Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 62

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 62
Fyrsta stjórn ÖBÍ. Frá vinstri: Andrés Gestsson Blindrafélaginu, Einar Eysteinsson Blindravinafélagi íslands, Sveinbjörn Finnsson Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra, Oddur Ólafsson SIBS, Sigríður Ingimarsdóttir Styrktarfélagi vangefinna, Zophanías Benediktsson Sjálfsbjörg og Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri. ORYRKJABANDALAG r r ISLANDS 40 ARA Þegar minnast skal 40 ára af- mælis Öryrkjabandalags ís- Iands í stuttu máli er úr vöndu að ráða því svo yfirgripsmikil er saga bandalagsins. Hér verður stiklað á ýmsu sem hátt ber í minningunni og liggur þá beinast við að rifja fyrst litillega upp aðdraganda stofnunar samtakanna og fyrstu starfsárin. Þau voru sex öryrkjafélögin sem stóðu að stofnun bandalagsins og áttu þau mis- jafnlega langan starfsferil að baki. Blindravinafélagið var þeirra lang- elst, stofnað árið 1932, Sjálfsbjörg, landssamband yngst, stofnað árið 1959. Blindrafélagið árið 1939, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra 1952 og Styrktarfélag vangefinna 1958. Forsvarsmenn allra þessara félaga gjörðu sér skýra grein fyrir þörfinni á sameiginlegum málsvara, sem hefði það markmið að vinna að sameigin- legum réttindamálum öryrkja og þá fyrst og fremst gagnvart opinberum aðilum. Fyrsti fundurinn sem efnt var til um samvinnu öryrkjafélaganna var hald- inn 7. september 1959 að Grundarstíg 15 í Reykjavík. Stutt fundargerð var rimð á þessum fundi og fylgir hún hér: „Samankomin að Grundarstíg 15, Þórður Benediktsson frá S.I.B.S., Benedikt Benónýsson frá Blindra- félaginu, Zophonías Benediktsson, Sigursveinn D. Kristinsson ásamt undirritaðri frá Sjálfsbjörg, lands- sambandi fatlaðra. Tilgangurinn var að rœða um vœntanlegt samstarf félaganna. Sigursveinn ræddi um tilraunir til breytinga á tryggingalöggjöfinni og þörfma á aðfá lífeyrinn hœkkaðan. Rœtt var um að senda til Alþingis frumvarp um hækkun lífeyris og að öll félögin þrjú hefðu samstöðu um að senda frumvörpin. Annað mál til umræðu var um afskrift tolla af bifreiðum. Þá drap Sigursveinn á byggingu hús- næðis fyrir öryrkja. Fleira ekki rætt. Olöf Ríkarðsdóttir, fundarritari Næsti fundur var haldinn að Sjafnargötu 14 í húsnæði Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra en félagið hafði lánað Sjálfsbjörg, nýstofnuðu landssambandi, aðstöðu í bílskúr sín- um. Þessi fundur var haldinn í svartasta skammdeginu árið 1959. Guðmundur Löve gjörir þessum fundi og fram- haldi hans góð skil í blaði Sjálfs- bjargar árið 1961 og vísast til þeirrar greinar hans, sem er endurbirt hér í þessu blaði. í fundargjörðabók bandalagsins kemur fram að stofhfundirnir voru tveir. Sá fyrri var haldinn 22. mars 1961 og komu til þess fundar þrír fulltrúar frá hverju hinna sex félaga sem að bandalaginu stóðu. A fund- inum var kynnt uppkast að lögum bandalagsins og fjárhags- og rekstr- arhlið þess var rædd. Framhaldsstofnfundur var síðan haldinn föstudaginn 5. maí 1961 að Bræðraborgarstíg 9 í Reykjavík í húsakynnum S.Í.B.S. Hann sátu að sjálfsögðu fulltrúar hinna sex stofn- félaga, sem voru: Blindrafélagið, Blindravinafélag Islands, S.I.B.S., 62
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.