Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
Gefðu frí um jólin
með gjafabréfi Icelandair
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Vitlaust veður var í Vestmanna-
eyjum í fyrradag og náði norðvest-
anbálið hámarki um kvöldmatar-
leyti. Mældist meðalvindur þá 40
m/s og 52 m/s í hviðum. Miklar
skemmdir urðu á húsnæði fiski-
mjölsverksmiðju Ísfélagsins (FES)
og salthúsinu hjá Vinnslustöðinni.
Þar losnuðu klæðning og þakdúkur í
veðurofsanum. Skúrar, girðingar,
þakjárn og -dúkar fór einnig á flug
á Illugagötu ásamt öðru lauslegu.
Þá skemmdust líka hús á Flötum,
Vestmannabraut, Brekastíg, Boða-
slóð og víðar í bænum. Alls sinntu
björgunarsveitir og lögregla á ann-
að hundrað útköllum þegar mest
lét.
Heimamaður sem Morgunblaðið
ræddi við sagðist aldrei hafa upp-
lifað önnur eins læti í veðri og þetta
kvöld. Líkti hann vindhviðum við
öflug spörk, svo mikill var ofsinn.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, tekur í svipaðan
streng og segir lætin hafa verið
mikil. „Þetta var alveg rosalega
mikill hvellur. Við erum vön háum
vindatölum í Eyjum en þetta var al-
veg ótrúlega mikið og stóð lengi yf-
ir,“ segir hún, en þegar Morg-
unblaðið náði tali af henni í gær var
enn unnið að því að meta og skrá
skemmdir.
„Fólk er enn að skoða húsin sín
og eignir. Mörgum var ansi brugðið
enda tekur vel í húsin þegar hviður
eru komnar upp í 52 m/s. En það er
samt alveg greinilegt að menn und-
irbjuggu sig vel og fóru að fyrir-
mælum. Sem betur fer urðu engin
slys á fólki,“ segir Íris enn fremur.
Kolbrjálað veður á Reykjanesi
Veðrið gerði einnig usla í Njarð-
víkurhöfn þar sem bryggjupolli
kubbaðist í sundur þegar togari
vildi slíta sig lausan í átökunum.
Halldór Karl Hermannsson, hafn-
arstjóri Reykjaneshafnar, segir
enda á tveimur bátum hafa losnað.
„Ég veit þó ekki um nein stórtjón.“
Rúnar Arnarson, hafnarstjóri
Sandgerðishafnar, segir flot-
bryggjur þar hafa verið ansi tæpar.
„Fyrr í haust slitnaði ein bryggja
hjá okkur en sem betur fer gerðist
það ekki aftur. Það reyndi þó ansi
vel á þetta,“ segir hann og bætir við
að veðrið hafi verið „kolbrjálað“.
Ljósmynd/Óskar Pétur
Eyðilegging Geymsluhús við malarvöllinn í Heimaey, steinsnar frá Samkomuhúsinu, skemmdist í óveðrinu.
Hviðurnar í Eyjum
eins og öflug spörk
Mörgum var ansi brugðið, segir Íris bæjarstjóri
Lokanir á þjóðvegum vegna óveð-
ursins sem gekk yfir landið voru
óvenju margar og langvinnar. Þetta
kemur fram á vef Veðurvaktarinnar
ehf., blika.is. Ekki verður hafist
handa við að moka Holtavörðuheiði
fyrr en í birtingu í dag og þá hefur
heiðin verið lokuð í um tvo sólar-
hringa. Fáheyrt er í seinni tíð að
samgöngur milli landshluta rofni svo
lengi. Áfram mun draga úr veður-
hæðinni á landinu öllu, þótt áfram
megi búast við snjókomu og élja-
gangi á Norðurlandi.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræð-
ingur hjá Vegagerðinni, segir að
staðan verði skoðuð nú með morgn-
inum. Hann segir að víða hafi dregið
úr snjókomu en vindur verið nægur
til að valda skafrenningi. Því hafi
margir vegir verið ófærir. Hann seg-
ir að skafrenningur sé víða á Norð-
urlandi vestra og austar sé enn hríð.
Þjóðvegurinn sunnan við Vatnajökul
var lokaður í gær en þar voru sterkir
vindsveipir og mikil hálka. Vindur
átti að ganga niður á SA-landi og
austur um í nótt.
