Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 33

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 33
stuttu var keyptur hand- og fótalampi af nýjustu gerð Sjúklingar þurfa ekki að panta tíma á göngudeild SPOEX og opnunartími er frá kl. 11.30 til 18.30 sem hentar mörgum mjög vel. Göngudeildir í Reykjavík eru farnar að kreija sjúklinga um kr. 200 fyrir hverja meðferð og kr. 300 ef um PUVA-meðferð er að ræða í hvert skipti. Sama gjald er tekið fyrir börn og fullorðna, aldraða og öryrkja og engin afsláttarkort eru tekin gild. Þetta gjald er ekki tekið af þeim sjúklingum sem sækja meðferð á göngudeild SPOEX og hefur stjórn SPOEX barist fyrir því að þetta gjald verði fellt niður á göngudeild ríkisins í Þverholti. Landsbyggðin Á landsbyggðinni starfa 12 deildir SPOEX. Nú er í bígerð að stofna tvær nýjar deildir á næstunni, eina í Ólafsvík og aðra á Egilsstöðum. SPOEX hefur undanfarið gefið ljósagreiður til nokkurra deilda úti á landi og mun einnig gera svo til nýju deildanna. Fræðslufundir Fræðslufundir hafa verið haldnir árlega úti á landi. Á síðasta ári voru fræðslufundir á Siglufirði og Flúsa- vík. Fundirnir eru haldnir í samvinnu við Bláa lónið sem hefur aðstoðað SPOEX við fjármögnun fræðslufund- anna. Húðlæknir hefur alltaf komið með okkur ásamt hjúkrunarfræðingi göngudeildar Bláa lónsins. Fræðslufundir í Reykjavík eru að jafnaði tveir á ári. Síðustu tveir fundir voru um psoriasisgigt og um börn með exem eða psoriasis. Voru þeir báðir mjög fræðandi og fundarmenn ánægðir með fúndinn. Fræðslubæklingar Nú eru í vinnslu fræðslubæklingar hjá SPOEX. Ætlunin er að gefa út bæklinga um börn og exem, psoriasis í hársverði, psoriasis á höndum og fótum, psoriasisgigt ásamt sögubók sem er sérstaklega ætluð börnum. Bæklingar þessir eru upphaflega framleiddir af N-Pso-samtökunum, samnorrænu psoriasissamtökunum en þýddir og staðhæfðir hér. Vegleg félagsblöð eru gefin út tvisvar á ári með fræðigreinum og gagnlegum upplýsingum fyrir félags- menn. Auk þess gefum við út frétta- Af skrifstofu SPOEX. Helga Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri. Fulltrúar SPOEX o.fl. á fundinum í San Francisco. Talið frá vinstri Sigurbjörg Kristmundsdóttir hjúkrunarfræðingur SPOEX, Sólveig Björk Gránz hjúkrunarfræðingur Bláa Iónsins, Jan Monsbakken framkvæmdastjóri norsku samtakanna, Valgerður Auðunsdóttir varafor- maður, Rannveig Pálsdóttir húðlæknir, Helga Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri SPOEX og Sigurður Bjarnarson gjaldkeri. pésa nokkrum sinnum á ári með t.d. ferðatilboðum fyrir félagsmenn, tilkynningum o.fl. Vífilsstaðir Eina sérhæfða legudeild húðsjúkl- inga á landinu hefur til margra ára verið á Vífilsstöðum. Nú stendur til að loka Vífilsstöðum og opna í stað þess dagdeild fyrir húðsjúklinga. Stjórn SPOEX hefur haft miklar áhyggjur af þessum málum og ítrekað reynt að fá upplýsingar frá stjórnarnefnd Landspítala-háskóla- sjúkrahúss um hver verði endanleg niðurstaða í málum þeirra húðsjúkl- inga sem þurfa á innlögn að halda. Fátt er um svör því að endanleg ákvörðun virðist ekki hafa verið tekin, en stjórn SPOEX er sagt að þeim sjúklingum sem þyrftu á sólar- hringsvistun að halda, yrði tryggð hún innan veggja spítalans. Stjórn SPOEX sættir sig engan veg- inn við þessar niðurstöður og hefur bent á að með þessu sé enn verið að skerða læknisþjónustuna til handa húðsjúklingum, en mjög mikið atriði er að allir meðferðarmöguleikar séu fyrir hendi. Meðferðarúrræði Margir psoriasissjúklingar sækja meðferð á göngudeild Bláa lónsins FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.