Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 18
Stjórn Svalanna kynnti sér starfsemi deildarinnar. Margrét S. Páls-
dóttir, formaður Svalanna (t.h) afhendir Bjarnveigu Bjarna-
dóttur, deildarstjóra sérdeildar (t.v.) gjöfina.
Svölurnar veita styrk til
sérdeildar fyrir einhverfa
í Langholtsskóla
Síðastliðið haust voru liðin
fimm ár frá stofnun sér-
deildar fyrir nemendur með ein-
hverfu sem staðsett er í Lang-
holtsskóla. I tilefni þessara tíma-
móta sótti deildin um styrk til
Svalanna. Helsta fjármögnunar-
leið Svalanna er jólakortasala.
Þær brugðust vel við og veittu
styrk sem svarar um hálfri
milljón króna. Styrknum var
varið til tækja- og námsgagna-
kaupa. Keypt var Power
Machintosh tölva, tveir prentarar,
þrír ritþjálfar, Board Maker
myndaforrit og fleiri tölvuforrit
til tungumálakennslu.
Tækin nýtast afar vel við
kennslu nemenda með einhverfu.
Þessir nemendur þurfa enn
fremur en ófatlaðir nemendur að
hafa greiðan aðgang að tölvuút-
búnaði. Reynslan hefur sýnt að
það er mun auðveldara að kenna
bæði stærðfræði og tungumál
með aðstoð tölvunnar. Einnig
nýtist tölvan afar vel í málörvun.
Starfsfólk, foreldrar og nemendur
sérdeildar Langholtsskóla vilja
koma á framfæri innilegu þakk-
læti til Svalanna fyrir þessar
höfðinglegu gjafir sem munu
eiga sinn þátt í því að búa nem-
endur undir líf í samfélagi fram-
tíðarinnar.
Landsbanki Islands veitti
deildinni einnig styrk að fjárhæð
kr. 100.000, í tilefni afmælisins.
Sá styrkur var nýttur til að kaupa
stafræna myndbandsupptökuvél.
Sérdeildin þakkar kærlega fyrir
styrkinn sem nýtist afar vel í
starfsemi deildarinnar.
síðan fyrir að þessir aðilar ræddu
samstarfsmöguleika og var Alfreð
Þorsteinsson formaður þeirrar
nefndar sem fjallaði um málið.
í viðræðunefnd voru eftirtaldir
fulltrúar tilnefndir:
Frá ÍSÍ: Alfreð Þorsteinsson,
Þórður Þorkelsson, til vara Sigurður
Magnússon.
Frá ÖBI: Vilhjálmur Vilhjálmsson,
Arinbjörn Kolbeinsson, til vara
Oddur Ólafsson
Frá UMFÍ: Sigurður Geirdal, til
vara Oddur Karlsson
Frá íþróttanefnd ríkisins: Valdimar
Örnólfsson, til vara Reynir G.
Karlsson.
Fyrsti fundur í nefndinni var
haldinn 20. ágúst 1985 í íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal. Nefndin
tilnefndi þá Sigurð Magnússon,
Vilhjálm Vilhjálmsson og Sigurð
Geirdal í starfshóp. Um miðjan
október lauk aðild íþróttanefndar
ríkisins að nefndinni.
Snemma í viðræðunum náðist
samkomulag um eignarhlutdeild og
í framhaldi af því var sett á laggirnar
undirbúningsstjórn sem skipuð var
eftirtöldum mönnum:
Frá ISI: Alfreð Þorsteinsson og
Þórður Þorkelsson, til vara Sigurður
Magnússon og Hannes Þ. Sig-
urðsson.
Frá ÖBÍ: Vilhjálmur Vilhjálmsson
og Arinbjörn Kolbeinsson, til vara
Oddur Ólafsson.
Frá UMFI: Haukur Hafsteinsson
og Sigurður Geirdal.
Nefndirnar unnu frá fyrsta degi af
miklum áhuga að framgangi sam-
starfs þessara aðila, vegna aðildar
UMFI að Islenskum getraunum urðu
þeir einnig aðili að þessu góða sam-
starfi sem var afgreitt með stofn-
fundi íslenskrar getspár sem haldinn
var 8. júlí 1986. En Alþingi hafði
samþykkt lög í maímánuði sem
heimiluðu ÍSÍ, ÖBÍ og UMFÍ að
standa fyrir rekstri talnagetrauna
samkvæmt nánari reglugerð þar um.
Sala Lottós hófst síðan 22. október
1986 og fyrsti útdráttur fór fram
næsta laugardag á eftir.
Merkum áfanga var náð í sögu
þessara samtaka.
Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Hlerað í hornum
“Maðurinn minn vill ekki fara til
tannlæknis”, sagði kona ein við vin-
konu sína. “Það er ekki von, hann
fær aldrei að opna munninn heima
heldur”.
“Hún Jóna er farin að vinna á kránni.
Hana langaði svo til að hitta manninn
sinn oftar”.
Listmálarinn sagði konu sinni að
hann ætlaði að gefa verk sín ein-
hverju góðu félagi eða stofnun. Kona
hans hreytti út úr sér: “Já, blessaður
gefðu Blindrafélaginu þau”.
18