Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
Niðurstöður könnunar Gallup fyrir Samtök atvinnulífsins
og Seðlabankann meðal stjórnenda
stærstu fyrirtækja landsins eru
áhyggjuefni. Þær
benda til að bata
sé ekki að vænta
næsta hálfa árið.
Að vísu eru fleiri
stjórnendur já-
kvæðir nú en
fyrr á árinu, sem
vonandi er vís-
bending um að
bati fari þrátt fyrir allt að láta á
sér kræla, en mikill munur er á
stöðu og horfum nú og fyrir
nokkrum misserum og árum.
Enn meira áhyggjuefni er aðfleiri stjórnendur gera ráð
fyrir fækkun starfsmanna en þeir
sem vænta fjölgunar á næstu mán-
uðum. Svörin benda til að starfs-
mönnum fyrirtækja í heild gæti
fækkað um hálft prósent næsta
hálfa árið, sem er mikið áhyggju-
efni, ekki síst þegar horft er til
þess að fjölgun fólks krefst þess að
vinnumarkaðurinn skapi stöðugt
fleiri störf. Neikvæðnin í þessum
efnum er mest í byggingageir-
anum, sem kemur ekki á óvart, og
einnig í verslun. En væntanleg
fækkun nær til flestra atvinnu-
greina.
Kvartað var undan því í gær aðSeðlabankinn skyldi ekki
hafa haldið áfram að lækka vexti.
En horfa verður til fleiri þátta
þegar kemur að því að örva efna-
hagslífið. Ríkið hér á landi tekur
til sín mjög stóra sneið af þjóðar-
kökunni og hefur það lamandi
áhrif á vöxt efnahagslífsins.
Nú er lag að lækka skatta ogefla þannig atvinnusköpun
og efnahagsvöxt. Þær skattalækk-
anir myndu skila sér í bættri af-
komu heimila, fyrirtækja – og rík-
issjóðs.
Lag að
lækka skatta
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Vegagerðin skrifaði í vikunni undir
samning við Ístak hf. í Mosfellsbæ
um smíði nýrra brúa yfir Steinavötn
og Fellsá í Suðursveit.
Brúin yfir Steinavötn skemmdist
haustið 2017 þegar grófst undan ein-
um stöpli hennar í vatnavöxtum.
Brúin var komin til ára sinna, 55 ára
gömul. Þurfti að hafa hraðar hendur
og byggja bráðabirgðabrú, en það
var gert á innan við viku.
Smíði nýrrar brúar yfir Steina-
vötn var fyrst boðin út í vor en þá
bárust engin tilboð. Útboð fór fram
að nýju í haust og bárust þá átta til-
boð, þar af eitt frá erlendu fyrirtæki.
Tilboð Ístaks hljóðaði upp á 770,4
milljónir króna, litlu hærra en kostn-
aðaráætlun, sem var 761,3 milljónir
króna.
Verkið snýst um smíði nýrra brúa,
yfir Steinavötn (102 metrar) og
Fellsá (46 metrar) ásamt uppbygg-
ingu á hringvegi í Suðursveit á
tveimur köflum báðum megin
brúnna. Veita skal ám undir nýjar
brýr og eftir að vegtenging er komin
á þær skal fjarlægja bráðabirgða-
brýr og -vegi og gera leiðigarða við
enda brúar yfir Steinavötn. Verkinu
á að vera lokið 1. apríl 2021.
Þessi vegagerð er hluti af átaki til
að fækka einbreiðum brúm á hring-
veginum. Enn eru 36 einbreiðar brýr
á hringveginum, langflestar á Suður-
og Suðausturlandi. sisi@mbl.is
Ístak byggir tvær
brýr í Suðursveit
Morgunblaðið/Eggert
Steinavötn Fyllt að stöplum brúarinnar sem skemmdist talsvert árið 2017.
Að mati Sjúkratrygginga Íslands
væri mjög varhugavert að veita ein-
um hópi sjúklinga rétt til greiðslu-
þátttöku sjúkratrygginga umfram
aðra hópa sjúklinga og varasamt að
taka upp sérreglur vegna einstakra
sjúkdóma og skapa þannig mismun-
un á sjúklingahópum. Þetta kemur
fram í umsögn og á minnisblaði
Sjúkratrygginga við þingsályktunar-
tillögu níu þingmanna Miðflokksins á
Alþingi um gjaldfrjálsar krabba-
meinsmeðferðir. Þar er lagt til að
heilbrigðisráðherra verði falið að
beita sér fyrir því að krabbameins-
meðferðir verði gjaldfrjálsar. Í þings-
ályktunartillögunni er fjallað um
margháttaðan kostnað sem sjúkling-
ar þurfa að eiga við að stríða á meðan
á krabbameinsmeðferð stendur
þ. á m. vegna tannskemmda.
Á minnisblaði SÍ til velferðar-
nefndar Alþingis segir að það sé
skoðun SÍ að sjúkdómsgreining eigi
ekki að ráða við mat á greiðsluþátt-
töku SÍ vegna tannlækninga heldur
mat á afleiðingum sem sjúkdómurinn
hefur haft á tannheilsu viðkomandi.
Í umsögn Krabbameinsfélagsins er
bent á að líkamlegar afleiðingar
krabbameins geti t.d. verið tann-
skemmdir, ófrjósemi, krónískir verk-
ir auk fjölmargra annarra aukaverk-
ana. Þeim fylgi oft verulegur
kostnaður á sama tíma og sjúklingar
standa frammi fyrir tekjutapi. Alvar-
legar tannskemmdir þar sem gler-
ungur eyðist, tennur skemmast eða
losna og detta úr góm geti fylgt
krabbameinsmeðferð. „Í sumum til-
vikum kosta tannviðgerðir hundruð
þúsunda eða hlaupa á milljónum og
oftar en ekki er greiðsluþátttaka
Sjúkratrygginga lítil eða engin. Stór-
auka þarf niðurgreiðslur vegna tann-
viðgerða í tengslum við krabbameins-
meðferðir,“ segir í umsögn
Krabbameinsfélagsins.
SÍ telja varhugavert að mismuna hópum
Þingmenn Miðflokks leggja til að krabbameinsmeðferðir verði gjaldfrjálsar
Glæsilegar danskar
innréttingar í öll
herbergi heimilisins
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán.–Fim. 09–18
Föstudaga 09–17
Laugardaga 11–15