Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Síða 17
Oryrkjabandalag/Islensk getspá
Arnþór Helgason, fram-
kvæmdastjóri ÖBÍ hringdi í
mig fyrir nokkrum dögum
og bað mig að skrifa nokkur orð um
aðdraganda þess að Islensk getspá
varð til.
Aður en ég vissi af hafði ég játað
þessari beiðni Arnþórs, en nú þegar
ég sest niður til að efna loforðið þá
vandast málið, hvað um það loforð
skal standa og ég læt bara reyna á
hvernig það rætist.
Þegar ég tók sæti í stjórn ÖBI
1981 varð mér ljóst að þrátt fyrir
mikil umsvif bandalagsins þá var
fjárhagsstaða þess fremur bágborin
og að miklu leyti byggð á því að
leita í sjóði þeirra félagasamtaka
sem stóðu að því, en hvert aðildar-
félag greiddi þá eitt prósent af
heildartekjum sínum til banda-
lagsins.
Þegar ég varð formaður ÖBI 1983
kom vandamálið m.a. fram í því að
ýmsar samþykktir sem gerðar voru á
fundum voru miklu fremur eins
konar viljayfirlýsingar fremur en
framkvæmanlegar samþykktir ef
þær á annað borð kostuðu einhverja
peninga til að koma mætti þeim í
framkvæmd.
Afdrifarík Bandaríkjaferð
Þegar sonur minn, Haukur, sem þá
var skiptinemi á vegum AFS í
Bandaríkjunum
fannst mér nauð-
synlegt að fara til
fósturforeldra hans
en þau eru heyrn-
arlaus og þakka
þeim fyrir alla
þeirra góðvild og
hjálpsemi, þetta var
á miðju ári 1984.
Eitt kvöldið kall-
aði húsbóndinn í
mig og bað mig að
koma með sér í
ökuferð, hann var
þá að kaupa lottó-
miða en vinningur á
þessum tíma var
stærri en venjulega,
auðvitað keypti ég
Vilhjálmur Vilhjálmsson, form.
ÖBÍ 1983 - 1986.
miða líka og svo fylgdist ég með
útdrætti í sjónvarpinu. Ekki kom
vinningur á miðana okkar í þetta
skipti en þetta var skemmtilegt og
virtist afar vinsælt í Maryland og í
Washington DC.
í flugvélinni á leiðinni heim
nokkrum dögum síðar fór ég svo að
hugsa um hvort þessi leikur gæti átt
erindi á Islandi. Það var erfitt að
hætta umhugsuninni um lottóið, svo
ég nefndi það við Odd Ólafsson sem
var einn aðalhvatamaður að stofnun
ÖBÍ og mikill hugsjónamaður.
Oddur sem var þá 75 ára var ekki
lengi að hugsa sig um; hann svaraði
“elsku besti þú verður bara að fara
aftur og kanna málið betur” og eftir
þetta var ekki aftur snúið.
Málið var kynnt á fundi í stjórn
Öryrkjabandalagsins og þar var
jafnframt samþykkt að senda mig á
ráðstefnu um happdrættismál sem
haldin var í Delawere fylki 2 vikum
síðar.
Fjaðrafok og stofnun
íslenskrar getspár
Eitt leiddi af öðru og eftir
talsverðar athuganir og fleiri ferðir
vorum við komnir með hugmynd að
útfærslu á Lottó á Islandi, en við
nánari könnun kom í ljós að
Iþróttasamband Islands átti réttinn
til að reka talnagetraunir. Var þá
skoðuð hugmyndin að setja upp
lottó sem bókstafaleik. Tillaga sem
var lögð fyrir Alþingi um heimild til
handa Öryrkjabandalagi íslands að
reka bókstafagetraun með þessum
hætti fékkst ekki samþykkt á þing-
inu. Satt best að segja olli tillaga
þessi miklu fjaðrafoki sem endaði
með því um miðja nótt á seinasta
þingfundi vorið 1985 er taka átti
málið til afgreiðslu, að Ellert
Schram gerði hlé á ræðu sinni.
Steingrímur Hermannsson þá-
verandi forsætisráðherra kallaði
Odd Ólafsson og mig til fundar
ásamt nokkrum þingmönnum þar
sem hann óskaði eftir að við féll-
umst á að málið yrði
tekið af dagskrá
þingsins að þessu
sinni en á móti
myndi hann beita sér
fyrir því að koma á
viðræðunefnd ISI og
ÖBÍ þar sem þessi
samtök könnuðu
möguleika á sam-
starfi um lottó en
það hafði komið
fram í ræðum sumra
þingmanna.
Við Oddur gerðum
ekki athugasemdir
og málið var tekið út
af dagskrá þingsins.
Steingrímur Her-
mannsson beitti sér
íslensk getspá fyrsta stjórn. Frá vinstri: Alfreð Þorsteinsson,
Arinbjörn Kolbeinsson, Þórður Þorkelsson stjórnarformaður,
Björn Ástmundsson og Haukur Hafsteinsson.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
17