Gríma - 01.09.1943, Side 16

Gríma - 01.09.1943, Side 16
14 SAGNIR UM SÉRA MAGNÚS Á TJÖRN [Grima Daginn eftir, þá er prestur ætlar út að ganga, er Finnur þar enn kominn og situr á bæjarþröskuldi og sér inn. Segir hann við prest, er liann sér hann og áður hann heilsar honum: „Hér sit eg kyrr, þótt byrgist bær í biksvörtum eldhúsreyk, þangað til eg er orðinn ær og ásján mín gjörist bleik." Þá tók prestur fram í og sagði: „Horfnar eru þér heillir þær, sem hafðir í sinnisleik, út hjá þegar þú gekkst í gær grár eins og krókasteik." Ekki áttust þeir meira við í það skipti, því að Finnur tafði eigi lengur, en haft var það eftir presti, að Finnur mundi hafa ætlað sér að gjöra síðara hluta vísunnar líka og láta hann verða sér til meins, þótt það færist fyrir. g. Séra Magnús, Þórarinn sýslumaður og sendingin. Þess er getið, að þá er séra Magnús var skrifari hjá Þórarni sýslumanni á Grund í Eyjafirði, komu þeir sýslumaður eitt sinn neðan úr Akureyrarkaupstað og voru komnir fram á leið; þá segir sýslumaður Magnúsi (og sló um leið miklum ótta yfir liann), að maður nokkur, Brandur að nafni, er heima átti að Kotum, vestur í Norðurárdal, hefði heitazt við sig, og mundi það brátt koma í ljós. Biður sýslumaður nú Magnús hjálpar og að hann sýni nú, að liann sé kraftaskáld. Magnús bað hann ókvíðinn vera og segir, að það muni vandalítið verk að sjá fyrir slíku skeyti. — Rétt á eftir

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.