Gríma - 01.09.1943, Blaðsíða 43
Gríma] SNJÓFLÓÐIN í HVANNEYRARHREPPI 41
hj'á, bjuggu nú tvær f jölskyldur, Lars Sæther með konu
sinni, Luise, og hafði hann umsjón á vetrum með
verksmiðjunni og hafði búið þarna í nokkur ár í
skrifstofuhúsi norður af verksmiðjunni. Hin fjölskyld-
an var Friðbjörn Jónsson og kona hans, Guðrún Jóns-
dóttir Dagssonar. Með þeim var fóstursonur þeirra
ungur. Bjuggu þau í verkafólkshúsi allstóru, sem
verksmiðjan hafði látið reisa austan við verksmiðjuna.
Var húsið stokkað upp úr tvíplægðum plönkum, ram-
gert og vandað. — Evangersverksmiðjan stóð í Staðar-
hólslandi og sunnan við túnið þar, en þá jörð átti þá
Chr. Havsteen, áður forstjóri Gránufélagsins.
Þegar þetta gerðist, bjó á Staðarhóli Sigurhjörtur
Bergsson, bróðir Páls Bergssonar í Hrísey, og kona
hans, Sigríður Sigurðardóttir bónda í Skarðdal, Gunn-
laugssonar. I Neðri-Skútu bjó Einar Hermannsson
með konu sinni, Kristínu Gísladóttur. Þessi hjón
hvorttveggja eru enn á lífi í Siglufirði. í tómthúsbýli
niðri á sjávarbakkanum við Skútusjóinn bjó Benedikt
Gabríel Jónsson. Hann var ættaður af Vestfjörðum.
Kona hans var Guðrún Guðmundsdóttir frá Bakka í
Austurfljótum, Jóhannssonar. Hjá þeim voru tvær
dætur þeirra á barnsaldri. í Efri-Skútu bjó Jón Frið-
riksson og kona hans, Sigríður dóttir Friðbjarnar og
Guðrúnar, sem fyrr voru nefnd. Suður við Skútuána
stóðu tvö tómthúsbýli, Árbakki rétt ofan við brúna og
varaði Evanger, áður en hann reisti verksmiðjuna. Frá þessu snjóflóði
segir Grímseyjarannáll (II. b., bls. 126) þannig: „23. des. 1839 hljóp
snjóflóð fyrir sunnan Staðarhól í Siglufirði ofan í sjó og yfir fjörðinn,
sem er hér um bil 400 faðmar á breidd og 20 faðma djúpur, og ruddi
það sjónum undan sér á land upp fyrir framan kaupstaðarhúsin,
losaði um 7 skip á hvolfum, stór og smá, og skemmdi eða braut þau
meira og minna.