Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 60
60 BÆKUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
Uppreisnartilraun
Þennan dag gekk smalamennskan
svo vel að þegar komið var fram í
Fell með safnið fyrir miðjan dag var
ákveðið að halda áfram, eftir hæfi-
lega hvíld, og reyna að koma safninu
út eftir sveitinni og í gerðið við Hlíð-
arréttir um
kvöldið. Þurfti þá
ekki að seinka
fjallréttinni um
dag, eins og
stefnt hafði í eftir
hinn misheppn-
aða smaladag á
Framfjallinu. En
venjan var að
taka heilan dag
til að reka safnið til rétta, frá Þór-
ólfsfelli og út að Kvoslækjará, enda
er það um 20 km leið. Oftast komu
þá börn og unglingar ríðandi inn
fyrir Hlíðarendakot, þar sem áð var
með safnið og hjálpuðu til við rekst-
urinn út eftir sveitinni. Að þessu
sinni varð minna um slíkt hjálparlið
en endranær og reyndi því mjög á
okkur yngri fjallmennina við rekst-
urinn. Kom þar tvennt til, annars
vegar latrækt fé vegna hinnar löngu
dagleiðar þar sem safnað var innan
frá Gilsá og rekið til rétta sama dag-
inn og hins vegar sá háttur eldri
fjallmanna að láta unglingana baxa
og snúast við reksturinn meðan þeir
slökuðu á, slógu sér saman, drógust
aftur úr og réttu á milli sín fjallpel-
ana. Skruppu jafnvel heim á bæi í
kaffi og góðgerðir.
Þóttumst við nú jafnvel finna
skýringu á því hvers vegna okkur
hafði verið hlíft um morguninn. En
ósanngjörn fannst okkur eigi að síð-
ur þessi mismunun. Kom þar að við
fórum að tala okkur saman um að
haga okkur að fordæmi hinna full-
orðnu.
Þegar við sáum að fjallkóngurinn
og nokkrir með honum höfðu stigið
af baki og dregist talsvert aftur úr
tókum við til okkar ráða. Félagi
minn og nábúi, Eiður Magnússon í
Árnagerði, var jafnan ódeigur til
stórræða og átti frumkvæðið að
þessu sinni sem oftar. Við höfðum
tínt nokkuð af berjum í tvær flöskur
inn á Hellisvöllum. Tók Eiður nú
upp aðra flöskuna og við hópuðum
okkur saman, stigum af baki, stút-
uðum okkur á berjaflöskunni og lét-
um reksturinn lönd og leið, sem
varð til þess að safnið tók fljótlega
að hægja á sér og dreifast nokkuð
til ýmissa átta.
Ekki leið samt á löngu þar til við
sáum að fjallkóngurinn snaraðist á
bak og hleypti nú sem ákafast, bað-
andi út öllum öngum, í áttina til okk-
ar. Var gustur á karli þegar hann
bar að og spurði heldur óblíðum
orðum hvað svona slugs ætti að
þýða? Varð Eiður fyrir svörum og
hafði sannarlega munninn fyrir neð-
an nefið, svaraði fullum hálsi og
sagðist hafa haldið að okkur bæri að
taka kónginn og kumpána hans til
fyrirmyndar. Varð þetta hin hressi-
legasta orðarimma áður en bæði
ungir og gamlir tóku að þeysast í
kringum safnið, ná því saman og
nudda því í rétta átt.[…]
Erfið rekstrarleið
Eitt haustið, sem hér um ræðir,
hafði Markarfljót lagst svo vestur
með Hlíðinni að ófært var talið að
reka fjallsafnið hina venjulegu leið
um aura og brekkurætur Innhlíð-
arinnar. Var þá gripið til þess ráðs
að fara með safnið upp hjá Fljóts-
dalsbænum, brattar leiðir upp á
heiði og þar vestur um ofan byggð-
ar. Var þetta löng og seinfarin
rekstrarleið þar sem krækja þurfti
upp fyrir gil og skorninga allt út
fyrir Litlu-Þverá, en komið var aft-
ur niður í byggð hjá Deild og síðan
rekið eftir þjóðveginum út í Hlíð-
arréttir. Áliðið var dags þegar við
komum niður að Deild og hafði ég
ekki bragðað vott né þurrt frá því
eldsnemma um morguninn. Það var
því vel þegið að Hallgrímur í Deild
bauð mér inn með sér og eru mér
minnisstæðar móttökur Guðrúnar
gömlu Aradóttur og hvað góðgerðir
hennar voru velþegnar og ljúffeng-
ar.
Vekur þetta upp aðra minningu
enn eldri, en mjög svipaða. Og enn
kemur Hallgrímur Pálsson við sögu.
Hann var þá vinnumaður á Breiða-
bólstað og vorum við einn dag
snemmsumars sendir með stórt og
mikið þarfanaut, svartkrossótt, í
nautagirðingu inn á Hallshólma
norðan við Dímon. Þetta er alllöng
leið og fórum við ríðandi, Hall-
grímur teymdi tudda en ég rak á
eftir. Ferðin sóttist heldur seint, því
nautið var þungt í taumi þó ég
reyndi að vera iðinn við eftirrekst-
urinn.
Er skemmst frá að segja að við
vorum lengi dags að puða með naut-
ið fram yfir Þverá og inn alla Aura
uns við að lokum náðum með það í
nautagirðinguna. Var það mikill
léttir að losna loks við tudda og rið-
um við léttan áleiðis heim. Ekki
höfðum við haft með okkur nesti
fremur en venja var á þeim árum í
svona ferðasnatti og var því svengd-
in farin að segja til sín, enda komið
undir kvöld. Setti Hallgrímur nú
stefnuna allmiklu innar til Hlíðar-
innar en ég átti von á. Móðir hans,
Ingibjörg Þórðardóttir frá Lamba-
læk, ekkja eftir Pál Jónsson á
Kirkjulæk, sem drukknaði við
Landeyjasand 1919, var þá ráðs-
kona á Heylæk hjá Bjarna Sigurðs-
syni. Riðum við ána nær beint af
augum og linntum ekki spretti fyrr
en á hlaðinu á Heylæk. Tók Ingi-
björg hið besta á móti okkur sem
vænta mátti og leið ekki á löngu áð-
ur en hún bar fyrir okkur hnaus-
þykkan, rjúkandi hrísgrjónagraut
með rúsínum, kanelsykri og rjóma.
Finnst mér enn að sú máltíð hafi
borið af öllum þeim veislukosti sem
ég hefi síðan fengið að njóta um æv-
ina. [...]
Fjallferðir unglingsáranna
Bókarkafli | Í endurminningabókinni Undir
suðurhlíðum segir Sváfnir Sveinbjarnarson, fyrr-
verandi prófastur á Breiðabólstað í Fljótshlíð, frá
prestsstörfum, félagsmálastarfi og ferðum.
Minningabók Presturinn og bóndinn Sváfnir Sveinbjarnarson brýnir ljá.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Sófasett
Borðstofuborð
Stólar
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
Kommóður/hillur
o.m.fl.
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL VIKTOR
Hvíldarstóll
CHICAGO
hornsófi
KRAGELUND OTTO
KRAGELUND K371
Kragelund stólar
K 406
Ami
Grace
Manning
Highrock
Kelsey