Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 50

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 50
Nýr framkvæmdastjóri Blindrafélagsins Hinn fyrsta mars síðastliðinn tók Björg Anna Kristins- dóttir við stöðu fram- kvæmdastjóra Blindrafélagsins en hún hafði áður unnið hjá félaginu í ár sem markaðsstjóri. Þegar ritstjórinn leitaði eftir viðtali við hana reyndist hún svo önnum kafin að þau sömdu með sér að hún fengi sendar spurn- ingar og svaraði þeim í tölvupósti. Björg Anna var fyrst beðin að gera örlitla grein fyrir sjálfri sér. „Ég er fædd 7. desember 1974 í Reykjavík. Foreldrar mínir eru Krist- inn Jónsson og Kristín Jónsdóttir. Ég ólst upp í Vesturbænum og að loknu skyldunámi lá leið mín í Verzlunar- skóla íslands, þar sem ég lauk stúd- entsprófi árið 1996.” Hvað tók svo við? „Ég lauk prófi í iðnrekstrarfræði í upphafi árs 1999 frá Tækniskóla Islands og ári síðar, í janúar 2000 B.sc. gráðu í Alþjóðamarkaðsfræði frá sama skóla. Samhliða námi í alþjóðamarkaðsfræði starfaði ég sem markaðsstjóri Nanoq í Kringlunni. I marsmánuði 2000 fór ég í barn- eignarfrí og kom til starfa hjá Blindrafélaginu þegar því lauk. Ég er gift Jónasi Guðmundssyni og eigum við eina dóttur, Svandísi Lilju, sem er fædd 2. mars 2000. Að loknu barnseignarfríi réði ég mig til starfa sem markaðsstjóri Blindra- félagsins og hóf þar störf í nóvember 2000.1 starfi markaðsstjóra sá ég um íjáraflanir félagsins og fleiri mál er m.a. lúta að ímynd þess. í marsmánuði 2001 tók ég við starfi framkvæmdastjóra félagsins. Starfið er fjölbreytt og felur m.a. í sér daglegan rekstur skrifstofu, starfsmannahald og rekstur og umsjón með eignum félagsins. Framkvæmdastjóri starfar náið með formanni félagsins sem og stjórn þess. í júlímánuði 2001 urðu ákveðnar breytingar á skipulagi Blindravinnu- stofunnar og framkvæmdastjórn hennar er nú í mínum höndum. Björg Anna ferðast mikið með fjöl- Björg Anna Kristinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Blindrafélagsins og Bindravinnustofunnar. Ljósmynd: Hartmann Guðmundsson skyldu sinni, stundar útivist og hefur áhuga á stjórnmálum. Hún á m. a. sæti í stjórn Hvatar, félags sjálf- stæðiskvenna í Reykjavík. Hún var spurð hvort hún hefði kynnst mál- efnum blindra áður en hún réðst til starfa hjá Blindrafélaginu. „Ég hafði ekki kynnst málefnum blindra og sjónskertra áður en ég hóf störf hjá Blindrafélaginu. Starfsvett- vangurinn er áhugaverður og íjöl- breyttur og með mér starfar gott fólk. Einnig eru tengslin við félagsmenn okkar mikilvæg. Það er ánægjulegt að fá að fylgjast með félagsmönnum okkar í sínum sigrum og sorgum og fá staðfestingu á því að félagið skipt- ir þetta fólk máli.” Fyrir nokkrum árum létu bresk samtök kanna viðhorf fólks til mis- munandi fatlana. Kom þá í ljós að fé- lög fatlaðra höfðu misjafnlega já- kvæða ímynd. Nú er ekki ástæða til að aðhæfa þessa könnun íslenskum aðstæðum. en Björg Anna var þó spurð hvernig hún héldi að ímynd Blindrafélagsins væri á meðal al- mennings. „Að mínu mati nýtur félagið vel- vilja almennings og viðhorf í garð félagsins er jákvætt. Það er hverju félagi mikilvægt að viðhalda já- kvæðri ímynd sinni og stuðla að aukinni uppbyggingu félagsstarfs.” - Nú þarf Blindrafélagið að sækja talsvert mikið til stjórnvalda. Hvernig eru samskiptin við þau? „Samskipti Blindrafélagsins við stjórnvöld hafa gengið ágætlega. Við finnum fyrir jákvæðum samstarfs- vilja og oftar en ekki skilningi á að- stæðum blindra og sjónskertra og þörfum þeirra.” Þá var Björg Anna spurð um helstu verkefnin sem eru á döfinni hjá Blindrafélaginu. „Helstu verkefni félagsins um þessar mundir eru ljölmörg. Sé litið til réttindabaráttu blindra og sjón- skertra þá hefur félagið unnið tillögu að breytingum á lögum um Sjónstöð íslands sem miðar að því að auð- velda blindum og sjónskertum og aðstandendum þeirra aðgengi að þjónustu. Stefnt er að því að kynna þessa tillögu á næstu vikum. Ástæða þess að félagið óskar eftir breyt- ingum á áðurnefndum lögum er sú að fyrr á þessu ári var unnin könnun fyrir félagið á högum 6 - 18 ára blindra og sjónskertra skólabarna. Niðurstöður þeirrar könnunar segja okkur að úrbóta er þörf fyrir þennan hóp og aðstandendur þeirra og þá sérstaklega að auðvelda þeim að- gengi að þjónustu, þ.e.a.s. þjónustu- aðilum og úrræðum sem í boði eru. I ár er 60 ára afmæli Blindravinnu- stofunnar og af því tilefni verður efnt til fagnaðar 12. október n.k. Um svip- að leyti mun blað Blindrafélagsins, Blindrasýn, koma út þar sem starf- semi félagsins og vinnustofunnar verður kynnt landsmönnum. Félagið stendur einnig fyrir árlegu happdrætti sínu um mánaðamótin sept/okt. Alþjóðasamstarfið er einnig í miklum blóma og um áramót mun Blindrafélagið taka við formennsku í norrænni samráðsnefnd blindrasam- takanna. Arnþór Helgason. 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.