Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta er í mínum huga drauma- starf,“ segir Lára Sóley Jóhanns- dóttir sem 1. ágúst tók við starfi framkvæmdastjóra Sinfóníu- hljómsveitar Íslands (SÍ). Lára Sól- ey er menntaður fiðluleikari og hef- ur starfað sem tónlistarmaður og sjálfstætt starfandi verkefnastjóri undanfarin ár. Hún var um tíma konsertmeistari Sinfóníuhljóm- sveitar Norðurlands þar sem hún sat einnig í stjórn og verkefnavals- nefnd og á árunum 2010-2014 var hún verkefnastjóri við Menningar- húsið Hof og gegndi starfi fram- kvæmdastjóra Hofs í afleysingum. „Tónlistin hefur átt hug minn all- an, sérstaklega sem flytjandi en ég hef engu að síður alltaf haft það að markmiði mínu að koma að menn- ingarstjórnun í framtíðinni,“ segir Lára Sóley sem lauk BMus-prófi í fiðluleik frá Royal Welsh College of Music and Drama 2006 og meistara- námi í listastjórnun við sama há- skóla fyrr á árinu. „Sumarið 2018 fluttum við fjöl- skyldan til Bretlands þar sem ég fór í nám í listastjórnun. Ég var á kafi í því námi þegar starf framkvæmda- stjóra SÍ var auglýst laust til um- sóknar og sendi inn umsókn,“ segir Lára Sóley og rifjar upp að hún hafi nýlokið tveggja mánaða starfsnámi sínu hjá Sinfóníuhljómsveit BBC Wales þegar hún flaug heim og tók við framkvæmdastjórastöðunni hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ómetanleg reynsla „Starfsnámið úti veitti mér ómet- anlega reynslu, en ég náði bæði að vinna að undirbúningi alþjóðlegu söngvarakeppninnar BBC Cardiff Singer of the World og BBC Proms. Það var mér dýrmætt þegar ég fór að setja mig inn í starfið hér heima að hafa samanburð við starfið hjá BBC og eiga gott tengslanet úti.“ Ég geri ráð fyrir að þú hafir þurft að gera grein fyrir framtíðarsýn þinni fyrir SÍ í umsóknarferlinu. Geturðu deilt þeirri sýn með les- endum? „Sinfóníuhljómsveitin er búin að vera á hraðri uppleið seinustu árin og því ákveðin áskorun að taka við keflinu frá Örnu Kristínu Einars- dóttur á slíkum tíma. Það eru mikl- ar hræringar og nýsköpun í klass- ísku tónlistarsenunni og því mikilvægt að móta skýra sýn fyrir hljómsveitina. Eftirspurn eftir leik hennar er að aukast erlendis með hverri tónleikaferð. Við þurfum að vita eftir hverju við erum að sækj- ast og hvert við erum að stefna og setja okkur skýr markmið,“ segir Lára Sóley sem sett hefur af stað slíka stefnumótunarvinnu með að- komu hljómsveitar, yfirstjórnar og ýmissa hagsmuna- og samstarfs- aðila á borð við RÚV, Hörpu og full- trúa ríkis og Reykjavíkurborgar sem leggja hljómsveitinni til rekstr- arfé. „Mér finnst einnig mikilvægt að hljómsveitin sé í góðum tengslum við þjóðina og fari reglulega í tón- leikaferðir um landið,“ segir Lára Sóley og rifjar upp hversu þýðing- armikið það hafi verið sér á unga aldri að sækja tónleika Sinfóníu- hljómsveitarinnar í íþróttahúsinu á Húsavík þar sem Lára Sóley er alin upp. „Beinar útsendingar á Rás 1 frá tónleikum hljómsveitarinnar eru mjög mikilvægar til að halda uppi samtali við þjóðina, en ekki síður beint streymi á vefnum sinfonia.is. Hljómsveitin á að styðja við lista- menn, einleikara, hljómsveitar- stjóra, tónskáld og nýjar tón- smíðar,“ segir Lára Sóley og bendir á að Anna Þorvaldsdóttir sé staðar- tónskáld um þessar mundir. „Í gegnum Yrkju, sem unnið er í sam- starfi við Íslenska tónverkamiðstöð, höfum við stutt við ung tónskáld sem eru að hefja sinn feril. Allt þró- unarstarf er mjög mikilvægt og þar á SÍ að vera leiðandi.