Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2016, Blaðsíða 18
2.4 Nafnliðir með veðurfarssögnum
Þrátt fyrir að veðurfarssagnir í nútímamáli séu alla jafna stakar má einnig
finna með þeim nafnliði, eins og leit á veraldarvefnum og Tímarit.is sýnir.
Leit okkar náði yfir þær sagnir sem tilgreindar voru í (3)–(4), þ.e. birta,
dimma, drífa, fenna, frysta, hlána, hlýna, hvessa, kólna, lygna, lýsa, lægja,
myrkva, rigna, rökkva, skyggja, snjóa og þiðna. Í töflu 1 getur að líta yfirlit
yfir fall nafnliða með þessum sögnum í nútímamáli. Þar sem sagnirnar
eru af ólíkum toga skiptum við þeim upp í nokkra undirflokka eftir
merkingu. Flokkarnir eru: úrkoma, vindur, fasabreyting (t.d. umhleyp-
ingar) og birtustig.
Tafla 1: Nafnliðir með veðurfarssögnum í nútímamáli.
Eins og sjá má er fallanotkun breytileg eftir því hvaða sagnir eiga í hlut.
Ákveðnar sagnir taka aðeins með sér nafnliði í nefnifalli en aðrar í þolfalli.
Í sumum tilvikum koma fram víxl á milli þolfalls og nefnifalls; það á eink-
um við sagnir sem tákna breytingu á vindi. Aðeins sagnirnar rigna og snjóa
koma fyrir með þágufalli. Vert er að taka fram að allar sagnirnar sem
sýnd ar eru í töflu 1 geta staðið án nafnliðar og raunar koma tvær þeirra
(frysta og myrkva) ekki fyrir með nafnlið.
Fall nafnliða með veðurfarssögnum ræðst iðulega af orðmyndun sagn-
Sigríður Sæunn Sigurðardóttir og Þórhallur Eyþórsson18
Nf Þf Þgf Nf Þf Þgf
drífa x x frysta
fenna x hlána x
rigna x x (hlýna) x
snjóa x kólna x
þiðna x
blása x x birta x x
hvessa x x dimma x x
lygna x x lýsa x
lægja x x myrkva
rökkva x
(skyggja) x
bi
rt
us
tig
fa
sa
br
ey
tin
g
vi
nd
ur
úr
ko
m
a