Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Síða 41

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1998, Síða 41
hans, kom fullt af fólki. Hann var kistulagður á laugardeginum eftir. Þessa tvo daga var ekki hægt að fljúga frá Eyjum, en á páskadag kom margt manna úr Reykjavík, þar á meðal tvö systkini mín og fjölskyldur þeirra. Þann dag var ég friðlaus og tolldi ekki við heima og sagði mömmu að mér fyndist ég verða að fara til hennar Ingibjargar í Bólstaðarhlíð og skila til hennar kveðjunni. Mamma sagði að ég skyldi endilega fara, ég hefði bara gop af því. Eg fór inn í Bólstaðarhlíð, kíkti inn hjá Ingibjörgu, en þar var fullt hús af fólki svo að ég fór upp á efri hæðina og heimsótti vinkonu okkar, sem hafði þolað mér margt í foreldra- húsum. Þegar klukkan var um 6 að kvöldi, gekk ég niður til Ingibjargar, bankaði og gekk í gegnum eldhúsið og inn í stofu. Eg bauð henni gott kvöld og hún stóð upp með tveimur hækjum sínum, slökkti á sjónvarpinu og sagði mér að setjast andspænis sér. Síðan tók hún um báðar hendur mínar með sínum mjúku höndum og talaði blíðlega við mig. Það var eins og um mig streymdi ákveðinn friður frá þessari góðu konu og mér varð hugar- hægra. Eg hélt lengi í hendur henni á meðan hún talaði og svo sagði ég henni frá skyggnilýsingafundi Haf- steins og skilaði kveðjunni frá honum syni hennar. “Veistu Gísli minn’’, sagði Ingibjörg. “Þú veist ekki hvað þú gleður mig mikið. Mér finnst eins og ég haldi í hendina á honum og hafi fengið afmæliskveðjuna hans, ég á nefnilega afmæli í dag”. Mig rak í rogastans, hafði ekki hugmynd um hvernig stóð á, en mikið þótti mér gott að hafa skilað kveðjunni. Allt þetta sagði ég barnabarni Ingibjargar á meðan við gengum í morgunsárið eftir götum Heimaeyj- ar. Það er undarlegt eða hvað, hvernig svona minningar leita á hugann, þegar síst skyldi á gleðistundum eins og þessari úti í Eyjum. En minningin um hana Ingibjörgu fyllir mig angurværð og ef mér líður illa, þá er eins og ég finni hlýja handtakið hennar. Morgun- inn eftir spurði ég strákinn minn litla hver væri stærsta eyjan í Vestmanna- eyjum. Og auðvitað svaraði hann: “ísland”. Kær kveðja Gísli Helgason Aðalbjörn Úlfarsson frá Vattarnesi: Svolítil gamanmál úr Homafirði Aðfararorð: Á sumardögum fékk ritstjóri þessa sendingu frá góðkunningja sínum sem er frá Vattarnesi við Reyðarfjörð, en býr nú og hefur lengi gert á Höfn í Hornafirði. Á haustdögum gildir þessi góða kveðja einnig og er hér með birt. Ritstjóri sendir Aðalbirni kæra kveðju og þökk fyrir sendinguna. Fyrir að senda mér fréttabréfið fá þú verður eitthvað gott. Til þín núna tek ég skrefið tel það samt ekki neitt flott. Norðaustan kuldinn níst hér hefur niðrundir það að vera frost. Yfirhafnir hver að sér vefur aumt er að búa við slíkan kost. Virðist nú eitthvað vera að breytast veðráttan hallast suðrinu að. Ýmsir við sjálft almættið heitast enda fór þá að lagast það. Arka menn kátir út um bæinn enda er farin að sjást hér sól brosa út í annað og blessa daginn og búa sig undir sumarjól. Þannig var nú þér að segja þetta auma standið hér. Bændurnir eru að byrja að heyja og bátarnir sækja út um ver. Frystihús í fullum gangi fólkið slorugt upp fyrir haus. Er nema von að aldraða langi eitthvað, en þá er nú fjandinn laus. Fréttabréfið fær kannski góði frá þér pláss fyrir þetta hér, því sitthvað er hægt að segja í ljóði svona ef andinn leikur sér. Svo botna ég þetta bara núna best er að enda kveðskapinn. Þjóðin blessi þig og frúna því hún er gamall sveitungi minn. , Aðalbjörn Ulfarsson Eftirman: Ritstjóri bað Aðalbjörn um mynd af sér til birtingar með hans góðu gamanmálum. Með fylgdu þessar tvær stökur: Frá mér vildir þú fá mynd föstum eftir vana. Væri það ekki voða synd að vilja birta hana. Gamalt hrukkótt greppitrýn gengið allt úr skorðum. Öll mér þykir ásýnd mín öðruvísi en forðum. A.Ú. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 41

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.