Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Blaðsíða 44
Svipmynd frá hátíðinni.
AF AFMÆLUM
SÍBS OG NHL
Dagana 21. og 22. ágúst sl. var
sannarlega mikið um að vera
á vettvangi SÍBS. Hingað
voru komnir góðir gestir frá systur-
félögum SIBS á hinum Norðurlönd-
unum þeirra erinda að halda hér
vinnufund um verkefnin framundan
svo og ekki síður að halda upp á 50
ára afmæli Norrænu hjarta- og
lungnasamtakanna sem einmitt voru
stofnuð á Reykjalundi fyrir hálfri öld.
Norrænu gestirnir munu hafa verið
um 30.
En ekki aðeins var aldarhelmingi
norræns samstarfs fagnað heldur
einnig 60 ára afmæli SÍBS sem vel
að merkja stendur fyrir Samband
íslenskra berkla- og brjóstholssjúkl-
inga, þó flestir noti skammstöfunina
og hana þekkir þjóðin að afar góðu
einu.
Vinnufundurinn sem fjallaði sér-
staklega um baltnesku löndin: Eist-
land, Lettland og Litháen og norræna
aðstoð við sjúklingasamtök þar allra
helst var á föstudag og blaðamanna-
fundur var svo á laugardag. Þar fengu
menn mikinn fróðleik um geigvæn-
lega útbreiðslu berkla í heiminum sem
nefndir voru sem “verdens katastrofe”
eða heimsógæfa þar sem verst er
ástandið í Afríku og Asíu en einnig í
Sovétríkjunum gömlu þ.m.t. baltn-
esku ríkin.
Árleg dánartíðni af völdum berkla
áætluð um 3 milljónir manna, mjög
verulegur hluti böm.
Norræna ráðherranefndin hefur
stutt vel við bakið á norrænu
samtökunum varðandi aðstoð á
ýmsan veg við baltnesku löndin m.a.
rannsóknarverkefni og stuðning við
sjúklingasamtök í þessum löndum.
Noregur, Svíþjóð og Finnland eru
með hvert sitt landið til hjálpar og
ísland og Danmörk leggja sitt lið
einnig með ágætum. Við fengum
einnig mikinn og mætan fróðleik um
langvinna lungnaþembu sem er býsna
algeng á Norðurlöndunum eða um
10% allra íbúa sem þar af þjást.
Ut hafa verið gefnar norrænar
viðmiðunarreglur fyrir endurhæfingu
fólks með langvinna lungnateppu og
er fyrir þeim gerð grein annars staðar.
Stærsta ástæðan fyrir lungnaþemb-
unni eru reykingarnar. Lögð er því
áhersla á það að 1% af tóbaksgróð-
anum skili sér beint til tóbaksvarna,
enda væri það drjúg upphæð. Um leið
var bent á hve gífurlegt heilbrigð-
isvandamál reykingar einnig væru
hvað t.d. bæði hjartasjúkdóma og
krabbamein snerti.
Fyrir samfélagið í heild og þjóð-
irnar yrði því slíkur skattur fljótur að
skila sér í minni kostnaði við heil-
brigðiskerfið og arðurinn ótvíræður til
framtíðar.
Haukur Þórðarson form. SIBS
sagði SIBS mundu verða með í átak-
inu í Eystrasaltslöndunum af fremsta
megni.
Hann benti einnig á að allir útlend-
ingar sem hér settust að yrðu að fara í
berklaskoðun og að því mikil vörn að
sjálfsögðu hér.
Haukur upplýsti einnig að Islend-
ingar væru með allnokkurt forskot
varðandi lungnaþembusjúklinga þar
sem í meira en 15 ár hefði farið fram
á Reykjalundi markviss og skipulögð
endurhæfing fyrir þessa sjúklinga.
Af kynnum sínum við marga þeirra
veit ritstjóri hversu einstaklega vel
hefur verið unnið að þessari
endurhæfingu.
Eftir hádegi á laugardag var svo
haldin vegleg afmælishátíð í
Súlnasal Hótel Sögu þar sem þessum
tveim fyrrnefndu stórafmælum var
44