Gríma - 24.10.1932, Síða 6
4 ÞATTUR AF HALLDÓRI KRÖYER
Jóhann Kröyer vann sér það álit sem verzlunar-
maður, að nokkru eftir að konungsverzlunin var lögð
niður, varð hann verzlunarstjóri dönsku selstöðu-
verzlunarinnar á Siglufirði. Því starfi gegndi hann i
8 ár. Aflaði hann sér svo mikilla vinsælda og álits,
að hann var skipaður hreppstjóri Hvanneyrarhrepps;
hélt hann því starfi um 80 ár og bjó þá jafnan í
Höfn. Síðar mun hann hafa flutt inn til Eyjafjarðar
og búið á Stokkahlöðum, en þá hefur hann verið
kominn á efri ár.
2. Kámsár Halldórs Kröyers.
Halldór Jóhannsson Kröyer var fæddur árið 1808,
og ólst hann upp hjá föður sínum, þar til er hann
kom honum í skóla á Bessastöðum. Þótti Halldór efn-
ismaður. Hann var gáfulegur og gervilegur í sjón,
meira en meðalmaður á hæð, hafði dökkblá, gáfuleg
augu, lítið skegg órakað; stórleitur var hann nokk-
uð og hafði fullan og karlmannlegan, skýran róm.
Hann var námsmaður ágætur, mælskur með afbrigð-
um, sérstaklega þó ef honum rann í skap, kjarnyrt-
ur, en stórorður oft og blótsamur í viðræðum, en
venjulega fátalaður. Halldór lauk stúdentsprófi við
Bessastaðaskóla með góðri einkunn vorið 1830. Gerð-
ist hann þá skrifari hjá Bjama Thorarensen amt-
manni í þrjú ár. Þá var sýslumaður i Þingeyjarsýslu
Þórður Björnsson kansellíráð. Hann þótti mesti laga-
maður af sýslumönnum í Norðlendingafjórðungi á
sinni tíð, og þar eftir í öllum embættisverkum og
sýslustjórn. Hann andaðist 11. febrúar 1834. Setti
amtmaður þá Halldór Kröyer til að gegna sýslu-
mannsstörfum í Þingeyjarsýslu, og gegndi hann því
starfi í nálega eitt ár, þar til er Sigfús Skúlason var