Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 13

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Blaðsíða 13
Ásgerður Ingimarsdóttir og Helgi Seljan í dagsins önn. spítalinn jarðhæðina og þrjár neðstu hæðirnar fyrir öldrunardeild sem rekin var þar um árabil. Klepps- spítalinn fékk til umráða jarð- hæðirnar í Hátúni 10 og 10A og þar voru geðdeildir með yfirleitt eldri, rólegum sjúklingum. Og þannig komst það hús í notkun. í húsum Öryrkjabandalagsins bjuggu öryrkjar með afar ólíkar fatl- anir og oft vorum við spurð hvernig þetta færi saman. Sannleikurinn er sá að þetta gekk ótrúlega vel þegar á heildina er litið. Og ég held að margur hafi lært heilmikið af því að búa með svo ólíku fólki. Og við sem unnum þarna lærðum lika mikið í mannlegum samskiptum. Og eru ekki líka afar ólíkar persónur í öllum ijöl- býlishúsum? Og þeir sem eiga að telj- ast ófatlaðir eru nú sjálfsagt ekki alltaf barnanna bestir í sambúð! En vitaskuld voru oft erfiðleikar og stundum fannst manni þeir óyfir- stíganlegir - ekki síst þegar Bakkus konungur náði völdum. í raun og veru var erfiðast að leysa þau mál. Hvað höfðingjarnir hafast að hinir meina sér leyfist það. Og hversvegna átti þetta fólk að vera eitthvað öðru- vísi en aðrir og hafi einhverjum fundist þeir hafa ástæðu til að leita huggunar hjá þeim leiða konungi voru það kannski þeir sem ekki eygðu neina von og leituðu því í þetta falska gleðimeðal. Það er svo margt sinnið sem skinnið. Árið 1978 urðum við fyrir þeirri þungu raun að missa okkar ágæta yfirmann og vin Guðmund Löve. Hann varð bráðkvaddur úti í Kaup- mannahöfn þar sem hann sótti fund Alþjóða endurhæfingarsambandsins en hann var fulltrúi íslands í Evrópu- deild þeirra samtaka. Okkur Önnu Ingvarsdóttur samstarfskonu minni og vinkonu féll allur ketill í eld. Grunnurinn var eiginlega brostinn. Guðmundur Löve var svo einstakur persónuleiki að hann gleymist aldrei. Hann var svo góður og skemmtilegur yfirmaður og vildi hvers manns vandræði leysa. Hann þekkti ógrynni af fólki bæði fatlaða og ófatlaða og var hvers manns hugljúfi en þó fastur íyrir. Guðmundur annaðist m.a. um árabil atvinnuútvegun til öryrkja og varð furðanlega mikið ágengt. Síðan tók endurhæfingarráð við þessari starfsemi nokkuð lengi þar til Reykjavikurborg tók við henni. En nú urðum við að halda áfram án Guðmundar og hans góðu áhrifa. En við áttum hann Odd Ólafsson; Oddur var lengi formaður ÖBÍ og formaður hússtjórnar frá upphafi. Það stóð enginn einn sem átti hann Odd. Og lífið hélt áfram, ekki var það í anda okkar góða vinar, Guðmundar að leggja árar í bát. Og enn reis upp eitt húsið, Fann- borg 1 í Kópavogi. Það var svona annexía og þangað fór ég í nokkur ár einu sinni í mánuði, inn- heimti húsaleigu og ræddi við fólkið. Kópavogskaupstaður fékk út- hlutunarrétt á flestum íbúðunum; ég held að við höfum átt þar 12 íbúðir. Eins og annarsstaðar í húsum banda- lagsins var þar blandaður hópur en þó meira af eldri öryrkjum. Þar með voru hús Hússjóðs Öryrkjabanda- lagsins orðin fjögur og varð nú hlé á byggingum um sinn þar sem fé var ekki fyrir hendi og hafði kannski aldrei verið - allt byggt á lánum og bjartsýninni hans Odds á Reykjalundi eins og einhver sagði. Við vorum hræðilega blönk. Eg man að Anna stóð stundum yfir mér þegar ég taldi úr peningakassanum til þess að vita hvort við ættum nóg í þennan og þennan víxilinn svo allt hryndi nú ekki yfir okkur. Starfsfólk hjá okkur var alveg í lág- marki. Við bættum þó við einni stúlku sem tók við innheimtu húsa- leigunnar o.fl. Við vorum alltaf alveg einstaklega heppin með starfsfólk hvort sem það voru ungar sumar- stúlkur eða fastráðið fólk. Lengi vel ræddi ég við alla sem komu að sækja um húsnæði. Því mið- ur lengdust biðlistarnir fljótlega og lítið losnaði af íbúðum. Þar átti í fyllsta rnáta við máltækið um að eins dauði er annars brauð. Ég man varla eftir að fólk færi frá okkur nema þessa einu leið eða það væri orðið of ósjálfbjarga til að geta búið sjálfstætt. Afar sjaldgæft var að við yrðurn að láta einhvern fara vegna ónæðis eða vandræða enda var það ekki auðleyst mál. Helst hjálpaði Reykjavíkurborg okkur með því að taka viðkomandi og við tókum annan frá þeim sem var vandræðaminni. Samstarf okkar við borgina var yfirleitt með miklum ágætum. í þá daga gat maður leitað til Félagsmála- stofnunarinnar ef einhver var að sökkva í húsaleiguskuldir. Þá drógu þeir viðkomandi að landi, greiddu skuldina gegn því að viðkomandi kæmi sér ekki í slíkar kröggur aftur og það gekk eftir, því að við gátum samið við viðkomandi um að við sæktum tryggingabæturnar, drægjum húsaleiguna frá og síðan fengi hann eða hún afganginn. Fræg varð setning mín í bréfum til Féló um að honum eða henni væri ákaflega ósýnt um fjármál! í sambandi við húsnæðisumsókn- irnar var oft erfitt að geta aldrei leyst mál hér og nú af því að vandræði margra voru mikil og margvísleg. Maður fann t.d. til með eldra fólki sem gjaman vildi fara að hætta sínu búsumstangi og jafnvel gat fengið pláss á elliheimili en gat ekki farið vegna þess að það var bundið af ein- FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.