Gríma - 01.09.1943, Side 50

Gríma - 01.09.1943, Side 50
48 SNJÓFLÓÐIN í HVANNEYRARHREITI [Gríma Einars bónda, brotnað, og lá þekjan á brotunum yfir brjóst Einars. Hafði bringubeinið nrarizt mjög undan þunganum og gengið inn, og hefur Einar aldrei orðið samur maður að heilsu eftir. Eg fékk nú þarna skýringu á því, hvers vegna Guð- mundur Skarphéðinsson hafði talið, að allt Neðri- Skútu-fólkið hefði farizt, en að því svo síðar varð bjargað. Flokkur sá, sem með Guðmundi fór, sá að baðstofan og allur bærinn var horfinn. Töldu þeir víst, að annað tveggja hefði fólkið allt kafnað strax, eða þá að allt liefði sópazt burtu með flóðinu og út í sjó, því að ekki var auðvelt að greina, hvað burt hafði sópazt og hvað eftir orðið af húsunum, þar sem allt var í kafi undir snjódyngjunni þarna í jaðri flóðsins. Þeir liöfðu haft með sér nokkrar skóílur og mokað í bað- stofurústirnar. Heyrði fólkið moksturinn og manna- rnálið. En þeir mokuðu eigi nógu djúpt. Varð það fólkinu hin þyngsta raun, er það heyrði þá hætta og ganga burtu, og missti það þá alla von um björgun. — Þegar leitarmennirnir komu niður á Skútugrand- ann, gengu fjórir þeirra síðastir; voru það Dúi Stef- ánsson, Björn Jóhannsson, Even Johansen, norskur maður, sem nú býr í Ósló, og Sveinn Jóhannesson. — Allt í einu stingur Björn fótum við og segir: „Eg sný við. Það er óafsakanlegt að fara svona heim. Það er ekki búið að leita nóg þarna í Skútu'1.1) Hinir féllust strax á það að snúa aftur með Birni, en aðrir leitar- manna voru komnir nokkru lengra, og náðu þeir ekki að kalla til þeirra, en þeir Árbakka- og Landamóta- menn fóru með þeim aftur út eftir. Þeir byrjuðu svo strax að grafa niður á baðstofuþekjuna og liöfðu eigi i) Sögn þessi er orðrétt eftir Dúa heitnum Stcfánssyni.

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.