Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Blaðsíða 17
Formenn aðildarfélaga
• • /
Oryrkjabandalags Islands
Alnæmissamtökin:
Blindrafélagið:
Blindravinafélagið:
Félag aðstandenda
Alzheimersjúkl:
Félag heyrnarlausra:
Félag nýrnasjúkra:
Foreldra og styrktarfélag
heymardaufra:
Foreldrafélag misþroska bama:
Geðhjálp:
Geðverndarfélag Islands:
Gigtarfélag Islands:
Heyrnarhjálp:
LAUF:
MG-félag íslands:
MND-félag íslands:
MS-félag Islands:
Paikinsonsamtökin:
Samtök sykursjúkra:
SPOEX:
SÍBS:
Sjálfsbjörg l.s.f.:
Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra
Styrktarfélag vangefinna:
Umsjónarfélag einhverfra:
Ingi Rafn Hauksson
Helgi Hjörvar
Helga Eysteinsdóttir
María Jónsdóttir
Berglind Stefánsdóttir
Dagfríður Halldórsdóttir
Málfríður Gunnarsdóttir
Matthías Kristiansen
Pétur Hauksson
Tómas Zoéga
Einar S. Ingólfsson
Guðjón Ingvi Stefánsson
Astrid Kofoed-Hansen
Ólöf S. Eysteinsdóttir
Rafn R. Jónsson
Vilborg Traustadóttir
Nína Hjaltadóttir
Sigurður Viggósson
Helgi Jóhannesson
Haukur Þórðarson
Arnór Pétursson
Þórir Þorvarðarson
Hafliði Hjartarson
Astrós Sverrisdóttir
Hlerað í hornum
Kaupmaður einn var að reka erindi í
borginni en sjálfur bjó hann austur á
landi. Þegar heildsalinn sem hann átti
erindi við heyrði frá hvaða stað hann
var, fór hann að fjargviðrast yfir því
að á sama stað væru bræður tveir með
fyrirtæki sem erfiðir væru með öll
skil. Honum sagðist svo frá að þegar
hann væri að hringja og rukka þá
vísuðu þeir alltaf hvor á annan, Jens
á Pétur og Pétur á Jens.
Þá skellti heimamaður upp úr því
fyrirtækiseigandinn var aðeins einn
og hét Jens Pétur.
* * * *
Hjónin sátu inni í stofu, þegar dyra-
bjöllunni var hringt og eiginmaðurinn
fór til dyra. Eiginkonan heyrði að
hann sagði: “Nei, sæl tengdamamma,
af hverju gengurðu ekki heldur heim
til þín en standa hér á tröppunum í
ausandi rigningu?”
* * * *
Nágrannakonan kom til prestsins síns
sem þótti oft nokkuð svarakaldur.
Hún fór að fjargviðrast yfir heilsufari
bónda síns og rausaði lengi og oft um
það að hann gæti hvorki setið, staðið
eða legið. Þá leiddist presti og hann
spurði: “Hefurðu nokkuð prófað að
hengja hann upp?”
* * * *
Svohljóðandi útvarpsfrétt hljómaði
nýlega: “f nótt kviknaði í bíl á Hellis-
heiði, það var fallhlífarstökkvari sem
sá eldinn fyrst. Lögreglan hefur ekki
haft upp á þeim sem kveikti í en hefur
fundið eigandann sem var númers-
laus.”
* * * *
Helgi litli spurði Herdísi móður sína
að því hvernig augu hennar væru á
litinn og hún svaraði því að þau væru
brún. “Og hvernig eru mín augu á
litinn?,” spurði Helgi litli. “Þau eru
líka brún”, svaraði móðirin. “Af
hverju ætli augun séu brún í okkur
báðum? Er það kannski af því að við
eigum bæði sama stafinn”, spurði
drengur þá.
Ásgerður
Ingimarsdóttir:
Vinarkveðja
Vinarkveðju með
vorblænum sendi
veröldin er sem ný.
Himinninn blár og hafið
blárra
hylur allt slikja hlý.
Lækirnir fossa, lindirnar
niða
lömbin hoppa um tún.
Fuglarnir syngja- fannirnar
bráðna
af fjallsins skörpu brún.
Úr þessari veröld vil ég nú
kveða
vinir einn glaðan brag.
Vináttu þakka sem veitt
mér hafið
og vermt hefur margan
dag.
Megi hinn vinsami vorsins
andi
veita ykkur gleði og yl.
Hundrað rósir frá
hamingjulandi
handa ykkur ég vil.
Á.I.
Þessa fallegu kveðju sendi
Ásgerður hingað á vordögum
meðyfirskriftinni: Ortáleið
norður Strandir.
Ritstjóri mátti til með að fá
leyfi til birtingar.
Tveir karlar á níræðisaldri voru að
fylgja gömlum vini til grafar en ganga
þurfti upp bratta brekku síðasta
spölinn og báðir orðnir allþrekaðir
þegar upp kom. Þegar athöfnin í
kirkjugarðinum var svo búin segir
annar við hinn. “Ætli taki því nokkuð
fyrir okkur að fara niður aftur?”.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
17