2012: Silfurverðlaun á Evrópu-
mótinu í Serbíu.
2013: 5. sæti á heimsmeistara-
mótinu í Serbíu.
2014: Gullverðlaun á Evrópu-
mótinu í Ungverjalandi og Króatíu.
2015: Gullverðlaun á heims-
meistaramótinu í Danmörku.
2016: Bronsverðlaun á Ólymp-
íuleikunum í Ríó.
2016: Gullverðlaun á Evrópu-
mótinu í Svíþjóð.
2017: Silfurverðlaun á heims-
meistaramótinu í Þýskalandi.
2018: 5. sæti á Evrópumótinu í
Frakklandi.
2019: Verða í einum af fjórum
efstu sætunum á heimsmeistara-
mótinu í Japan.
Sigurstranglegar gegn Spáni
Noregur mætir Spáni í undan-
úrslitunum á morgun og ljóst er að
Þórir og hans konur eru sigur-
stranglegri í þeirri viðureign. Sæti
Spánverja í undanúrslitum hékk á
bláþræði eftir að þeir steinlágu í
gær fyrir hinu firnasterka liði
Rússa, 36:26, en sluppu fyrir horn
inn í undanúrslitin nokkrum klukku-
tímum síðar þegar Svíum mistókst
að leggja Svartfellinga að velli.
Þórir sagði við TV3 að Noregur
ætti fyrir höndum afar erfiðan leik
gegn Spánverjum en sá leikur hefst
kl. 8.30 að íslenskum tíma í fyrra-
málið.
„Þær byrjuðu mótið mjög vel en
hafa gefið aðeins eftir í síðustu leikj-
um. Þær eru afar erfiðir andstæð-
ingar sem hafa spilað lengi saman
og eru með í sigtinu að gera sér-
staklega vel á heimavelli á HM
2021. Þetta eru mótherjar sem þarf
að gæta sín á,“ sagði Þórir.
Rússar mæta Hollendingum í hin-
um undanúrslitaleiknum klukkan
11.30 á morgun og það eru því þó
nokkrar líkur á því að úrslitaleik-
urinn um heimsmeistaratitilinn árið
2019 á sunnudaginn verði á milli
Noregs og Rússlands.
Komnar í undanúrslit í
ellefta skipti frá 2009
AFP
Þjálfarinn Þórir Hergeirsson hefur náð mögnuðum árangri með norska landsliðið og getur nú bætt verðlaunum í safnið í Japan.
Þórir Hergeirsson enn og aftur með norska liðið í verðlaunabaráttu á stórmóti
Tryggvi Snær Hlinason lék með
Zaragoza í spennandi leik í Meist-
aradeild Evrópu í körfuknattleik í
gær á Spáni. Zaragoza mátti sætta
sig við tap gegn þýska liðinu Bonn,
72:77, í D-riðlinum.
Bonn skaust þar með á toppinn
og er með 13 stig eins og Dijon frá
Frakklandi. Zaragoza er í 4. sæti
með 12 stig en þrjú önnur lið eru
með 12 stig og tvö til viðbótar með
11 stig. Riðillinn er því óútreikn-
anlegur. Tryggvi skoraði 5 stig í
gær, tók 8 fráköst, varði 3 skot og
gaf eina stoðsendingu.
Mikil spenna í
riðli Zaragoza
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon0
Spánn Tryggvi Snær Hlinason
varði þrjú skot frá Þjóðverjunum.
U-20 ára landsliðsmaðurinn, Þórir
Guðmundur Þorbjarnarson, er far-
inn að láta meira að sér kveða í
bandaríska háskólakörfuboltanum,
NCAA. Þórir er á sínum þriðja vetri
hjá Nebraska sem er með sterkt lið.
Skoraði hann 12 stig í síðasta leik
gegn Creighton en Nebraska tapaði
95:76 á útivelli. Í leiknum þar á
undan mætti Nebraska hinu kunna
liði Georgia Tech á útivelli og tap-
aði 73:56. Þá skoraði Þórir 11 stig,
tók 7 fráköst og varði skot. Hefur
hann skorað 6 stig að meðaltali í
vetur og er því að bæta í.
Þórir lætur meira
til sín taka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bandaríkin Þórir Guðmundur
Þorbjarnarson lætur að sér kveða.
Gennaro Gattuso,
fyrrverandi
landsliðsmaður
Ítala, hefur verið
ráðinn knatt-
spyrnustjóri
ítalska A-
deildarfélagsins
Napoli. Tekur
hann við af Carlo
Ancelotti sem var
rekinn á þriðju-
dagskvöld eftir 19 mánuði í starfi.
Napoli rak Ancelotti örfáum
klukkutímum eftir 4:0-sigur liðsins á
Genk í Meistaradeildinni, en liðið
tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum
keppninnar með sigrinum.
Samningur Gattuso gildir til loka
leiktíðarinnar með möguleika á
framlengingu, gangi samstarfið vel.
Gattuso, sem er 41 árs gamall, lék
undir stjórn Ancelotti hjá AC Milan
á sínum tíma og stýrði liðinu sjálfur
frá nóvember 2017 til vorsins 2019.
Hann hefur jafnframt stýrt liðum
Pisa, OFI Krít og Palermo síðan
hann lagði skóna á hilluna sjálfur ár-
ið 2013 en hann lauk löngum ferli
sem spilandi þjálfari Sion í Sviss.
Ancelotti hefur verið orðaður við
Everton, lið Gylfa Þórs Sigurðs-
sonar, í ítölskum og enskum fjöl-
miðlum. johanningi@mbl.is
Snöggir að
afgreiða
stjóraskipti
Gennaro
Gattuso