Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Page 11

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Page 11
aðeins það allra nauðsynlegasta tekið nú, en öðru þörfu þá frestað og skal Tjaldanes eitt nefnt þar til sögu. Sveitarfélagasamningarnir taka til sín á fimmta tug milljóna og standa þó enn út af skuldbindingar vegna þess að fólk flutti af Vonarlandi í sjálfstæða búsetu í Neskaupstað og á Egilsstöðum en þar á væntanleg sala Vonarlands að koma inn í, sala sem menn voru að vona að gengi ífam á þessu ári. Ekki er bruðlið úr sjóðnum til náms- og tækjastyrkja eða 5 milljónir eða þá til lagfæringa að- gengis, rétt um 8 milljónir og 5 milljónir til félagslegu íbúðanna (10% styrkir lögboðnir). Ekki skal þulið meir hér um þenn- an hrjáða sjóð sem hefur í áranna rás, þrátt fyrir allar hremmingar, tryggt mjög mikla uppbyggingu í málefnum fatlaðra og erfitt að hugsa til þess nú hvert ástandið væri, ef hans hefði þó ekki notið við. Ekki er því að leyna að ég ber mikinn kvíð- boga fyrir sjóðnum á þessu ári og því næsta þó alveg sérstaklega, ef rétt er frá greint í því sem maður getur gleggst hlerað, þegar þetta er ritað. Öll vitum við að verkefnin bíða hvarvetna og alltof víða blasir við hrein neyð. Sannleikurinn er sá að enn hræðilegra væri þó ástandið, ef ekki hefði komið til hinn myndarlegi atbeini Hússjóðs Öryrkjabanda- lagsins, sem ráðuneyti félagsmála samdi við um stórátak í þessum mál- um á síðasta ári og sannarlega á eftir að skila svo mörgum heilum í hús, ef svo má segja. Nú er það brýnt verkefni samtaka fatlaðra að knýja rækilega á stjórn- völd og Alþingi um myndarlegt framlag næsta árs til Framkvæmda- sjóðs fatlaðra, svo honum verði a.m.k. gjört kleift að standa við óhjá- kvæmilega lagaskyldu sína um bráð- nauðsynleg framlög til hagsbóta fyrir fatlaða í landinu. Til þess treysti ég samtökunum að beita nú öllu sínu fjöldaafli til að réttlát fjárveiting til sjóðsins verði væn staðreynd næsta árs. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Helgi Seljan fulltrúi ÖBÍ í Stjórnarnefnd um málefni fatlaðra. Fréttatilkynning Námsmenn og fatlaðir einstaklingar sem leigja herbergi með aðgangi að baði og eldhúsi eiga nú rétt á húsaleigubótum Fatlaðir einstaklingar á sambýlum og námsmenn á framhalds- eða háskóla- stigi sem leigja á heimavist eða á stúdentagörðum eiga nú rétt á húsaleigubótum sem þeir áttu ekki áður skv. lögum um húsaleigubætur. Þessi breyting nr. 52/2001, á lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997, tók gildi þann 13. júní sl. Frekari upplýsingar um þetta er hægt að nálgast á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins: www.felags- malaraduneyti.is Samráðsnefnd um húsaleigubætur félagsmálaráðuneytinu, 13. september 2001. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 11

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.