Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Side 33
Unaðsreitur
við Elliðavatn
Frá vígsluathöfninni.
s
Ifréttum af þingi
Sjálfsbjargar- lands-
sambands fatlaðra hér í
blaðinu kemur fram að
þing samtakanna var
haldið á Siglufirði nú
sakir þess að félagið þar
varð 40 ára á þessu ári, en
það var um leið fyrsta
félag Sjálfsbjargar.
En fleiri eru fertugs-
afmælin því í kjölfarið
átti svo Sjálfsbjörg á
höfuðborgarsvæðinu sitt
40 ára afmæli.
I tilefni afmælisins var
utivistarsvæði félagsins
við Elliðavatn opnað við
hátíðlega athöfn laugar-
daginn 27.júní að við-
stöddu miklu fjölmenni.
Sól var úti sem inni og
fagnaður fjarska góður
með ýmsum dagskrár-
atriðum. Þetta er glæsi-
legt framtak hjá félaginu
og allt gjört á svæðinu
sem unnt er til að greiða
fólki leið að gæðum þess.
Upphafið má rekja til
höfðingsskapar
Magnúsar bónda á Vatns-
enda s.s. fram kemur hér
á eftir í máli Jóhannesar
framkvæmdastj óra.
Formaður Sjálfsbjarg-
ar á höfuðborgarsvæðinu,
Sigurrós M. Sigurjóns-
dóttir, flutti ávarp í upp-
hafi og setti þar með
hátíðina.
Minnti á 40 ára afmæli
félagsins og kvað lang-
þráðan draum þeirra
Sjálfsbjargarfélaga um
fallegt og aðgengilegt
útivistarsvæði nú að
vænum veruleika orðið.
Varla væri unnt að halda
betur upp á 40 ára afmæli
félagsins. Framkvæmda-
stjóri félagsins, Jóhannes
Þór Guðbjartsson rakti
svo í stuttu máli sögu
þessa verks. Fara hér á
eftir nokkur atriði þess:
Það var 17.maí 1995 sem
gengið var frá lóðarleigu-
samningi við Magnús á
Vatnsenda en leigu-
greiðslur skulu hefjast 1.
okt. eftir andlát Magnúsar
og verða þá vægast sagt
afar sanngjarnar. Skipu-
lag svæðisins annaðist
Auður S veinsdóttir lands-
lagsarkitekt og skilaði því
með sóma. Vigdís Finn-
bogadóttir forseti Islands
gróðursetti þarna tré
ásamt Sjálfsbjargar-
félögum 21. júní það ár,
og þá afhenti Magnús
landið formlega og Skóg-
rækt með Skeljungi gaf
plöntustyrk. Styrkir frá
Atvinnuleysistrygginga-
sjóði voru í formi þess að
ráðnir voru menn til verka
en þeir greiddu, sama gilti
um Kópavogsbæ. Mjög
margir aðilar hafa lagt
þeim lið og ekki þá síst
Sigurður Pálsson Sjálfs-
bjargarfélagi sem á þarna
óteljandi vinnustundir við
verkstjórn og störf ýmiss
konar, allt án endurgjalds.
Beinir fjárhagslegir
styrkir komu frá:
Landvernd, 500 þús.kr.;
Framkvæmdasjóði fatl-
aðra, 1 millj. kr. og Um-
hverfissjóði verslunar-
innar, 500 þús.ki'.
Fjáröflun annars feng-
in með happdrættum m.a.
listaverkahappdrætti.
Helstu framkvæmdir
sem sannarlega hafa skil-
að sér vel eru stígagerð,
flutningur og miklar
lagfæringar á húsi, pallar
og skjólgarðar við húsið
og svo þessi fallega stein-
bryggja - hlaðin, byrjað á
trébryggju sem á að vera
svo útbúin að hjólastólar
geti farið beint út. Svæð-
ið er afgirt smekklega og
aðgengi allt ágætt.
Jóhannes sagði í lokin að
talsvert sé nú þegar um að
félagar nýti sér svæðið og
færði svo fram bestu
þakkir til þeirra fjöl-
mörgu sem hafa veitt sitt
dýrmæta lið á einn eða
annan veg.
Avörp tluttu Snæbjörn
Þórðarson f.h. Sjálfs-
bjargar landssambands
svo og Sjálfsbjargar á
Akureyri, Friðrik Arsæll
Magnússon f.h. Sjálfs-
bjargar á Suðurnesjum,
Sigmar Maríusson og
Helgi Seljan f.h. Öryrkja-
bandalags Islands.
Þeir Snæbjörn og
Friðrik Ársæll færðu
góðar gjafir frá systra-
félögum og Sigmar færði
Sjálfsbjörg fagran grip
gjörðan af sínum lista-
mannshöndum. Helgi
flutti ljóð sem birtist í
afmælisblaði Sjálfs-
bjargar.
að var svo Sigurður
Geirdal bæjarstjóri
Kópavogs sem opnaði
svæðið formlega með
ávarpi en tvær ungar
konur klipptu á borða til
að opið væri og var vel
fagnað. Sigurður fagnaði
þessum framkvæmdum
mjög og kvað Kópavogs-
búa stolta af framtakinu,
Kópavogsbær hefði lagt
þessu lið gott og myndi
áfram gjöra.
Ágæt skemmtiatriði
voru milli atriða m.a.
söng Jón Jósep Snæ-
bjarnarson (Þórðarsonar)
mjög fallega Island er
land þitt og ungt fólk í
Gradualekór Langholts-
kirkju söng af mikilli
snilli nokkur lög sem
sannarlega glöddu eyru
viðstaddra. Á eftir var
viðstöddum, fríðum
fjölda fólks á öllum aldri,
boðið til grillveislu sem
greinilega var vel þegin,
enda gustaði nokkuð af
Elliðavatni svona rétt til
að minna á það að við
erum nú einu sinni á
Islandi og rétt að vera við
öllu búin.
Öryrkjabandalag
íslands endurtekur hlýjar
árnaðaróskir til Sjálfs-
bjargar með farsælt starf
í fjörutíu ár og fagnar
með þeim góðum áfanga
um leið, sem örugglega á
eftir að verða ærnum
fjölda unaðsgjafi.
Megið þið vel njóta
unaðsreitsins við Elliða-
vatn.
Helgi Seljan.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
33