Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Blaðsíða 3
/
Emil Thóroddsen framkv.stj. G.I.:
GIGTARS KÖMMIN
s
Inýlegri grein í læknablaðinu gera
þeir Sigurður Thorlacius, Sig-
urjón Stefánsson og Stefán
Olafsson grein fyrir athugun á um-
fangi og einkennum örorku á Islandi.
Þar kemur fram
að stoðkerfis-
vandi (gigt) er í
20% tilfella helsta
sj úkdómsgreining
öryrkja. Þessi
niðurstaða kemur
okkur í Gigtar-
félaginu ekki á
óvart, því í lands-
áætlun um gigt-
arvarnir frá árinu
1995, sem gefin var út af heilbrigðis-
ráðuneytinu, var sömu tölu haldið á
lofti. Og þá vitum við að um fjórðung-
ur heimsókna á heilsugæslustöðvar er
vegna stoðkerfisvanda.
Ég fagna framtaki þeirra félaga því
nú eru haldbetri rök fengin fyrir þess-
ari staðreynd, en oft á undanförnum
árum þegar ég hef haldið þessum
upplýsingum á lofti hef ég fengið
viðbrögð efasemda og vantrúar. Sum-
ir sögðu þetta rugl og aðrir helltu úr
eyrunum og ákváðu að velta þessu
ekki frekar fyrir sér.
í stuttu máli ætla ég að illskast út í
þá staðreynd að það eru allt of margir
sem eiga erfitt með að skilja að gigtar-
sjúkdómar leiða til alvarlegrar fötl-
unar og örorku. Ekki í öllum tilfellum,
langt í frá. En skeytingarleysi, að-
gerðaleysi og sinnuleysi eru verstu
óvinir gigtarinnar. Ekki er nóg með
að fólk virðist eiga erfitt með að skilja
gigtarvandann, heldur neitar fólk því
einfaldlega. Um er að ræða fólk meðal
fagaðila í heilbrigðisgeiranum, meðal
ráðamanna, í röðum gigtarfólks og
meðal almennings.
s
Isamantekt unr Norræna gigtarárið
1992 kom fram að gigtarsjúk-
dómar eru ekki forgangsverkefni í
heilbrigðismálum. Fátt hefur breyst
frá þeim tíma. Sýnt hefur verið fram
á að fagfólk í norskri heilbrigðis-
þjónustu og læknastúdentar forgangs-
raða gigtarsjúkdómum lágt. Þá hefur
einnig verið sýnt fram á að gigt-
arsjúklingar þar í landi fá lakasta með-
ferðartilboðið í samanburði við aðra
valda hópa fólks með langvinna sjúk-
dóma. Engar slíkar rannsóknir eru til
um stöðu þessara mála hér á landi, en
líkur benda til þess að hér ríki sama
eining andans, því hvar er skorið fyrst
niður þegar þrengir að efnahag á
sjúkrahúsunum. A gigtardeildunum.
í landsáætlun um gigtarvarnir sem
gefin var út 1995 var gerð heiðarleg
tilraun til þess að meta stöðu heil-
brigðis- og félagslegrar þjónustu við
gigtsjúka og komið með tillögur til
úrbóta. Það sem gengið hefur eftir er
að stuðningur við gigtarrannsóknir í
landinu hefur verið aukinn og heil-
brigðisráðuneyti komið þar að mál-
um, en ekki minni heiður af því máli
á þó Lions-hreyfingin í landinu sem
studdi Gigtarfélagið myndarlega við
það brýna verkefni að koma rann-
sóknarstofu á laggirnar. Nám í iðju-
þjálfun hefur verið komið á laggirnar
á Akureyri og verður það mikil hags-
bót fyrir gigtarfólk ef vægi iðju-
þjálfunar í almennri heilbrigðisþjón-
ustu verður aukið.
Hvað varðar aðra þætti sem lúta
að forvarna- og fræðslustarfi,
bættri þjónustu við gigtarfólk á
landsbyggðinni, bæklunarskurð-
lækningar, félagsleg réttindi og
tryggingamál, þá er setið við sama
borð og áður. Ef ekki lakara í nokkrum
tilfellum.
Hver hefur þróunin orðið með
framkvæmdasjóð fatlaðra svo dæmi
sé tekið? Hann er orðinn að fram-
lengdum armi félagsmálaráðuneytis
sem skilgreinir hugtakið fatlaður með
öðrum hætti og þrengri en almennt
gerist. Sú var tíð að framkvæmdafé
til fatlaðra var ærin upphæð í heil-
brigðisráðuneyti, en ríksstjórnin
ákvað í niðurskurði að framkvæmdafé
til þessa málaílokks yrði nær einungis
félagsmálaráðuneytis megin. Sem
þýtt hefur að framkvæmdir í þágu
stórra fötlunarhópa eru út í kuldanum
og það sorglega er að í mörgum til-
fellum er um framkvæmdir að ræða
sem spara hinu opinbera rekstrar-
útgjöld í málaflokknum en íþyngja
ekki. Ég auglýsi eftir heildarsýn í
málefnum fatlaðra, einkum og sér í
lagi í ljósi þeirra breytinga sem mála-
flokkurinn er að ganga í gegnum.
Hvar stendur endurskoðun á almanna-
tryggingalögunum?
Gigtarfólk margt dregur úr hömlu
að leita úrræða við sínum stoðkerfis-
vanda. Sættir sig við loðin svör um
sjúkdóm sinn og úrræðaleysi. Stað-
reyndin er að flesta gigt má bæta og
því fyrr sem hún er meðhöndluð næst
betri árangur. Reynslan sýnir einnig
SJÁ NÆSTU SÍÐU
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
3