Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 47

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 47
Einar Hrafnsson og Steindór Jónsson skoða sérhannaðan geislaspilara fyrir Daisy- hljóðbækur Hið fyrra að einkatölvan yrði vinnu- tæki námsmannsins og að hljóðbækur framtíðarinnar yrðu stafrænar. Þró- unarstarfi var hrundið af stað sem hafði að meginmarkmiðum að koma að minnsta kosti 20 lestímum fyrir á geisladisk og að veita lesandanum aðgang að bókinni í gegnum efnisyfir- lit. Þá var lögð áhersla á að bækurnar væru lesnar inn af manneskjum (ekki talgervli), afspilunarbúnaður væri venjulegur tölvubúnaður en ekki sér- hæfður og að forrit sem þyrfti til af- spilunar væru ókeypis fyrir notand- ann. Öll þróunarvinna miðaðist fyrst og fremst við námsbækur. Fyrsta útgáfa DAISY leit síðan dagsins ljós um miðjan síðasta áratug og sýnt var fram á að kerfið hafði alla burði til þess að geta orðið framtíðarlausn. Þetta yrði þó aldrei nema fjölþjóðleg samstaða næðist um kerfið. Árið 1996 voru stofnuð fjölþjóðleg samtök, DAISY Consortium (veffang: www.daisy.org). Allri þróunarvinnu við kerfið er nú stjórnað af þeim og yfirlýst markmið er að útbúa staðal (standard) sem sé svo opinn, aðgengi- legur og tæmandi að hann geti orðið alþjóðlegur og ráðandi í heiminum. Útbúinn var nýr staðall, DAISY 2 (1998) sem byggir á tiltölulega nýjum grunnþáttum internet tækni og marg- miðlun (XML og SMIL). Um leið var hætt að einskorða sig við að DAISY- bókin væri endilega eingöngu hljóð- bók. DAISY er eins og lesandann eflaust grunar skammstöfun og stendur eins og er fyrir Digital Audio-based Information System. Áherslan er sem- sagt á að þarna sé um að ræða miðlun upplýsinga sem hljóðformi sem geymt er og miðlað á stafrænan máta. Miklar líkur eru á að hinu lengra nafni verði breytt í Digital Accessible Information System vegna þess að meir og meir er lögð áhersla á DAISY- formið sem alhliða lausn upplýsinga- dreifingar fýrir þá sem á einhvern hátt eiga í erfiðleikum með að nýta sér prentað letur. Þetta er það sem þróun- araðilar DAISY leggja sífellt meiri áherslu á. Þegar er hægt að setja texta í bækurnar sem birtist á tölvuskjá um leið og bókin er lesin. Þá er sá texti sem verið er að lesa lýstur upp og sá sem hlustar getur einnig notað sjónina til lestrar. Þetta er mjög mikilvægt fyrir þá sem eiga við sértæka lesörð- ugleika að stríða. Hægt er að setja inn myndir sem einnig eru samhæfðar hljóðinu og reyndar margmiðlunarefni af ýmsu tagi. Hér er þó um að ræða atriði sem tengjast mjög höfundarétti og eru ekki auðleyst hvað það varðar. n þetta er ekki allt. Það er ásetn- ingur DAISY-samtakanna að DAISY-sniðið verði einnig grunnsnið svokallaðra rafbóka. Þ.e. bóka sem eru í raun texti á stafrænu formi sem talgervill les eða lesa má á blindralet- ursskjá. Þá væri á sama hátt og í hljóðbókinni hægt að fara um undir- og aðalfyrirsagnir, milli blaðsíðna o.þ.h. I tilviki þar sem bók er lesin og samhæfður texti fylgir með mætti þá eins nota talgervil. Einnig áhersla á alþjóðlegt framboð og dreifingu á DAISY-bókum. Stórt skref í þessa átt verður stigið á fyrri hluta næsta árs þegar DAISY 3 staðallinn verður lagður fram. En þetta liggur allt í mögulegri framtíð. Hvernig lítur dæmið út íýrir notandann í dag? Segja má að við á Blindrabókasafn- inu séum á lokaskeiði tilraunar sem staðið hefur um nokkurra ára skeið og miðast við framgang staðals og þróun- arvinnu sem unnin er erlendis og við reynum síðan að taka upp, læra á og aðlaga okkar aðstæðum. Notandi dagsins I dag er semsagt í raun í til- raunahópi. Hann eða hún er svo gott sem eingöngu framhaldsskólanemi sem getur nýtt sér einhverja af þeim u.þ.b. 20 bókum sem við eigum til á DAISY 2 formi. Þessar bækur hafa verið lesnar inn frá því seint um haustið 2000. Fram að því höfðu tæknilegir örðugleikar hamlað mjög vinnu við innlesturinn hjá okkur þó framleiddar hafi verið um 40 bækur á DAISY 1 formi. Þessir notendur eru í flestum tilvikum vanir tölvutækninni og eiga í litlum erfiðleikum með að nýta sér það afspilunarfor- rit sem við höfum dreift notendum að kostnaðar- lausu. Það heitir Playback 2000 og gengur við allar almennar útgáfur Wind- owskerfa allt frá Windows 95. Þetta forrit er til bæði á sænsku og ensku og nem- endur geta valið hvora útgáfuna þeir vilja. Þá eru til sérhæfðir DAISY-spil- arar á markaði. Þeir munu kosta eitthvað um 50.000 krónur og meðan ekki eru fleiri titlar til útláns viljum við fara varlega í að mæla með að fólk kaupi sér slík tæki sjálft. Safnið hefur ekki bolmagn til þess að leigja út eða lána þessi tæki en hugsa mætti sér samstarf við hagsmunaaðila þegar þróunin verður lengra komin. Fartölva gæti verið vænlegri kostur í mörgum tilvikum. Þá er stefnt að því að hægt verði að lesa DAISY-bækur í Mpeg- spilurum í framtíðinni og lesforritið Microsoft Reader mun trúlega styðja DAISY-staðalinn í framtiðinni. Þá verður að geta þess að nú er nýr hópur að bætast við tilraunahópinn en það eru blindir grunnskólanemendur en lestur námsefnis fyrir þá er að hefjast nú í haust. yrir utan takmarkað framboð bóka eins og stendur er það óneit- anlega ókostur við kerfið að þarna er verið að búa til nýjan staðal sem þarfnast sérstakra hjálpartækja (for- rita/spilara). Segja má að flestir eigi eða geti útvegað sér á einfaldan hátt tæki til að njóta geisladiska eða hljóðsnældna. Það sama er reyndar að verða raunin með tölvur fyrir náms- menn. Allt öðru máli gegnir um eldri lánþega okkar. Það er reyndar reynsla okkar að frá þeim er hverfandi lítill þrýstingur á að breyta um snið á hljóðbókum. Þetta hlýtur þó að breyt- ast með tímanum. Blindrabókasafnið verður að sjálfsögðu að fara varlega. Staðallinn er ekki orðinn alþjóðlegur og DAISY gæti orðið eitt af þessum fyrirbærum sem munu fljótt gleymast. Eins og er virðist okkur DAISY-bókin þó vænlegasti fyrirsjáanlegi framtíð- arkosturinn og sá eini sem á mögu- leika á að verða grundvöllur alþjóð- legs staðals. Einar Hrafnsson FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.