Gríma - 01.09.1943, Side 62
60
SNJÖFLÓÐIN í HVANNEYRARHREPPI
[Gríma
af bænum, og náði því þvert yfir dalinn og upp í hlíð-
ina að sunnan. Þar hafði það breytt stefnu og runnið
fram úr dalsmynninu sunnanverðu, fram yfir lágan
háls eða hóla, sem voru upp undan bænum, og þaðan
niður yfir bæinn, niður túnið og móana fyrir neðan
það, niður undir sjávarbakkana, en staðnæmzt þar og
eigi náð að renna lengra. — Eigi varð með vissu ákveð-
ið, hvenær snjóflóðið hefði fallið, en talsverðar líkur
þóttu benda til þess, að það hefði verið á sama tíma
og snjóflóðið úr Skollaskál. Er það og eigi ólíklegt,
því að loftþrýstingur hefir orðið geysimikill af snjó-
flóðum þessum hvoru fyrir sig og hlotið að verka lang-
ar leiðir, en það er staðreynd, að snjóflóð fara oft af
stað við snöggar loftsveiflur, t. d. við það, ef skotið er
af byssu.
Á Engidal bjó, er slys þetta varð, Margrét Péturs-
dóttir, ekkja Garibalda Einarssonar, er þar bjó áður.
Með henni bjó þar tengdasonur hennar, Gísli Gott-
skálksson, nýkvæntur Önnu Garibaldadóttur; fyrir-
vinna hjá Margrétu var Pétur sonur hennar, fulltíða
og liinn efnilegasti maður. Auk þess voru með Mar-
grétu Pálína dóttir hennar, móðir Margrétar, Halldóra
Guðmundsdóttir, 76 ára gömul og unglingsstúlka,
Kristólína Kristinsdóttir. — Anna Garibaldadóttir
var komin langt á leið að fyrsta barni þeirra Gísla. —
Allt þetta fólk fórst í snjóflóðinu á Engidal.
Þrír synir Margrétar voru þetta vor á hákarlaskip-
inu Stathav með Ásgrími Einarssyni, föðurbróður sín-
um, en það voru þeir Jóhann, Hallur og Ásgrímur;
skipið var þá statt á ísafirði. Þar var einnig fjórði
bróðirinn, Einar. Voru þeir Hallur og Ásgrímur heim-
ilismenn í Engidal. Tvö önnur börn Margrétar voru
í skóla, þau Óskar og Indíana.