Vegir lokaðir
óvenju lengi
Færð skoðuð víða með morgninum
Morgunblaðið/Hari
Lokað Vegum var lokað víða um
land vegna óveðurs og ófærðar.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Þetta var ekta fárviðri og meira en
það,“ sagði Árni S. Þórarinsson,
bóndi á Hofi í Svarfaðardal, um veðr-
ið í fyrradag þegar rætt var við hann
síðdegis í gær. „Það er ekki gott að
vera kúabóndi núna. Það er búið að
vera rafmagnslaust síðan ellefu í
gærmorgun. Það er allt rafmagns-
laust á Dalvík og hér í Svarfaðardal.
Rafveitan keyrir vararafstöðvar og
það er lagt kapp á að halda hitaveit-
unni gangandi.“
Árni er með rafknúið rörmjalta-
kerfi til að mjólka kýrnar. Hann er
með um þrjátíu mjólkandi kýr.
„Þær eru ómjólkaðar. Við reynd-
um aðeins að handmjólka þær í morg-
un en það þýðir bara ekkert að hand-
mjólka. Kýrnar eru ekki vanar því og
svo er allt í kolsvarta myrkri. Þær
verða hálfhvekktar á því að komið sé
með ljós í fjósið. Þær eru ekkert van-
ar þessu.“ Árni sagði að þetta væri
hið versta ástand og ekki útlit fyrir
það rættist úr rafmagnsleysinu á
næstunni. Hann sagði að raflínan
lægi niðri neðan við fjósið á Hofi og
alveg inn á Dalvík. Það væri mikið
verk að laga raflínuna og óveðrið ekki
alveg gengið niður. Tré sem lengi hef-
ur staðið í garðinum á Hofi, 6-7 metra
hátt, féll í veðrinu.
„Til allrar Guðs lukku urðu ekki
skemmdir á húsum. Það hefði ekki
verið neitt spaug ef hús hefðu
skemmst í þessu veðri. Ástandið er
mjög slæmt hér. Kúabúin voru ekki
undir þetta búin,“ sagði Árni. Hann
var að berjast í því í gær að útvega
sér færanlega rafstöð til að geta
mjólkað kýrnar. Það var ekki hlaupið
að því. Símasambandslaust var í
stórum hluta Svarfaðardals í gær en
bændur voru samt að tala sig saman
um að ná í rafstöðvar. Árni taldi að
hann þyrfti að eignast vararafstöð því
ekki vildi hann lenda aftur í þessari
stöðu.
Aðeins var búið að létta á nokkrum
kúm með handmjólkun, en alls ekki
öllum. Árni sagði að frekari mjaltir
þyrftu að bíða þar til fengist rafmagn.
Takist Árna að mjólka kýrnar er eng-
inn straumur á kælikerfi mjólkurt-
anksins. Sækja átti mjólk í dag en
tankurinn er tómur. Ekki má leggja
inn ókælda mjólk og ekki heldur
mjólk sem er handmjólkað í opin ílát.
Því verður að hella mjólkinni niður
þar til rafmagn er komið á kælikerfið.
Það er því ljóst að búið verður fyrir
tekjutapi.
Árni sagði að veðurhæðin hefði
verið svo mikil í fyrradag að menn
hefðu helst ekki opnað hús og ófært
að hreyfa sig nokkuð af bæ. „Þetta
var manndrápsveður, það sést ekki út
um einn einasta glugga. Húsin eru
svo barin. Maður átti ekki von á þessu
þó að spáin væri slæm, en við fengum
aldeilis að kenna á því,“ sagði Árni.
Veðrið hafði gengið mikið niður
síðdegis í gær en áfram var þó nokk-
uð mikil stórhríð. Ekki var of gott
færi enda höfðu vegir ekki verið
hreinsaðir. Þá var ekkert farsíma-
samband í dalnum framan við Hof því
farsímasendirinn þar datt út. Land-
línan var líka úti. Þau á Hofi njóta
þess að ná sambandi við farsímasendi
á Dalvík.
Árni fæddist á Bakka í Svarfaðar-
dal árið 1960 og ólst upp í sveitinni.
„Þetta veður var það versta sem ég
hef upplifað og var alveg glórulaust í
sólarhring,“ sagði Árni. „Maður trúir
þessu ekki fyrr en maður er búinn að
upplifa það.“
Glórulaust óveður í sólarhring
Ekki hægt að mjólka vegna rafmagnsleysis Mjólk sem er handmjólkuð og ekki kæld hellt niður
Rafmagnslaust og ekkert símasamband í Svarfaðardal Ekta fárviðri og meira en það, segir bóndi
Ljósmynd/Landsnet
Dalvíkurlína Að minnsta kosti 15 stæður í Dalvíkurlínu brotnuðu í óveðrinu og lá raflínan niðri á löngum kafla.
Óveður á aðventu