Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.2001, Side 35
Metþátttaka á sumarmóti Norrænu
geðhjálparsamtakanna að Laugarvatni
Metþátttaka var á
sumarmóti
NFSMH (Nordisk För-
ening för Social och
Mental Hálsa) sem hald-
ið var að Laugarvatni í
blíðskaparveðri vikuna
25. júní til 1. júlí. Var
mótið sett á mánudeg-
inum síðdegis og var það
Sigursteinn Másson ný-
kosinn formaður Geð-
hjálpar sem setti það.
Alls voru það 106 þátt-
takendur frá öllum 7
aðildarlöndunum.
Þau félög sem standa
að NFSMH eru Geð-
hjálp- íslandi, Sinnis-
bati- Færeyjum, Mental
Helse- Noregi, RFSMH-
Svíþjóð, FSSC- Álands-
eyjum, MTK.L- Finn-
landi og Sind- Dan-
mörku.
Vorum við 12 íslend-
ingarnir frá Geðhjálp á
mótinu. Á dagskránni
voru fræðslu- og skoð-
unarferðir, blakkeppni,
kvöldvökur og ekki síst
félagsleg samvera. Þarna
gafst fólki tækifæri til að
bera saman bækur sínar,
kynnast og skiptast á
skoðunum.
Fræðsluerindi komu
frá Geðræktinni og voru
það Héðinn Unnsteins-
son og Elín Ebba Ás-
mundsdóttir sem héldu
þau og svo frá Rauða
krossi íslands en Guð-
björg Sveinsdóttir fræddi
mótsgesti um Vin -at-
hvarf RKÍ fyrir geðfatl-
aða.
Farið var í ferðir um
Suðurland og helstu náttúru-
perlurnar þar skoðaðar. Einnig var
Sögusetrið að Hvolsvelli skoðað
undir leiðsögn séra Gunnars
Björnssonar og fór hann síðan með
hópinn að Hlíðarenda.
henni liðinni fræddi hann
gesti um sögu staðarins.
Blakkeppni var haldin
og urðu það Danir sem
unnu gullbikarinn í þetta
sinn. Við íslendingar
unnum okkar fyrsta leik
en töpuðum svo fyrir
Finnum og vorum því úr
leik. Þó skal taka fram að
tveir íslendinganna léku
í danska liðinu til sigurs,
en lána mátti milli landa.
Kvöldvökur voru
haldnar flest kvöldin og
sáu fulltrúar hvers lands
um eina kvöldvöku. Var
mikið um söng en einnig
upplestur eigin verka og
ljóða.
Aðstaðan á Hótel
Eddu, Menntaskólanum
að Laugarvatni, var öll
hin besta, hótelstjórinn
og starfsfólk einstaklega
ljúft og vildi allt fyrir
okkur gera. Maturinn
mjög góður enda ineist-
ari þar að verki. Haldinn
var hátíðarkvöldverður
með ræðuhöldum og síð-
an var ball til klukkan
01:00. Þar þökkuðu er-
lendu þátttakendurnir
fyrir sig. Voru þeir upp til
hópa mjög ánægðir með
mótið og fegurð hinnar
íslensku náttúru.
Mótsstjóri var Björg
Haraldsdóttir og hafði
hún Ingibjörgu Gunn-
laugsdóttur úr Geðhjálp
sér til aðstoðar. Þökkum
við þeim kærlega.
Næsta mót verður
haldið í ágúst 2002 á
Jótlandi, Danmörku og
er það Sind sem heldur
það. Erum við staðráðin í að mæta
þar og kannski, hver veit koma
heim með gullbikarinn !
Fyrir hönd islenska hópsins,
Kristján Jón
og Rebekka Bjarnadóttir.
Hópmynd NFSMH: Þátttakendur á sumarmóti
NFSMH 2001 á Laugarvatni.
Blak: íslenska blakliðið tilbúið í slaginn.
Matur er mannsins megin: Bjarni R., Sigurður V.,
Sigurjón, Gísli og Ingibjörg.
Ferð í Bláa lónið var einnig á
dagskránni og áttu hinir norrænu
gestir varla til orð yfir þeim stað.
Einnig var Árbæjarsafn skoðað svo
og farið að Skálholti þar sem
sóknarpresturinn séra Egill Hall-
grímsson hélt stutta helgistund. Að
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
35