Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Page 31

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Page 31
hver önnur vandamál geti komið upp í þessum kúrs sérstaklega. Hefði ég gert meira af þessu i Háskóla íslands hefði námið þar gengið mun betur því það er staðreynd að prófessorar eru oft mjög hjálplegir. Ef fötlun kemur í veg fyrir að ákveðið verkeíhi geti verið leyst af hendi er oft hægt að komast að samkomulagi um eitthvað svipað verk- efni sem auðveldara er að fást við eða önnur leið finnist. 2. Fara á internetið og leita að tölvupóstlistum fólks í svipaðri aðstöðu. Þetta er hreinasta snilld. Ég uppgötvaði ekki þessa lista fyrr en í ár en þeir gerðu námið mun auðveldara. Það eru miklar líkur á því að þúsundir einstaklinga séu einmitt í sömu aðstöðu og maður sjálfur og þeir skiptast á upplýsingum, tækni og reynslu í gegnum slíka póstlista. Ég er t.d. áskrifandi að póstlista fyrir blinda forritara og þar hef ég lært um nýjustu forritin sem geta auðveldað okkur lausn verkefna og hvaða tækni þessir forritarar beittu þegar þeir voru í skóla og hvernig þeir leystu samsvarandi verk- efni auk þess sem tækni- legar upplýsingar um for- ritun og ákveðin vandamál sem upp koma eru alltaf til reiðu - maður þarf bara að spyrja. 3. Nota námsráðgjöf og sérþjónustu bara ef það er eina leiðin eða til þess að leggja áherslu á ákveðið málefni. Fólk bregst mun betur við ef maður leitar sjálfur til þess, t.d. ef maður stendur upp í fyrsta fyrirlestri og segist þurfa glósusérfræðing og bendir þeim sem kynnu að hafa áhuga á því að hafa sam- band við námsráðgjöf. Þó skal minnst á það að það getur verið óæskilegt að ráða vini sína sem „glósu- gúrúa”. Það getur valdið ótal vandræðum og jafnvel spillt vináttu. 4. Leita að heimild- um/bókum og öðru á net- inu. Ef námsbókin sem notuð er, er ekki til eru oft til bækur í svipuðum flokki sem prófessorinn getur skoðað og mælt með. í tveimur tilfellum hef ég meira að segja sent tölvu- póst til höfunda bókanna sem við notum og í bæði skiptin hafa þeir sent mér bókina á rafrænu formi með því skilyrði að ég eyddi henni eftir notkun og myndi ekki dreifa henni undir nokkrum kringum- stæðum. 5. Sýna áhuga og sýna fram á að maður sé tilbúinn að leggja mikið á sig. Þannig fær maður í 99% tilfella jákvæð viðbrögð og fólk vill allt fyrir mann gera. Birkir Rúnar Gunnarsson. ORÐMYNDIR Með nútima tölvutækni hefur almenningi verið opnaður aðgangur að Orðabók Há- skóla íslands. Þar er margt fróðlegt að finna og er orðabókin ótrúleg uppspretta fróðleiks þeim sem eftir leita. Ritstjóri Fréttabréfs Öryrkjabandalagsins er svo heppinn að hafa á skrifstofu sinni tölvu sem er sítengd alnetinu, svo kallaða. Hann hefur stundum átt í erfið- leikum með stafsetning- una. Að vísu er íslensk stafsetn i ngarorðabók tölvunni en hún gefur ekki svör við öllum hlutum. Því er stundum brugðið á það ráð að leita til Orðabókar Háskólans. Hvað kemur í ljós, ef flett er upp á orðinu býfluga?, býfluga, býflugnaauga, býflugnaár, býflugnabit, býflugnablóm, býflugna- broddur, býflugnabú, býflugnabúr, býflugnabúsvaxka- ka, býflugnaeigandi, býflugnafélag, býflugnafrœði, býflugnafylking, býflugnahnappur, býflugnahópur, býflugnahráki, býflugnahunang, býflugnahús, bý- flugnahverfi, býflugnaklefi, býflugnakúpa, býflugna- lirfa, býflugnamaður, býflugnamökkur, býflugnarœkt, býflugnastokkur, býflugnastuldur, býflugnasveimur, býflugnasvermur, býflugnaveiðari, býflugnaþúfa, býflugnaævintýri, býflugubú, býfluguvængur, býflygi. Þegar flett er upp á orðinu kerti kemur þetta í Ijós: kertasveinn, kertataug, kertatilbúningur, kertatólg, kertatólk, kertatólkur, kertaug, kertavax, kerta- þráðasett, kertaþráður, kerti, kertisdás, kertisgat, kertisglœta, kertishald, kertiskola, kertiskragi, kertislaus, kertisljós, kert- islog, kertislogi, kert- ismúlt, kertispartur, kert- ispípa, kertisrak, kertis- skar, kertisstika, kertis- stjakahlutur, kertisstubbi, kertisstubbur, kertisstúfur, kertissveinn, kertistaka, kertistaug, kertistika kertistýra Það vekur athygli að í þessum orðalista eru hvorki orðin kertagerð né kertaverksmiðja. Orðið kerti kemur fyrir í nokkrum samsetningum eins og bílkerti og konukerti sem er gælunafn yfir eiginkonur. Lesendur geta spreytt sig á að finna fleiri orð af sama stofni eða jafnvel búið þau til. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 31

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.