Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Qupperneq 16

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Qupperneq 16
ÖRYRKJABANDALAG ÍSLANDS Það datt fæstum í hug þegar Ólöf Ríkarðsdóttir, ritari Sjálfs- bjargar hringdi til Blindrafé- lagsins og Sambands ísl. berkla- sjúklinga og boðaði til sameiginlegs fundar með fulltrúum þessara félaga, að þar færi fyrsti vísir öryrkjabanda- lags. Um nokkurra ára skeið hafði hug- myndin vakað í hugum manna og meira að segja eitt sinn verið um hana rætt á sameiginlegum fundi fé- laganna, en án árangurs. Hennar tími var ekki kominn, félögin áttu eftir að brjótast áfram hvert í sinu lagi spöl- korn enn, þar til þennan nóvemberdag í svartasta skammdeginu árið 1959. Félagarnir sem hittust í skrifstofu- húsnæði Sjálfsbjargar á Sjafnargötu 14 - Elísabet Kristinsdóttir og Björn Jónsson frá Blindra- félaginu, Hjörleifur Gunnarsson og Guð- mundur Löve frá S.Í.B.S., Haukur Kristjánsson og Ólöf, sem var fundarboð- andinn frá Sjálfs- björg, landssambandi fatlaðra, þekktust flestir lítið og komu hikandi til fundarins. Mundi nokkuð gerast þar, sem öryrkjum yrði að gagni, var nokkur von til þess að samvinna þessara ólíku öryrkjahópa tækist. Tveir lamaðir, tveir lungnaveikir og tveir blindir - hvað áttu þeir sam- eiginlegt? Var þetta tal um samstarf ekki eitthvað óraunverulegt - vonir sem aldrei gátu ræst. En fundurinn hafði staðið skamma stund þegar allur efi var sem blásinn burt, enginn skortur á sameiginlegum áhugamálum, hlýhugur og samstarfs- vilji. Samvinnan hlaut að leiða til stofn- unar víðtækara bandalags enda leið ekki á löngu þar til undirbúningur að stofnun þess hófst. í fréttatilkynningu sem birtist í dag- blöðunum í ágústmánuði s.l. um Ör- yrkjabandalagið og stofnun þess segir svo um það, er síðar gerðist: „Vegna reynslu sem fékkst við sam- Guðmundur Löve starf þessara félaga ákvað samvinnu- nefndin að helja undirbúning að stofnun sambands eða bandalags ör- yrkjafélaganna og kaus þriggja manna nefnd er annast skyldi undirbúning”. í nefndinni áttu sæti: Oddur Ólafs- son læknir (SÍBS), Haukur Kristjáns- son læknir (Sjálfsbjörg) og Elísabet Kristinsdóttir (Blindrafélagið). í ársbyrjun 1961 skilaði nefndin áliti; taldi heppilegast að öll öryrkja- félögin og styrktarfélög öryrkja ættu aðild að bandalaginu, sem síðan stæði opið sams konar félögum er stofnuð yrðu síðar. 14. febrúar s.l. boðaði samvinnunefndin eftirtalin sex félög til fundar, sem samþykkti einróma stofnun sameiginlegs bandalags: Blindrafélagið, Blindravinafélag ís- lands, Samband íslenskra berkla- sjúklinga, Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Styrktarfélag vangefinna. Föstudaginn 5. maí 1961 var Ör- yrkjabandalag íslands stofnað, lög þess samþykkt og eftirtaldir fulltrúar kosnir í stjórn: Forseti: Oddur Ólafsson læknir (SÍBS). Varaforseti: Sveinbjörn Finnsson (Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra). Gjaldkeri: Zophanías Benediktsson (Sjálfsbjörg - landssamband fatl- aðra). Ritari: Sigríður Ingimarsdóttir (Styrktarfélag vangefinna). Meðstjórnendur: Andrés Gestsson (Blindrafélagið), Einar Eysteinsson (Blindravinafélag íslands). Samkvæmt lögum bandalagsins er tilgangur þess: að koma fram fyrir hönd öryrkja gagnvart opinberum aðilum. að reka vinnumiðl- unar- og upplýsinga- skrifstofu fyrir ör- yrkja. að koma á samstarfi við félagasamtök er- lendis er vinna á lík- um grundvelli og hagnýta reynslu þeirra í þágu banda- lagsins. að vinna að öðrum sameiginlegum mál- efnum öryrkja. í bandalagið geta aðeins gengið félaga- samtök sem hafa það sem aðalverkefni að vinna að málefnum öryrkja. Á fyrsta fundi stjórnar bandalagsins höldnum 19. maí, var samþykkt að auglýsa eftir framkvæmdastjóra fyrir bandalagið og 6. júlí s.l. var Guð- mundur Löve ráðinn í starfið. Jafn- framt var skrifstofuhúsnæði tekið á leigu í byggingu SÍBS að Bræðra- borgarstíg 9. Hinn 1. ágúst s.l. var skrifstofan opnuð öryrkjum og mun fyrst um sinn einkum annast vinnu- miðlun og upplýsingaþjónustu. Nefndin sem Ólöf Ríkarðsdóttir kallaði saman undir áramótin 1959 hafði lokið störfum og Öryrkjabanda- lag íslands tekið við. Guðmundur Löve. Þegar Öryrkjabandalag Islands var stofnað réðst Guðmundur Löve til starfa sem framkvæmdastjóri þess. Hann hafði um árabil unnið hjá SIBS og var vel kunnugur málefnum fatlaðra. Guðmundur vann sem framkvœmdastjóri Öryrkjabandalagsins til dauðadags 1978. Hann stýrði skrifstofuþess, sá um húsnœðismál ogstarfaði að vinnumiðlun fatlaðra, ötull verkmaður og hvan’etna vel liðinn. Arið 1978 varð Anna Ingvarsdóttir framkvœmdastjóri Hússjóðs Öryrkjabandalagsins en sérstakur framkvœmdastjóri var ekki ráðinn að Öiyrkjabandalaginu fyrr en haustið 1986þegar Asgerður Ingimarsdóttir, sem hafði unnið á skrifstofu þess um árabil, tók við því starfi. Hún gegndi þvífram til ársins 1998þegar Helgi Seljan tók við, en hann hafði gegnt starfi félagsmálafulltrúa og ritstjóra Frétta- bréfs Öiyrkjabandalagsins frá árinu 1987. Hans starfstími sem framkvœmdastjóri var rúm tvö ár. Núverandi framkvœmdastjóri er Arnþór Helgason. Arið 1961 birtist í blaðinu Sjálfsbjörg grein eftir Guðmund Löve þar sem hann gerir glögga grein fyrir tilurð Öryrkjabandalags Is- lands. Er greinin birt hér í blaðinu orðrétt. 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.