Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 34

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 34
Sigurður Bjarnarson gjaldkeri SPOEX afhendir Agli Sveinbjörnssyni formanni deildar SPOEX á Siglufirði ljósagreiðu að gjöf frá samtökunum. og fá verulegan bata af meðferð þar en alltaf eru nokkrir sem engum bata ná og eina meðferðin sem gagnast þeim veru- lega er að vera í sjó og sólskini. Til margra ára voru 40 sjúklingar sendir árlega í loftslagsmeðferð á heilsustöð sem Norð- menn reka á Valle Mar- ina á Kanaríeyjum og reyndust mjög vel. Þessar ferðir voru teknar af í rúmt ár en eru nú heimilaðar aftur að ein- hverju leyti þeim sjúkl- ingum sem verst eru haldnir. Siglinganefnd Tryggingastofnunar rík- isins hefur hins vegar sett ströng skilyrði fyrir veitingu slíkra leyfa. Húðlæknar sækja um leyfin f.h. sjúklinga sinna til Siglinganefndar, sem metur þær og ákveður hverjir uppfylli skilyrðin til að fá meðferð erlendis. Skilyrðin sem sett voru eru allt of ströng. Þótt eitthvað sé búið að losa um eru þau enn of ströng og ekki forsvaranlegt að sjúklingur þurfi að taka ónæmisbælandi lyf fremur en að njóta meðferðar í sólskini og sjó. Erlent samstarf Nord-Pso. SPOEX á aðild að Nord-Pso sem eru samtök norrænu psoriasissam- takanna. Öll Norðurlöndin eru aðilar að N-Pso. Tvisvar á ári eru stjórnar- fundir og fara venjulega tveir full- trúar á fundina í hvert sinn en fleiri þegar um aðalfundi er að ræða. Kostnaður deilist niður á félögin en auk þess höfum við fengið styrki frá Norrænu ráðherranefndinni til að sækja þessa fundi. Þetta norræna samstarf styrkir okkur mjög í allri okkar starfsemi. Miðlar upplýsingum og fræðslu milli landa, auk þess sem við fáum stuðn- ing frá þeim þegar um mikilvæg mál er að ræða eins og t.d. loftslags- meðferðirnar. Einnig má benda á fræðsluritin, en allt sem gefið er út af norrænu félögunum megum við þýða að vild og nota fyrir okkar félags- menn svo og birta það í fréttablaði SPOEX. IFPA- International Federation of Psoriasis Association. SPOEX er einnig meðlimur í ofan- greindum alþjóðasamtökum. Megin- tilgangur samtakanna er að efla sam- starf og fræðslu milli landa og styðja þau lönd sem ekki eru með virk félög innan sinna vébanda. Nýlega var haldin mjög yfirgrips- mikill og fróðlegur fundur og sam- eiginleg alþjóðaráðstefna með IFPA og húðlæknum ásamt sjúklingaráð- stefnu með Bandarísku psoriasis- samtökunum NPF í San Francisco dagana 18.-24. júní sl. Ótal erindi voru flutt þarna t.d. um það nýjasta í erfða- rannsóknum, lyfjameð- ferðir, hughrif og sál- arástand sjúklinganna, mataræði o.m.fl. Einnig fannst sjúklingum og aðstandendum þeirra ómetanlegt að hittast og bera saman bækur sínar og læra hver af reynslu annars. Það getur oft skipt sköpum fyrir fólk. Fjórir fulltrúar fóru frá SPOEX; auk þess fór fulltrúi frá Bláa lóninu með okkur. Við vorum styrkt til fararinnar af nokkrum góðum aðil- um og gátum þess vegna farið svo mörg. EVrópso SPOEX á einnig aðild að Europso sem er Evrópusamband psoriasisjúk- linga. Við hvetjum alla sem áhuga hafa á nánari vitneskju um félagið og starf- semi þess að hafa samband við skrif- stofuna en hún er að Bolholti 6 í Reykjavík. Síminn þar er 588-9666 og netfang spoex@psoriasis.is. Samtök psoriasis- og exemsjúkl- inga senda að lokum Öryrkjabanda- lagi Islands hugheilar hamingjuóskir í tilefni 40 ára afmælis þess. Stjórn SPOEX 2001-2002. Talið frá vinstri: Jóna Björg Karlsdóttir vara- maður, Þórunn Jónsdóttir starfandi formaður, Hinrik Þór Hinriksson meðstjórnandi, Elín Hauksdóttir ritari, Valgerður Auðunsdóttir varafor- maður og Sigurður Bjarnarson gjaldkeri. 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.