Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Qupperneq 6
TEKISTÁ UM
SKERÐINGARAKVÆÐI
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Eins og komið hefur fram hér í
blaðinu hefur hvorki heil-
brigðisráðherra né umboðs-
manni Alþingis tekist að svara því
hvar í almannatryggingalögum sé að
finna heimild til skerðingar tekju-
tryggingar öryrkja vegna tekna sem
makar þeirra afla sér. I nýjasta áliti
umboðsmanns Alþingis kemur fram
að heimildina sé ekki lengur að finna
í texta laganna og vill hann að Alþingi
taki af skarið um þessa skerðingu -
skerðingu sem hann efast um að geti
talist réttlát eða heppileg. Bent hefur
verið á að ekki sé nóg með að heim-
ildina sé hvergi að finna heldur gangi
skerðingin þvert á ákvæði almanna-
tryggingalaga, stjórnsýslulaga og
stjórnarskrár. Að auki brjóti hún gegn
Guðný Guð-
björnsdóttir
ítrekaði þá
grundvallar-
afstöðu
Kvennalistans
að líta bœri í
auknum mœli á fólk sem
einstaklinga, óháð hjúskaparstöðu.
alþjóðasamningum og mannréttinda-
sáttmálum sem íslensk stjórnvöld hafa
skuldbundið sig til að virða.
x
Istuttu máli snýst málið um það að
gagnstætt því sem viðgengst um
atvinnuleysistryggingar og aðrar
tryggingabætur er tekjutrygging
öryrkja svo háð tekjum maka þeirra
að segja má að ekki sé ætlast til að
þeir séu í hjónabandi eða sambúð með
öðrum en þeim sem efni hafa á að taka
þá algerlega á sitt framfæri. Taki þeir
upp sambúð með heilbrigðum ein-
staklingi missa þeir ekki aðeins heim-
ilisuppbætur heldur byrjar tekjutrygg-
ing þeirra að auki að skerðast um leið
og mánaðartekjur makans fara yfir 40
þúsund krónur, svo eftir stendur
gjarnan grunnlífeyririnn einn, rúmar
15 þúsund krónur á mánuði. Varla þarf
að fara mörgum orðum um hvílík
áhrif þetta hefur á möguleika öryrkja
Svavar Gests-
son: “Það er
ótrúlegt að bera
það fyrir sig að
reglugerð stand-
ist tímans tönn
þó að lögunum
sem voru undir þeirri reglugerð í
upphafi hafi verið breytt.’'’
til sambúðar og hjónabands, enda hafa
bæði prestastefna og umboðsmaður
fatlaðra hjá S.Þ. gert athugasemdir við
þessa meðferð á fólki.
Þótt hljótt hafi farið í fjölmiðlum
hefur hin umdeilda reglugerð
stjórnvalda komið til umræðu á síð-
ustu tveimur þingum. Þann 17. apríl í
fyrra kvaddi Margrét Frímanns-
dóttir sér hljóðs utan dagskrár og
spurði heilbrigðisráðherra: “Hvarí 17.
eða 18. gr. eða öðrum greinum laga
um almannatryggingar telur ráðherr-
ann að heimild sé fyrir því að telja
helming af tekjum maka til tekna líf-
eyrisþega þegar um tekjutryggingu er
að ræða?” I máli Margrétar kom fram
að hún fengi ekki með nokkru móti
séð að umrætt skerðingarákvæði ætti
sér stoð í lögum og væri sú skoðun
sín m.a. studd áliti Arnmundar
Backman hæstaréttarlögmanns. “Svo
raunverulegt dæmi sé tekið um áhrif
þessa ákvæðis,” sagði Margrét, “þá
get ég nefnt einstakling sem er öryrki,
bundinn í hjólastól, hefur tekjutrygg-
ingu, tekjulaus að öðru leyti, á eigin-
konu sem stundar vinnu í frystihúsi
og hefur þar af leiðandi ekki háar
tekjur. Tekjutrygging eiginmannsins
er þó skert sem nemur helmingi tekna
eiginkonunnar.”
í svari til málshefjanda hélt heil-
brigðisráðherra, Ingibjörg Pálma-
dóttir, því fram að umrædd ákvæði
reglugerðarinnar og almannatrygg-
ingalaga hefðu staðið “orðrétt óbreytt
allt frá árinu 1974.” I þessu sambandi
vísaði hún til ákvæðis um svokallaðan
hjónalífeyri, ákvæðis sem hún sagði
að túlkað hefði verið á þann veg að
heimilt væri að beita umræddri skerð-
ingu. Þá vitnaði hún til álits umboðs-
manns Alþingis frá 1988 og sagði:
“Niðurstaða umboðsmanns Alþingis
er sú að reglugerðarheimild almanna-
tryggingalaganna nái til umræddra
tekjutrygginga og þar með að reglu-
Lúðvík Berg-
. 'f vinsson: Svör
heilbrigðisráð-
^ )\ herra fyrir neð
—I an allar hellur.
gerð sama efnis og hér er til urnræðu
ætti sér næga lagastoð.” Ráðherra
sagði að sá möguleiki væri að sjálf-
sögðu opinn að höfða dómsmál. “En
það kæmi trúlega fleirum á óvart en
mér ef óslitin lagaframkvæmd s.l. 25
ár á grundvelli ákvæða sem er orðrétt
óbreytt allan þann tíma verði dæmd
ólögleg.”
Asta R. Jóhannesdóttir kvaddi
sér næst hljóðs og tók undir þá skoðun
málshefjanda að reglugerðin ætti sér
ekki stoð í lögum. “Það er ekkert í
lagagreinunum sem snúa að tekju-
tryggingunni sem heimilar þessa
reglugerð,” sagði Ásta. Þá sagði hún:
“Þetta er niðurlægjandi og brýtur
niður hinn sjúka bæði andlega og oft
líkamlega einnig. Öryrkjum er þarna
6