Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2020, Page 8

Víkurfréttir - 16.04.2020, Page 8
Á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar 8. apríl voru samþykktar breytingar á fjárfestingaráætlun bæjarfélagsins fyrir árið 2020. Breytingarnar felast í því að mannaflsfrek verkefni eru sett í for- gang og dregið úr öðrum sem ekki hafa jafn mikil jákvæð áhrif á atvinnumarkað. Jafnframt hefur bæjarstjóra verið falið að gera viðauka við fjárhagsáætlun ársins til þess að auka framkvæmdir um 460 miljónir króna, þannig að heildar áætlunin verði 1.160 milljónir króna. Þar fyrir utan stendur Reykjanesbær í framkvæmdum við Stapaskóla upp á tvo milljarða króna, hönnun nýs hjúkrunarheimilis fyrir 70 milljónir. Samanlagt mun Reykjanesbær því framkvæma fyrir rúma 3,2 milljarða á árinu. Þessar breytingar eru liður í við- brögðum bæjarfélagsins við þeim efnahagslegu áföllum sem nú ganga yfir. Viðbrögðin miðast við að fjölga störfum eins og hægt er, með það að markmiði að draga úr atvinnuleysi og ekki síður að vernda önnur störf í atvinnulífi svæðisins. Ljóst er að meira þarf til og munu frekari viðbrögð koma fram á næstu vikum. Búist er við að atvinnuleysi í Reykjanesbæ muni verða yfir 24% í apríl. Ljóst er aðkoma ríkisins er nauðsynleg til þess að hægt verði að vernda velferð bæjarbúa á meðan þessi efnahagslegu áföll ganga yfir. Í samhljóma bókun bæjarstjórnar frá fjarfundi hennar segir: „Bæjar- stjórn Reykjanesbæjar fagnar þeim almennu aðgerðum sem nú þegar hefur verið ráðist í en krefst þess að sérstaklega sé tekið tillit til þeirra svæða á Íslandi sem verst verða úti. Bæjarstjórn mun gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að standa vörð um velferð íbúa í gegnum þá erfiðleika sem við stönd- um frammi fyrir sem samfélag.“ Þó staðan sé svört og ljóst að erf- iðir tímar eru framundan má það ekki gleymast að ástæðan fyrir því að svæðið verður þetta illa úti núna er sú að flugvöllurinn tengir okkur með beinum hætti við alþjóðlegt efnahagslíf. Það þýðir jafnframt að tækifærin til framtíðar eru mjög mikil og það er ekkert sem bendir til þess að þessi samdráttur verði varanlegur. COVID mun ekki breyta legu landsins, mitt á milli tveggja heims- álfa. Keflavíkurflugvöllur verður áfram tengipunktur í flugi á leið yfir Atlantshafið, með mikla möguleika til frekari þróunar, þar á meðal með beinu flugi til Asíu. Nærsvæði flugvallarins mun því eftir sem áður eiga sömu tækifæri til framtíðar. Vinna við aðgerðir Reykjanesbæjar vegna COVID-19 í fullum gangi Í mars; ■ Leikskólagjöld lækka í hlutfalli við notkun; 0% - 50% - 100% ■ Bæjarsjóður bætir fjórum þjónustureknum leikskólunum upp mismuninn á fullu framlagi foreldra og því sem greitt er skv. lið 1. ■ Bæjarsjóður greiðir fullt framlag, 50 þúsund krónur á hvert barn, með umsömdum fjölda barna til dagforeldra, óháð mætingu. ■ Gjald í frístund lækkar í hlufalli við notkun. ■ Starfsmenn Reykjanesbæjar halda óbreyttum launum í sóttkví. ■ Nemendum í grunnskólum tryggður ókeypis skólamatur. ■ Ógreidd fasteignagjöld einstaklinga í febrúar og mars af íbúðarhúsnæði verða ekki send í milliinnheimtu að svo stöddu en þess vænst að þeir greiði áfram sem geta. ■ Ógreidd fasteignagjöld af atvinnuhúsnæði í C-flokki í febrúar og mars verða ekki send í milliinnheimtu og lögaðilar geta í þessum fyrstu aðgerðum sótt um frest á greiðslu fasteigna- gjalda í apríl og maí á netfangið frestunfasteignagjalda@ reykjanesbaer.is. Eins er þess vænst að þau fyrirtæki sem geta greitt geri það. Að annars óbreyttum lögum er sveitarfélögum óheimilt að fella niður fasteignagjöld. ■ Framkvæmdaáætlun ársins gerir ráð fyrir að ráðist verði í verklegar framkvæmdir fyrir 750 milljónir á árinu til viðbótar við byggingu Stapaskóla. Í skoðun er að fara í frekari fram- kvæmdir. ■ Undirbúningur að fjölgun starfa til skemmri og lengri tíma er hafinn. ■ Sérstaklega fylgst með þróun atvinnuleysis og staðan endur- metin í maí nk. Í apríl: ■ Greiðsluþátttaka eldri borgara og öryrkja í heimsendingu matar felld niður á meðan á samkomubanni stendur og mötu- neyti á Nesvöllum er lokað. ■ Bæjarráð samþykkir að breyta fjárfestingaráætlun Reykjanes- bæjar 2020 með það að markmiði að fjölga störfum. ■ Bæjarráð samþykkir að ráðist verði í auknar framkvæmdir og önnur úrræði að upphæð 462 milljónir til viðbótar við þær 700 milljónir sem þegar höfðu verið áætlaðar í framkvæmdir á árinu 2020. Rétturinn Ljúffengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-14 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is vf is Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg. 8 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.