Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
VATN, HÚSASKJÓL
OG BETRI HEILSA
MEÐ ÞINNI HJÁLP!
•Valgreiðsla í heimabanka: 2.500 krónur
•Söfnunarsími 907 2003: 2.500 krónur
•Framlag að eigin vali á framlag.is
• Söfnunarreikningur 0334-26-50886
kennitala 450670-0499 HJÁLP TIL SJÁLFSHJÁLPAR
Alþjóðlegt hjálparstarf kirkna – Action by Churches Together
Væntanlega eru
flestir landsmenn sam-
mála því að nauðsyn-
legt sé að vera með öfl-
uga og starfsreynda
lögreglu í landinu til að
gæta öryggis og til að
sporna við afbrotum,
slysum o.fl.
Til að hafa stöðu-
leika þar á er nauðsyn-
legt að bæta launakjör
lögreglumanna.
Annað kallar á
brotthvarf starfs-
reyndra lögreglu-
manna úr starfi sem er
dýrt fyrir stjórnvöld
og slæmt fyrir fólkið í
landinu og þá sem
sækja okkur heim.
Álag á lög-
reglumenn er yfirleitt
mikið og fer vaxandi.
Grunnlaun lögreglu-
manna á sólahring-
svöktum eftir há-
skólanám í
lögreglufræðum eru
359 þúsund.
Það segir sína sögu um launa-
umhverfið, því launin þokast lítið upp
með starfsárunum.
Lögreglumenn í B-sjóði LSR sem
sinna útkallsvöktum nætur sem
daga, alla daga ársins, fá ekki eft-
irlaun af yfirvinnu né álagsgreiðslum
samanber lögreglumenn sem eru í A-
sjóði LSR.
Þarna virðast mistök hafa verið
gerð varðandi framlag í LSR við upp-
stokkun á sjóðnum á sínum tíma.
Yfir- og aðstoðaryfirlögregluþjón-
ar í B-sjóði LSR sem starfa hjá RLS
og víðar hafa gert samkomulag um
að föst yfirvinna þeirra verði færð inn
í grunnlaun samanber fyrra sam-
komulag um álagsgreiðslur (ekki er
um launahækkun að ræða við þessa
breytingu) til að færa eftirlaunarétt-
indin nær þeim sem eru í A-sjóði
LSR.
Aðrir lögreglumenn í B-sjóði LSR
vænta þess að samskonar sam-
komulag verði gert við þá, annað
væri hrópandi mismunun á jafnræði
til eftirlauna.
Ekki er um stóran hóp að ræða,
þ.e. lögreglumenn sem
lagt hafa á sig vinnu
nætur sem helgar til
fjölda ára.
Ljóst er að ungir lög-
reglumenn sem aðrir
munu ekki sætta sig við
þá láglaunastefnu sem
ríkt hefur til grunnlauna
hjá stéttinni og eru jafn-
vel tilbúnari en áður var
að breyta um starf.
Þeir sem þekkja til
uppsagna í stéttinni
vilja starfsfélögum sín-
um ekki það aukaálag
sem slíku fylgir í krefj-
andi starfi.
Það er dýrt fyrir ríkið
að mennta og þjálfa upp
lögreglumenn og kallar
á slakari þjónustu við
borgarana ef reyndir
lögreglumenn eru að
hverfa úr starfi vegna
lélegra launa og álags.
Almennt voru lög-
reglumenn ósáttir með
síðasta kjarasamning,
t.d. vaktavinnumenn.
Lögreglunámið er
komið á háskólastig sem
samninganefnd ríkisins benti gjarn-
an á að þyrfti að koma til svo hægt
væri að bæta grunnlaun lögreglu-
manna.
Vegna þess að minna er um starfs-
þjálfun í núverandi námi, þá lendir sú
þjálfun í meira mæli en áður var á
þeim lögreglumönnum sem fyrir eru
og hafa stundað fjölbreytt nám í
LSR, auk þess sótt fjölda námskeiða
varðandi starfið.
Kjarasamningur lögreglumanna
var laus 31. mars sl., en lítið hefur
gengið í samningaviðræðum til þessa.
Vonandi gengur samninganefnd
ríkisins sem og stjórnvöld í frekari
framgang á samningagerðinni sem
fyrst, þ.e. komi til móts við kröfur LL
til bættra grunnlauna lögreglumanna
og fleiri þátta sem nauðsynlegt er að
bæta úr í launa- og starfsumhverfi
þeirra.
Treysti ríkisstjórn og viðkomandi
ráðherrum til að taka undir rétt-
mætar og þarfar kröfur LL og leiða
heildarmálið til lykta sem fyrst.
Það er full þörf á því.
Þjóðin þarf á starfs-
reyndum lögreglu-
mönnum að halda
Eftir Ómar G.
Jónsson
Ómar G. Jónsson
» Lögreglu-
menn í B-
sjóði LSR
vænta þess að
samskonar sam-
komulag verði
gert við þá, ann-
að væri hróp-
andi mismunun
á réttindum til
eftirlauna.
Höfundur er fulltrúi.
Það bar til í muggunni að jólaball var
haldið í safnaðarheimilinu.
Jólasveinninn renndi í hlað, vatt sér
út um dyrnar og … brak! … buxurnar
höfðu rifnað.
Siggi kom þar að og benti með þum-
alputta á rifnu buxurnar og sagði:
„Mamma á saumavél og býr í númer
37.“
Það var hræddur lítill jólasveinn sem
gekk niður götuna og bankaði upp á.
Þar sat hann í miðjum sauma-
skapnum og reyndi að róa sig – en
það er oft erfitt að róa sig á sterku
kaffi.
Samt fór það svo, eftir ástarþakkir,
faðmlag og knús, að jólasveinninn
gekk til baka glaður í bragði.
En þegar pabbi Sigga kom sá hann
að safnaðarheimilið ljómaði því að
börnin voru glöð.
Gísli Magnússon.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Jólasaga
Jól Jólasveinninn er glaður í bragði.
Morgunblaðið/Frikki