Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 68
Þrír þarfir bæklingar
Samtaka sykursjúkra
Samtök sykursjúkra hafa
nýlega gefið út þrjá vand-
aða bæklinga um sykur-
sýki. Bæklingarnir eru hinir
læsilegustu og i raun glæsi-
legustu um leið.
Einn þeirra er um tegund 2 af
sykursýki með áherslu á það að
sykursýki sé hættulegur sjúk-
dómur. Nokkur góð ráð eru
gefin um mataræði, líkamsrækt,
lyf og eftirlit. Sagt er í bæk-
lingnum að stöðugt fleiri eftir-
launaþegar og miðaldra einstakl-
ingar fái sykursýki af tegund tvö.
Lögð er áhersla á hollan mat,
hreyfingu næga, varað er við tó-
baki og áfengi, sagt að hugsa vel
um fætur og reglulegt eftirlit
mikil nauðsyn. Annar bæklingur
er svo um mat og sykursýki með
aðalatriðið: hollan mat fyrir
sykursjúka. Þar eru ýmis holl
heilræði gefin s.s. forðist sýni-
lega fitu, forðist leynda fitu,
borðið ríkulega af kolvetnum,
mikið af trefjum, borðið ávexti
dag hvern, sparið sykurinn
o.s.frv.
Brýnt er fyrir fólki að borða
fleiri og smærri máltíðir, fólki er
ráðlagt að velja drykki með lágu
eða engu kolvetnisinnihaldi og
svo er fólki sagt að borða milli
mála.
Þriðji bæklingurinn er um
efnið: Að greinast með syk-
ursýki, tegund 2 og undirfyrir-
sögn þar: Hvað mun læknirinn
gera og hvað getur þú gert
sjálfur?
Sagt er í inngangi að sykursýki,
tegund 2 sé einnig kölluð
fullorðinssykursýki og sé lang-
vinnur sjúkdómur. Þetta er þinn
sjúkdómur og það er fyrst og
síðast þín hegðun sem ræður því
hvernig sjúkdómurinn þróast.
Síðan er frá því greint hversu
sykursýki er greind og viðbrögð
læknisins og þar á eftir er komið
inn á það hvað sjúklingurinn
getur sjálfur gjört. Þannig er
þetta ferli rakið vel og greinilega,
allt frá fyrstu greiningu hjá
lækni, ráðleggingar hans tíund-
aðar og svo alltaf lögð áhersla á
það sem viðkomandi getur sjálfur
gjört og m.a. komið þar inn á
hversu mæla skal blóðsykur af
sjúklingnum. Kanna vel sjón,
hlusta á líkamann, val skó-
fatnaðar mikilvægt o.s.frv.
Ymiss fróðleikur fylgir með í
bæklingnum, efnið er fallega og
gagnlega myndskreytt með
ítrekunum á hollráðum.
Samtök sykursjúkra hafa hér í
framkvæmd komið á framfæri
afar nytsamri fróðleiksgjöf sem
ugglaust á eftir að nýtast afar vel
þeim sem á þurfa að halda og
hollt er í huga að hafa að þeim fer
ört fjölgandi. Samtökunum er
sannur sómi að þessari útgáfu
sinni, en efnið að mestu þýtt úr
dönsku af Fríðu Bragadóttur og
sérfræðingar ýmsir að komið.
Helgi Seljan.
arhópar fyrir fólk sem stamar eru
komnir i gang í Kína og farið er að
viðurkenna stam sem vandamál þar í
landi. Einnig viðurkenna menn að
hefðbundnar kínverskar aðferðir svo
sem nálastungur virðast ekki gefa
varanlegan árangur.
Annað athyglisvert erindi kom frá
Astralíu: „Að vinna með sársaukann
sem fylgir staminu - skref í áttina að
betri líðan”. Þar var rætt um kvíðann
sem fylgir staminu hjá flestum og
aðferðir til að hafa áhrif á hann.
Auk þessa var rætt um aðferðir til
að gera meðferðir árangursríkari með
betra samstarfi meðferðaraðilans og
skjólstæðings, um heilarannsóknir,
um sjálfshjálparhópa á netinu, um
kannanir á jafnréttisstöðu þeirra sem
stama, um sjálfshjálparhópa og ýmsa
þætti sem hafa áhrif á þá, um þörfina
fyrir forvitni og sveigjanleika til að
ná árangri og læra nýja hluti, auk
fjölda annarra erinda. Undirritaður
var svo með erindi um það hvernig
félög fólks sem stamar geta komið
sér upp heimasíðu á netinu og hvaða
atriði það eru sem mikilvægast er að
hafa í huga í því ferli.
Samskipti við jafningja
skipta miklu máli
Einn mikilvægur þáttur á þingum
og ráðstefnum af þessu tagi er
félagslegi þátturinn. Að eiga kost á að
ræða við fólk frá flestum heims-
hornum um mál sem báðir aðilar
skilja, þó svo tungumálið sé ekki það
sama gefúr mjög mikið. Þarna hittum
við bæði gamla vini sem við höfum
þekkt um skemmri eða lengri tíma og
nýja vini. Með nútíma samskipta-
tækni svo sem fnternetið verða sam-
skipti auðveldari og mögulegt að
viðhalda kynnunum þótt höf og
heimsálfur séu á milli. Mín niður-
staða er sú að samspil áhugaverðs
efnis og samskipta við fólk hafi verið
gott á ráðstefnunni og vegið upp það
sem upp á vantaði svo sem skipulag
og gistiaðstöðu. Næsta heimsþing
verður að þremur árum liðnum í
Astralíu. Við sjáum til hvort við get-
um sagt frá því þegar þar að kemur.
Benedikt E. Benediktsson
félagi í Málbjörgu
Hlerað í hornum
Hallur og Sigurður hittust á förnum
vegi og Hallur spyr: “Ertu ennþá að
jagast við konuna þína?” “Nei,
blessaður vertu, ég er löngu hættur
því, ég hafði alltaf rangt fyrir mér”.
Hjónin voru á gangi úti í skógi þegar
ræningjar ruddust að þeim og hirtu af
þeim allt lauslegt. Á eftir fór
maðurinn að hæla sér af því að hann
hefði eiginlega ekkert orðið hræddur.
Þá sagði kona hans: “Það held ég þú
hafir nú verið fljótari en ég að rétta
upp hendurnar”. “Já, en ég kreppti
hnefana”.
Tvær vinkonur voru að tala saman og
önnur sagði: “Mikið er hann Helgi
óheflaður. Hann snýr sér alltaf við á
götunni þegar við mætumst og glápir
lengi á eftir mér”. Þá sagði hin: “Nú
og hvernig veistu það?”
68