Gríma - 01.09.1943, Blaðsíða 40
38 SNJÓFLÓÐIN í HVANNEYRARHREPPI [Grima
þetta leyti í þjónustu O. Tynes útgerðarmanns á
Siglufirði um tíma, meðan hann var utanlands, ann-
aðist skipaafgreiðslu Björgvinar-félagsins o. fl. Eg
vann í skrifstofu hans við Aðalgötu meginhluta dags-
ins, en oftast var þó lítið að gera þar í illviðrum, svo
að eg fór sjaldnast snemma á morgnana þangað, enda
var eg haltur og átti óhægt um gang. Þenna morgun
fór eg að heiman frá mér, úr Suðurgötu 32, kl. rúm-
lega níu árdegis. Það var kafaófærð út Suðurgötuna
og hríðin svo dirnm, að eigi sá niður fyrir bakkann af
götunni, sem liggur þar eftir bakkabrúninni.
Þar sem hús Baldvins Hallssonar stendur nú (Suð-
urg. 22), stóð þá lítill timburskúr, nefndur Elluskúr í
daglegu tali. Þar bjó Elín Jóhannsdóttir, ekkja Vig-
fúsar Árnasonar frá Teigum, með börnum þeirra hin-
um yngstu. Skúrinn var ekki stærri en það, að þar var
eitt íbúðarherbergi og eldhúskytra. Þegar eg kom á
móts við skúrinn, tók eg eftir því, að hann fenntur í
kaf eða því sem næst; sá rétt aðeins á suðurhornið, en
dyr og gluggar komnir í kaf. Hafði skeflt fram af
brekkunni, sem var á bak við kofann, og skaflinn lagt
rétt yfir hann. Eg stanzaði þarna augnablik og sá þeg-
ar, að nauðsyn bæri til að moka frá skúrnum og
bjarga fólkinu þaðan. Eg vissi þá ekki, að fólkið hafði
skriðið út um gluggann, áður en hann var fenntur í
kaf. — Meðan eg stóð þarna, rofaði til lítið eitt, svo að
eg sá, — en þó óglöggt, — niður á Tynesbryggjurnar,
sem voru þarna beint niður undan. Sá eg þar nokkra
menn vera að hagræða vélbát við bryggjuna og sýnd-
ist mér hann vera eitthvað brotinn. Þar áttu að vera
bundnir tveir uppskipunarbátar, sem Tynes átti ,og
höfðu þeir verið þar óskemmdir kvöldið áður, en nti
sá eg ekki nema annan þeirra. Eg brauzt því gegnum