Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 67
Kínversku fulltrúarnir á heimsþinginu.
breyta. Hún vildi verða ræðumaður
og eftir mikla baráttu við sjálfa sig
tókst henni að ná tökum á ræðu-
mennskunni. Boðskapurinn sem hún
sagðist vilja koma til okkar er að:
„ÞÚ VERÐUR AÐ BERA ÁBYRGÐ
Á SJÁLFUM ÞÉR“. í dag fær hún
mikið út úr því að halda fyrirlestra á
fundum og ráðstefnum um stam og
hún hefur mikið að gefa. Mary hefur
mikla útgeislun og náði að hrífa
áheyrendur með sér þegar hún sagði
frá þeirri gleði sem hægt er að upplifa
þrátt fyrir stamið.
Kenneth O. St. Louis frá Kanada
talaði um rannsóknir á viðhorfi gagn-
vart stami. Með einfaldri viðhorfs-
könnun meðal áheyrenda sýndi hann
fram á að fólk hefur almennt nei-
kvæðara viðhorf gagnvart köngulóm
og slöngum en hvað því finnst í raun
og veru um þessar skepnur. Fyrstu
niðurstöður hans benda til að það
sama gildi um viðhorf fólks gagnvart
stami, en hann ráðgerir að birta nið-
urstöður rannsókna sinna innan
tveggja ára.
Nýjungar í þágu fólks sem stamar
Joseph Kalinowsky er Bandaríkja-
maður sem hefur hannað tæki sem
gerir þeim sem stama auðveldara að
tala án stams. Tækið byggir á þekktri
tækni sem gengur út á að hljóðin sem
sá sem talar gefur frá sér eru endur-
tekin í eyra hans með örlítilli seink-
un, en þetta getur komið í veg fyrir
stam (Edinburg masker). Tæki hans
er álíka stórt og heyrnartæki og kemst
fyrir í eyranu, en hægt er að framleiða
svona örsmá tæki með nýjustu tækni.
Tækið er hins vegar dýrt og er óþægi-
legt í notkun, en fyrir þá sem stama
mjög mikið getur það verið himna-
sending, það fengum við að heyra.
Það verður spennandi að fylgjast með
þróun mála á þessu sviði.
Hjónin Woody Starkweather og
Janet Ackerman eru mjög þekktir
sérfræðingar á sviði stams. Þau
ræddu um „meðferð byggða á til-
raunum (experimental therapy)” þar
sem þau beita mjög einstaklings-
bundnum aðferðum og láta skjól-
stæðinginn ráða ferðinni að talsvert
miklu leyti. Mikil áhersla er lögð á
tilfinningar þar sem þær skipta meg-
inmáli.
Judith Kuster er umsjónarmaður
heimasíðu stamara (The Stuttering
Homepage) sem er umfangsmesti
vefur með upplýsingar um stam í
heiminum og hefur hún lagt gífurlega
vinnu í efnisöflun fyrir vefinn. Hún
hefur staðið fyrir ráðstefnu um stam á
netinu í október á hverju ári síðan
1998 í tengslum við alþjóðlega
stamdaginn 22. október. Á ráðstefn-
unni eru lagðar fram greinar, bæði af
fræðimönnum og fólki sem stamar og
síðan eru umræður um greinarnar.
Greinarnar eru lagðar fram, þ.e. ráð-
stefnan opnuð 1. október og umræður
um þær standa frá 1,— 22. október.
Skoðið vefinn hennar á www.stut-
teringhomepage.com
Auk aðalfyrirlestranna var hægt að
velja um fjölda erinda og starfshópa.
Eitt áhugaverðasta erindið var flutt
af Hollendingnum Lieven Grommen
sem talaði um „skápastam”. Hvað er
það? Jú, það er til fólk sem stamar og
hefur alltaf gert, en hefur tekist að
leyna því fyrir öllum, þ.á.m. sínum
nánustu. Þessi hópur fólks stamar
kannski ekki mikið en lifir í stöð-
ugum ótta við, ekki bara að stama
eins og við hin, heldur að einhver
komist að þessu stórkostlega leyndar-
máli. Þessu fylgja miklar þrautir,
kvíði og hrein sálarangist sem fólk
lifir með alla tíð, auk þess sem
félagsleg einangrun er algeng. Þetta
getur farið út í algjöra brenglun á
sjálfinu þannig að fólki finnst í lagi
að gera sig að algjöru fífli bara til að
leyna staminu. Ég hafði heyrt um
þetta áður, en þarna opnuðust augu
mín fyrir þessu og ég skildi þetta nú
betur.
Við fengum að vita að sjálfshjálp-
Nýkjörin stjórn International Stuttering Association.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
67