Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Page 8
Ásta R. Jóhannesdóttir minnti á
að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem
umboðsmaður Alþingis færi þess á leit
við þingið að það tæki á málinu, þessu
skerðingarákvæði sem yfirvöld hefðu
ekki getað rökstutt með vísan til laga
og gengi þvert á þær réttarvenjur sem
giltu um ýmsar aðrar bætur velferð-
arkerfisins, atvinnuleysisbætur, líf-
eyrissjóðsgreiðslur og aðrar trygg-
ingabætur. “Eg minni á,” sagði Ásta,
“að á síðustu prestastefnu var skorað
á Alþingi að leiðrétta þetta ranglæti
sem er vissulega alvarleg atlaga að
hjónaböndum öryrkja.” Þá ítrekaði
hún: “Eg veit persónulega að þessar
reglurhafa sundrað fjölda fjölskyldna
og þetta hefur valdið öryrkjum og
ástvinum þeirra ómældri sorg.”
Einnig sagði hún: “Það er stór hópur
sem býr við þessa ósanngjörnu reglu.
Það er stór hópur fólks sem getur ekki
verið í samvistum við sína nánustu
vegna þess að þeir geta ekki séð sér
farborða ef þeir eru í sambúð og hafa
því neyðst til þess að búa einir.”
Heilbrigðisráðherra, Ingibjörg
Pálmadóttir, sagði að hér væri
um viðamikla breytingartillögu að
hætti: “Varðandi þetta lagaatriði sem
háttvirtur þingmaður hefur gert að
umtalsefni þá byggir sú lagastoð á
gagnkvæmri framfærsluskyldu
hjóna.” Engu að síður kvaðst ráðherra
geta tekið undir það að í mörgum
tilvikum væri reglan ósanngjörn, “en
í öðrum tilvikum, þar sem um háar
tekjur maka er að ræða, tel ég þetta
ekki eins ósanngjarnt.”
Ásta R. Jóhannesdóttir kom þá
aftur upp og sagði: “Eg er ekki sam-
mála hæstvirtum ráðherra um að þetta
sé í lagi hjá þeim sem eiga maka með
háar tekjur. Það er alrangt. Það gerir
það að verkum að einstaklingurinn
fær ekki þá tryggingu sem hann hefur
Ögmundur
Jónasson:
“Þótt það kost-
aði tvöþúsund
milljónir, bœri
að lagaþetta.”
greitt fyrir með sköttunum sínum, eins
og hann fær þegar hann er atvinnu-
laus.”
Margrét Frí-
mannsdóttir
kvaðst trúa því
að þeir ráðherr-
ar sem töluðu
nú um góðœri
œtluðu sér að
nýta það fyrir þá sem minna mœttu
sín, “ekki síst sá flokkur sem fór
hér í kosningar fyrir rúmlega
þremur árum síðan með kjörorðið:
Fólk ífyrirrúmi. ”
ræða. “Ef þessi breytingartillaga yrði
samþykkt svona, án þess að fjármagn
kæmi með og við ætluðum að nota
sömu fjárupphæð og við notum í dag,
þá væri þessi hópur að tapa 50 til 60
milljónum króna.”
Ásta R. Jóhannesdóttir sagði það
rangt hjá ráðherra að fólk myndi fá
minna í sinn hlut ef farið yrði að til-
lögu flutningsmanna og ítrekaði að
reglugerð ráðherra ætti sér ekki stoð í
lögum.
Ingibjörg Pálmadóttir rökstuddi
nú reglugerð sína með svofelldum
Að kvöldi þriðjudagsins 2. júní s.l.
var umræðunni fram haldið.
Margrét Frímannsdóttir rifjaði þá
upp að fyrir ári hefðu rök heilbrigð-
isráðherra verið þau að reglugerðin
ætti sér sömu stoð og hún hefði alltaf
haft, því í lögum hefði ekkert breyst.
Með vísan til álits umboðsmanns
Alþingis og bréfs kjaramálanefndar
ÖBÍ sagði Margrét að þetta fengi ekki
staðist. Kvaðst hún vilja trúa því að
þeir ráðherrar sem nú töluðu um góð-
æri ætluðu sér að nýta hinar auknu
tekjur fyrir þá sem minna mættu sín í
þjóðfélaginu, “ekki síst sá flokkur sem
fór hér í kosningar fyrir rúmlega
þremur árum síðan með kjörorðið:
Fólk í fyrirrúmi.” Síðan spurði hún:
“Hvaða fólk var þar í fyrirrúmi?
Hvaða þjóðfélagshópur var það?”
Margrét rakti í ítarlegu máli hvern-
ig reglugerð ráðherra bryti gegn bæði
íslenskum lögum og alþjóðlegum
skuldbindingum. Auk alþjóðasamn-
inga og mannréttindasáttmála nefndi
hún Meginreglur Sameinuðu þjóð-
anna urn málefni fatlaðra þar sem
segði m.a: “Ekki skyldi dregið úr
tekjutryggingu eða hún felld niður
fyrr en hinn fatlaði - hinn fatlaði, ekki
maki hans heldur hinn fatlaði - er
orðinn fær um að afla sér viðunandi
og öruggra tekna.” Og ennfremur:
“Aðildarrrkin skyldu stuðla að því að
fötluðum sé kleift að taka virkan þátt
í fjölskyldulífi. Þau skyldu tryggja
réttindi fatlaðra til mannlegrar reisnar
og tryggja að fötluðum sé ekki mis-
munað með lögum hvað varðar kyn-
ferðissambönd, hjónaband og
barneignir.”
Næstur til máls tók Ögmundur
Jónasson. Hann bar saman
afstöðu stjórnvalda til öryrkja annars
vegar og fjármagnseigenda hins
vegar: “Og ríkisstjórn sem setur
skattleysismörk fjármagnsgróða hjá
hjónum í 5,9 milljónir refsar öryrkj-
anum sem vogar sér að ganga í hjóna-
band og færir tekjur hans niður úr
í'úmum 63 þúsundum króna í 15 þús-
und krónur. Þetta er að gerast á íslandi
í dag og ég hvet háttvirta alþingis-
rnenn til að fylgjast með réttinda-
baráttu Öryrkjabandalagsins til að
hnekkja þessu ranglæti.”
Þegar Ögmundur hafði rakið af-
Ingibjörg
Pálmadóttir
heilbrigðisráð-
herra varði hina
iimdeildu reglu-
gerð sína, en
kvaðst þó vilja
nota sumarið til að ígrunda sinn
gang gagnvart öryrkjum.
leiðingar hinnar heimildarlausu reglu-
gerðar sagði hann: “Þetta stríðir gegn
heilbrigðri skynsemi. Þetta stríðir
gegn allri sanngirni. Þetta stríðir gegn
mannréttindum og mannréttindabrot
ber að afnema skilyrðislaust og und-
anbragðalaust og það ber að gera
þegar í stað.”
Eftir stutt innlegg frá Ástu R. tók
heilbrigðisráðherra, Ingibjörg
Pálmadóttir, enn til máls. Nú sagði
hún að samkvæmt nýjustu úttekt
Tryggingastofnunar myndi breyting-
artillagan, “ef hún er tekin alveg hrá,”
kosta 360 til 400 milljónir, en áður
hefði verið talið að breyting í þessa
veru myndi spara ríkinu 60 milljónir.
8