Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Side 19
hafi svo farið í og lokið námi í
táknmálsfræði við Háskóla Islands.
Hann á heyrnarlausan dreng sem
missti heym tæplega þriggja ára af
völdum heilahimnubólgu. Þá var
hann byrjaður að tala mjög eðlilega
miðað við aldur, en þrem mánuðum
eftir að heymarleysið tók völdin hætti
hann að tala.
Nú Sæmundur sagðist svo vera að
huga að fullorðinsfræðslunni þ.e.
fyrst og fremst endurmenntunar-
námskeiðum og tómstundanám-
skeiðum. Þau Hafdís sögðust vera í
nánu sambandi við Tómstundaskól-
ann þetta varðandi s.s. áðurhefur ver-
ið getið um hér.
Nú 22. sept. sögðu þau hefjast
námskeið í táknmálskennslu
fyrir heyrnarlausa sjálfa hjá Sam-
skiptamiðstöð. Hafdís minnti á varð-
andi námskeiðin dýrmæta forgöngu
sl. vetur hjá þeim Sólveigu Helgu
Jónasdóttur og Sigurjónu Sigur-
bergsdóttur.
Hafdís sagði það gleðiefni að
daufblindir kæmu nú inn í þetta bæði
varðandi námskeiðin og atvinnu-
málin. í þessu sambandi nefndi hún
gott samstarf Gerðar Sjafnar og Lilju
Þórhallsdóttur hjá Daufblindra-
félaginu. Hafdís sagði að betri og
skýrari skilgreiningar skorti varðandi
daufblinda, m.a. væri daufblint fólk
hér og þar á stofnunum, en vistað þar
vegna annarrar fötlunar s.s. hreyfi-
hömlunar og þroskaheftingar. Þessu
yrði úr að bæta, því mál þeirra snémst
þá um allt aðra fötlun, ráðgjöf öll
misvísandi og þar við bættist svo
skortur á samskiptum, sem eðlilega
skiptu þó öllu.
Hafdís kom því svo að í lokin sem
staðreynd að heyrnarlaust fólk úti á
landi væri að vonum mun verr sett
en hér á þessu svæði, m.a. þá vegna
samskiptaleysis, væri því oft með
meiri og flóknari vandamál og undir
þetta tekurritstjóri sem veit um vanda
þennan.
Þeim Sæmundi og Hafdísi er gott
og gagnlegt spjall þakkað og þeim
alls góðs árnað. Megi árangur vera
sem bestur í baráttu þeirra og annarra
þeirra er þar að koma, baráttu fyrir
betra lífí og lífsskilyrðum heyrnar-
lausum til handa.
H.S.
Vinnusamningar
öryrkj a
Yinnusamningar öryrkja
er heiti bæklings sem
Tryggingastofnun ríkis-
ins hefur gefið út og geymir góðan
fróðleik um þessa vinnusamn-
inga. Allt frá því laga- og reglu-
gerðarbreyting varð á vinnu-
samningum þessurn hefur þetta
verið í umræðunni að þörf væri á
greinargóðum bæklingi og því er
þessu framtaki sérlega fagnað hér
á bæ.
Vinnusamningar öryrkja í
breyttri og bættri mynd eru ekki
margra ára, áður voru þeim settar
svo þröngar skorður bæði hvað
tíma og bætur varðaði að nær
engir nýttu sér möguleikann.
Það voru þau Elísabet Gutt-
ormsdóttir forstöðum. Vinnu-
miðlunar fatlaðra og Arnþór
Helgason þáv. form Öryrkja-
bandalagsins sem einkum beittu
sér hér fyrir breytingunum, svo
samningarnir yrðu aðgengilegir
öryrkjum og þau störfuðu svo í
nefnd á sínum tíma sem lagði fram
nýja skipan mála. I nefndinni áttu
sæti auk þeirra Elísabetar og Arn-
þórs, Jón Sæmundur Sigurjónsson
frá ráðuneyti tryggingamála,
Hilmar Björgvinsson frá lífeyris-
deild TR, Karl Steinar Guðnason
forstjóri TR og undirritaður.
Nýskipan s.s. nefndin lagði til
tók svo gildi og nú eru margir slík-
ir vinnusamningar í gangi, enda fer
skerðing bóta nú eftir sömu reglum
og af öðrum vinnutekjum en áður
féllu bætur alveg niður svo á versta
agnúa eldri skipunar sé minnt.
kki skal farið út í almenna
útlistun hér á fyrirkomu-
laginu þar sem Tryggingastofnun
ríkisins endurgreiðir laun og
launatengd gjöld til viðkomandi
fyrirtækis frá 25-75% eftir starfs-
getu viðkomandi.
Markmiðið að sjálfsögðu það
að fatlaðir einstaklingar hafi
möguleika á að þjálfast til starfa á
Vinnusaraningar
öryrkja
Forsíða bæklingsins.
almennum vinnumarkaði og öðl-
ast reynslu í því starfi er þeir telja
sig helst ráða við.
Bæklingurinn tekur annars á
undirbúningi, mati á vinnugetu og
vinnusamningnum sjálfum. I
vinnu skv. samningi þessum nýt-
ur starfsmaður allra sömu réttinda
og aðrir starfsmenn fyrirtækisins,
starfið getur bæði verið fullt starf
eða hlutastarf, TR tilnefnir um-
sjónaraðila o.s.frv. Reynslan af
þessum vinnusamningum í þessu
formi er afar góð og vonandi að
verðugt framhald verði þar á.
Að ósk Öryrkjabandalags
Islands er nú verið að gera
ákveðna úttekt á vinnusamning-
um þessum í Tryggingastofnun
ríkisins m.a. raunkostnaði TR af
þeim.
En bæklingnum er vel fagnað
og vonandi að menn verði sér úti
um hann.
Hann er m.a. til hér á skrif-
stofu Öryrkjabandalagsins og þar
geta menn fengið hann.
Helgi Seljan.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
19