“ Mikill metnaður Eðlilega tekur tíma að setja sig inn í nýtt starf. Er eitthvað sem hef- ur komið þér á óvart í því ferli? „Starfið er auðvitað mjög víð- feðmt,“ segir Lára Sóley og tekur fram að hún hafi þegar hún tók við starfinu verið sér meðvituð um að það væri í mörg horn að líta. „Teymið sem heldur um hljómsveit- ina, sem myndar rammann fyrir þessa mikilvægu skapandi miðju sem hljóðfæraleikaranir eru, er ekki mjög stórt. Það liggur því ansi mik- ið á hverju borði,“ segir Lára Sóley og nefnir til samanburðar að hjá SÍ starfi 12 manns í framkvæmda- og skrifstofuteymi hljómsveitarinnar en 25 manns vinni í sambærilegu teymi hjá BBC, þar sem hún var í starfsnámi, en sú hljómsveit er ekki jafnfjölmenn og SÍ. „Það hefur verið frábært að kynnast fólkinu sem vinnur í fram- kvæmda- og skrifstofuteymi hljóm- sveitarinnar og fá innsýn inn í þeirra störf,“ segir Lára Sóley og tekur fram að hún hafi einsett sér, þegar hún tók við starfinu, að funda einslega með öllum hljóðfæraleikur- unum og starfsfólki SÍ. „Ég á aðeins örfáa hljóðfæraleikara eftir. Mér fannst mikilvægt að eiga samtal við alla sem hér starfa. Í þeim sam- tölum hefur mér fundist svo frábært að finna hvað metnaðurinn er mikill, bæði hjá fólki persónulega fyrir sínu starfi og líka fyrir hljómsveit- ina í heild sinni og eins hvað fólk metur starfið mikils. Ég held að slíkur metnaður sé ekki sjálfgefinn. Hver einasti hlekkur í starfseminni hér skiptir miklu máli og mér er mikilvægt að eiga í góðu og traustu sambandi við alla.“ Erum öll í sama liði Hvers konar stjórnandi vilt þú vera? Hvaða nálgunarleið telur þú að skili bestum árangri? „Að hlusta á og bera virðingu fyr- ir samstarfsfólki er dýrmætt vega- nesti. Ég finn að það nýtist mér vel að hafa unnið sem hljóðfæraleikari og hafa skilning á því starfi. Við er- um öll í sama liði, viljum öll ná árangri, þróast og bæta okkur. Það er mikilvægt að vera tilbúinn að sinna öllum þeim verkefnum sem upp koma. Þótt ég geri mér fulla grein fyrir að endanlega liggi ábyrgðin hjá mér þá eru mín störf ekki yfir störf annarra hafin.“ Getur þú sagt mér meira frá þeirri stefnumótunarvinnu sem nú er í gangi? „Það var á löngum tíma unnin stefnumótun sem kynnt var fyrir árin 2015-2020. Við erum ekki að kollvarpa neinu frá þeirri stefnu. Mörg af þeim markmiðum sem þar voru sett hafa náðst og við erum því meðal annars að skoða hver næstu markmið verða,“ segir Lára Sóley og rifjar upp að meðal þeirra mark- miða sem sett voru og þegar hafa náðst eru að efla sýnileika hljóm- sveitarinnar bæði hér- og erlendis ásamt því að auka fræðslustarfið. Mælikvarðar af ýmsu tagi „Eitt af því sem huga þarf að við stefnumótun er að setja sér mælan- leg markmið. Það getur verið krefj- andi í listrænu tilliti. Við viljum laða til okkar framúrskarandi einleikara og hljómsveitarstjóra og að okkur verði boðið að taka þátt í virtum tónlistarhátíðum erlendis. Mæli- kvarðarnir geta því verið af ýmsu tagi, enda ekki einboðið hvernig listræn gæði eru metin,“ segir Lára Sóley sem lætur sig dreyma um að nýja stefnumótunin verði kynnt í tengslum við 70 ára afmæli SÍ í mars 2020. Talandi um hljómsveitarstjóra þá langar mig að spyrja um samstarfið við finnska hljómsveitarstjórann Eva Ollikainen sem ráðin hefur ver- ið í stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda SÍ frá næsta hausti þótt hún stjórni tvennum tónleikum í vetur, þeirra á meðal af- mælistónleikunum 5. mars 2020. Hafðir þú aðkomu að þeirri ráðn- ingu? „Já. Reyndar var ráðningarferlið hafið áður en ég tók til starfa, en mitt fyrsta verk í starfi var að klára ferlið og gera samning við Evu Olli- kainen. Þar sem hún er líka ráðin sem listrænn stjórnandi er hún þeg- ar byrjuð að taka þátt í verkefna- valsfundum með okkur, enda eru starfsárin skipulögð með löngum fyrirvara og einleikarar og stjórn- endur bókaðir með góðum fyrir- vara,“ segir Lára Sóley og áréttar að starf sitt felist í að tryggja rammann utan um listræna starf- semi hljómsveitarinnar. „Í því samhengi er samvinna mín við Evu Ollikainen og Árna Heimi Ingólfsson, listrænan ráðgjafa hljómsveitarinnar, mjög mikilvæg. Ég hlakka mjög mikið til að vinna með Evu. Það er ótrúlega skemmti- legt að eiga í samtali við hana. Við