Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Page 19
TÖLVUSTÝRÐ LYFJASKÖMMTUN
í 25 APÓTEKUM LYFJA & HEILSU
UM LAND ALLT
Eitt af apótekum Lyfja og heilsu.
Lyf & heilsa hefur í samstarfi
við Lyíjaver ehf. tekið upp
tölvustýrða lyfjaskömmtun,
fyrst íslenskra lyfsölufyrirtækja.
Markmiðið með samstarfi fyrir-
tækjanna er að auka þjónustu við þá
aðila sem taka inn lyf að staðaldri og
auka öryggi við lyijainntöku.
Aukið öryggi, hagræði
og sparnaður
Þeir sem taka inn lyf að staðaldri,
eða þeir sem annast þá, hafa margir
hverjir þurft að skammta lyfin sjálfir.
Ýmsar aðferðir hafa verið notaðar, til
að mynda hafa lyf verið handtalin
ofan í skömmtunarbox, en því hefur
fylgt hætta á ruglingi auk þess sem
það er tímafrekt. Einnig hafa verið
dæmi um tvískömmtun, þ.e. að not-
andi taki inn tvöfaldan skammt þegar
um samheitalyf er að ræða. Hér eftir
verða þessi vandamál úr sögunni en
tölvustýrð lyfjaskömmtun er örugg-
asta aðferð við skömmtun lyija sem
völ er á.
Boðið verður upp á þessa þjónustu í
25 apótekum Lyija & heilsu um land
allt en það er tæplega helmingur allra
apóteka á landinu. Allir þeir sem nota
lyf að staðaldri eiga því auðvelt með
að nýta sér þessa þjónustu. Að sögn
Jóns Þórðarsonar lyfsöluleyfishafa í
Lyijum & heilsu i Mjódd hafa ijöl-
margir einstaklingar sýnt þjónustunni
áhuga. „Nú þegar er byrjað að
skammta lyf fyrir þó nokkra aðila. Ég
hvet alla sem telja að þessi þjónusta
henti sér eða aðstandendum sínum til
að koma við í næsta Lyf & heilsu
apóteki og afla sér frekari upplýs-
inga.”
Þorbjörg Ingólfsdóttir hefur notað
lyf gegn kvíða í mörg ár og tekur
einnig inn hjartalyf. Hún er nýorðin
sextug og er 75% öryrki. Þorbjörg tók
þjónustunni fegins hendi og líkar
mjög vel. „Mér finnst þetta frábært.
Ég var áður með fimm lyijakassa,
einn fyrir hverja viku, og tók allt til
sjálf. Þetta er mjög þægilegt og sparar
óneitanlega tíma. Aðalbótin er þó sú
að nú eru lyfin tekin til fyrir mig og
ég þarf ekki að hafa neinar áhyggjur.”
En það er fleira en tímasparnaður
sem Þorbjörg telur mikilvæga kosti
við tölvustýrða lyijaskömmtun. „Það
var oft stærsti þröskuldurinn að koma
sér að verki og finna ró og næði til að
taka til lyfin. Ég á mörg barnabörn og
gerði þetta aldrei þegar þau voru hér
því að maður vill ekki hafa lyf í
kringum börn. Bóndi minn hjálpaði
mér oft við að taka til lyfin og var það
honum náttúrulega ljúft, en nú þarf
hann þess ekki lengur. Þannig að
þetta sparar áhyggjur og umhugsun
fyrir alla.”
Þorbjörg segir skömmtunina hafa
gengið prýðisvel fyrir sig og að þjón-
usta Lyíja & heilsu hafi verið góð.
„Ég mæli með því fyrir fólk sem þarf
að taka eitthvert magn af lyfjum að
það notfæri sér svona skömmtun. Ég
tel að þessu fylgi öryggi og áreiðan-
leiki í meðferð,” segir Þorbjörg að
lokum.
í apótekum Lyfja & heilsu er hægt
að fá allar nánari upplýsingar um
hina nýju þjónustu. Hægt er að fá
skammtana senda heim eða sækja þá
í lyfjaverslanir Lyfja & heilsu,
tveggja eða fjögurra vikna skammta í
senn.
S.Þ.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
19