Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 9

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 9
eins og fleiri samflokksmenn hans, þar með talinn sjálfur formaðurinn, lýst því yfir að honum sé ljóst að kjarastaða öryrkja sé ekki góð. Yfir- lýsingar í þessa veru ber í sjálfu sér að virða, einkum þegar þær koma frá fólki sem ekki er vitað til að hafi vísvitandi haldið að almenningi blekkingum um staðreyndir mála. En hjá því verður ekki komist að riþa upp að fýrir síðustu kosningar brá Framsóknarflokkurinn á það ráð að efna til linnulausrar blekkingaher- ferðar þar sem dag hvern mátti lesa heilsíðuauglýsingar um gríðarlega bætt kjör öryrkja, og hvergi annað að sjá og heyra en núverandi þingmenn flokksins létu sér þessa rándýru aug- lýsingabrellu vel líka. Eftir 6 ára bið er okkur ekki nóg að hlusta á forystumenn Framsóknar- flokksins lýsa yfir skilningi á málstað öryrkja. Nú dugar okkur ekki neitt annað en að ráðist verði að rótum vandans með áþreifanlegri eflingu almannatrygginga. En svo Qarri eru þær því að vera raunverulegar trygg- ingar að nú er svo komið að þeir sem áður fóru um landið til að selja þjóðinni uppbyggilegar bókmenntir, sjá sér nú meiri hag í því að knýja dyra til að bjóða þeim sem efni hafa á að tryggja sig og börn sín gagnvart sjúkdómum og örorku - tryggja sig gagnvart þeirri örbirgð sem fólgin er í bótafjárhæðum hinna svokölluðu almannatrygginga. Þeir sem selja þessar tryggingar eru sér ekki aðeins meðvitaðir um þær bótafjárhæðir sem ráðamenn ákvarða öryrkjum heldur hika þeir ekki við að notfæra sér eðlilegan ótta fólks um öryggi sitt, þ.e.a.s. þess fólks sem er nógu heilsuhraust til að það borgi sig að gefa því kost á að tryggja sig hjá Lífís, ísvá og hvað þau nú heita þessi nýju ísfélög, sem eiga það ekki aðeins sameiginlegt að gera út á okkar ónýtu almannatryggingar held- ur velja sér að auki fyrirtækjaheiti sem eru í senn svona ljómandi vel fallin til að lýsa eðli starfseminnar og forsendum rekstrarins. Þeir ráðamenn Framsóknarflokks- ins sem vilja að við trúurn því að þeir séu andsnúnir einkavæðingu velferð- arþjónustunnar geta ekki dregið það eitt árið til viðbótar að bregðast við þessari ört vaxandi einkavæðingu. Vilji þeir ekki skilja hér eftir sig vest- urheimsk frumskógarlögmál á þessu lífsnauðsynlega sviði hvers velferð- arríkis komast þeir ekki hjá því að verja hærra hlutfalli þjóðartekna okkar til almannatrygginga. Við bíðum svars í baráttu sinni hefur Öryrkjabanda- lagið ekki látið sér nægja að benda á siðferðilega nauðsyn þess að efla hér almannatryggingar heldur höfum við einnig reynt að opna augu stjórnvalda fyrir efnahagslegum ávinningi slíkrar aðgerðar, þeim margvíslega og um- fangsmikla sparnaði sem efling almannatrygginga hefði óhjákvæmi- lega í för með sér. Þótt ríkisstjórnar- flokkarnir haldi enn að sér höndum, virðast rök okkar til allrar hamingju hafa náð eyrum þjóðarinnar. Vaxandi fjölda fólks, sem ekki á neinna beinna persónulegra hagsmuna að gæta, er farið að ofbjóða sú stefna fátæktar og aðskilnaðar sem íslensk stjórnvöld framfylgja í trygginga- málum öryrkja. Hyggist ráðamenn halda áfram að misskipta sameigin- legum þjóðartekjum okkar á þann veg að fötlun haldi áfram að verða ávísun á fátækt og einangrun, ber þeim að færa einhver rök fyrir þeirri breytni sinni. Rétt eins og þeir ætlast til af okkur, ber þeim að færa efnisleg rök fyrir máli sínu og standa reikn- ingsskap gjörða sinna. Það er að minnsta kosti lágmarkskrafa að þeir upplýsi hvers vegna þeir kjósa að ákvarða öryrkjum jafnlágar bætur og raun ber vitni. Þá verður ekki lengur hjá því komist að þeir geri opinber- lega grein fyrir því hvort og þá hvernig þeir hafa hugsað sér að örorkubæturnar dugi til helstu nauð- þurfta, leigu lítillar íbúðar, næringar- ríkrar fæðu o.s.frv. Hér er ekki spurt um mannsæmandi líf, heldur ein- ungis nauðþurftir. Við bíðum svars. Garðar Sverrisson. Hlerað í hornum “Er það satt að hann Nonni sé nískur?” “Já, heldur betur, hann tek- ur m.a.s. orð sín aftur”. Gunnar: “Það kemur aldrei dropi af víni á borð í mínu húsi”. Nonni sí- raki: “Ja, þú hlýtur þá að hella mjög varlega”. Jón sagði vini sínum, Sveini að hann hefði fengið bréf frá ofsareiðum föður sem hefði hótað sér lífláti, ef hann ekki hætti að fleka dóttur sína. “Nú þá hættirðu því bara”, sagði Sveinn. En þá sagði Jón: “Hvernig á ég að geta það. Bréfið var nafnlaust’’. Þeir höfðu ekki sést lengi félagarnir og nú spurði sá aðkomni: “Er það virkilega satt að þú hafir trúlofast henni Siggu Sveins?” “Jú, jú, mikið rétt”. “Hvað segirðu, og hún sem hefur sofið hjá öllum karlmönnum í þorpinu”. “Jæja, og hvað með það, þetta er nú ekki svo íjölmennt þorp”. Bræðurnir 6 og 7 ára voru komnir í rúmið og þá fer sá yngri að kalla í hinn, sem ekki ansar. “Af hverju ansarðu mér ekki?” “Æ, hættu þessu bölvuðu kalli, ég er að lesa bænirnar mínar”. Frúin fína var afar góð með sig og hélt vinnukonu. Einu sinni þegar frúin var á leið út sá hún að tvær vin- konur hennar voru að koma í heim- sókn. Hún bað vinnukonuna að segja þeim að hún væri ekki heima og það gjörði hún. Frúin spurði vinnukon- una svo hvað þær hefðu sagt þegar hún hefði sagt þeim þetta. “Þær sögðu bara: Þvílik hundaheppni”. *** “Er konan þín ennþá jafnfalleg?” “Já, það held ég, en það tekur hana bara alltaf lengri og lengri tíma að verða það. *** Jón gamli fjósamaður segir frá: “Ég var að koma út úr fjósinu með fulla fötu af nýmjólk, þegar ég sá þennan hræðilega draug”. “Og varðstu ekki hræddur?” “Hræddur og ekki hrædd- ur, ég veit ekki hvað skal segja um það, en þegar ég kom inn í bæ og fór að gá í fötuna þá voru bara í henni tvö pund af smjöri”. “Fékkstu ávísunina frá mér?” “Ég er nú svona hræddur um það, fyrst frá þér og svo frá bankanum”. *** Og talandi um nísku. “Hann Jón er svo nískur að þegar hann hlær þá hlær hann á kostnað annarra”. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.