eigum margt sameiginlegt í sýn okkar á það hvernig efla megi tón- listarstarfið á Íslandi enn frekar, meðal annars með tilliti til tónsmíða og hljómsveitarstjórnunar,“ segir Lára Sóley og bendir á að Ollikai- nen langi að efla áhuga íslenskra tónlistarnema á því að afla sér menntunar í hljómsveitarstjórn, meðal annars með námskeiðahaldi hérlendis. Verkin að ósekju gleymst Hver er sýn þín þegar kemur að stöðu kynjanna í hópi tónskálda í klassíska tónlistarheiminum? „Mér finnst skipta máli að tón- verk eftir kvenkyns tónskáld heyr- ist,“ segir Lára Sóley og tekur fram að þar deili hún sýn forvera síns. „Hlutur kvenna í hópi tónskálda eykst ekki af sjálfu sér, heldur þarf stöðugt að huga að þessum málum,“ segir Lára Sóley og áréttar að um- ræðan um aukinn hlut kvenna í klassíska tónlistarheiminum verði sífellt meira áberandi í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. „Eftir því sem meðvitundin um þessi mál eykst hefur fólk í auknum mæli farið að skoða eldri tónverk eftir konur og áttað sig á að þetta eru oft á tíðum frábær verk sem að ósekju hafa fallið í gleymskunnar dá,“ segir Lára Sóley og nefnir sem dæmi verk eftir Mariu Antoniu Walpurgis og Önnu Amaliu af Braunschweig-Wolfenbüttel sem flutt voru á barokktónleikum SÍ í október sl. „Verkin voru flutt af því að þetta er góð tónlist – ekki vegna þess hver samdi þau,“ segir Lára Sóley og tekur fram að sterkar fyr- irmyndir eins og Anna Þorvalds- dóttir og Hildur Guðnadóttir muni hafa góð áhrif til framtíðar. Vill efla samstarfið Nú ert þú ráðin til fjögurra ára með möguleika á endurráðningu. Hefurðu sett þér einhver persónu- leg markmið fyrir þann tíma? „Það er mér mikið hjartans mál að við finnum leiðir til þess að sem flestir geti notið góðs af starfsemi hljómsveitarinnar á Íslandi. Ég hef að undanförnu verið að kortleggja tónleikaferðir SÍ innanlands síðustu 20 árin. Ég hefði mikinn áhuga á því að eiga í samtali við aðrar menning- arstofnanir sem eru þjóðarstofnanir um það að við settum okkur sameig- inlega stefnu þegar kemur að heim- sóknum út á land þannig að það verði betri samfella í þessum heim- sóknum,“ segir Lára Sóley og nefn- ir í því samhengi Íslenska dans- flokkinn, Þjóðleikhúsið og Íslensku óperuna. „Mig langar að finna leiðir til að efla samstarfið við tónlistarskólana í landinu og Listaháskóla Íslands, því í mínum huga er mjög mikilvægt að búa til tengslin við hljóðfæranema snemma. Ég trúi því að slíkt samtal og samstarf muni efla starfið á báða vegu,“ segir Lára Sóley og nefnir því næst alþjóðlega stöðu SÍ. „Tónleikaferðir eru mikilvægar fyrir hljómsveitina sem fær tæki- færi til að leika í ólíkum sölum og leika sama prógrammið nokkrum sinnum á stuttum tíma. Þetta er lærdómsríkt ferli fyrir hljómsveit. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir SÍ, sem er eina hljómsveitin á land- inu með fastráðna hljóðfæraleikara, að fá tækifæri til samanburðar, fá gagnrýni að utan og ekki síst bera hróður íslenskrar menningar á er- lendri grundu,“ segir Lára Sóley og tekur fram að það hafi verið ánægjulegt í nýlegri tónleikaferð til Austurríkis og Þýskalands að vera með íslensk verk í farteskinu sem og íslenskan hljómsveitarstjóra og einleikara. „Miðað við viðbrögðin sem við höfum fengið má draga þá ályktun að eftirspurnin eftir íslenskri tónlist og menningu sé að aukast.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Eftirspurn „Miðað við viðbrögðin sem við höfum fengið má draga þá ályktun að eftirspurnin eftir íslenskri tónlist og menningu sé að aukast,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. „Í góðum tengslum við þjóðina“  „Þetta er draumastarf,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands  Segir það sitt hjartans mál að sem flestir geti notið góðs af starfsemi hljómsveitarinnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.