Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2020, Side 33

Víkurfréttir - 16.04.2020, Side 33
Hlaðvörp sem Eyþór mælir með How I built this Sagan á bak við sum af farsælustu fyrirtækjum heims. Einlæg viðtöl við fólkið sem hefur upplifað bakslög en svo náð ótrúlegum árangri. Hlað- varp sem veitir innblástur. Disgraceland Dökka hliðin á helsta tónlistarfólki veraldar. Vandað hlaðvarp fyrir þá sem hafa áhuga á tónlist og glæpum í sama kokteilnum. Hæ Hæ Helgi og Hjálmar eru svo ólíkar týpur og mynda frábært tvíeyki. Ég kveiki á þeim félögum þegar ég er að vaska upp og taka til. Tilvalið léttmeti með skemmtilega vand- ræðalegum viðtölum og góðlegri stríðni. S-Town Eitt allra besta hlaðvarp sem ég hef heyrt. Ótrúleg en þó sönn saga sér- vitrings í Suðurríkjum Bandaríkja með magnaðri fléttu. This American Life Eyrnakonfekt af bestu gerð og þáttur sem ég hlusta á ár eftir ár. Bandaríski hlaðvarps-Landinn, nema bara svo miklu betri. Ég luma líka á rosalegri Ira Glass eftirhermu. Hlaðvörp sem Dagný mælir með Guð og menn Þarna ræðir rakarinn og körfu- boltadómarinn Röggi hvernig hann mætir Guði – og Guð honum á alveg mögnuðu ferðalagi. Ekki bara fyrir trúaða heldur meira fyrir for- vitna. Skúffuskáld Anna Margrét hjá LubbaPeace- hljóðverinu spjallar við skúffuskáld og ræðir ritstörf og drauma. Þokan Tvær ungar mæður ræða um reynslu og lífsreynslu þegar barn kemur í heiminn. Virkilega einlægt og afar hreinskilið – ekkert er skilið undan. Flottar stelpur. Dying for sex Dauðvona kona skilur við mann sinn til fjölda ára og ákveður að mæta kynlífi með opnum huga og ræðir ævintýrin sem úr því verða með vin- konu sinni í þessu hlaðvarpi og þar kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Sigga Dögg Siggu Dögg kemur allt við sem snýr að kynlífi og eins og þeir vita sem þekkja hana þá er þetta fróðlegt, hreinskilið og umfram allt skemmti- legt, svona eins og hún. Hlaðvarpið Góðar sögur komið í loftið sem fengi yfirleitt ekki að heyrast nema á miðli sem þessum.“ „Mér finnst svæðið oft ekki fá sitt pláss í landsmiðlunum, eins sem áhugaverða fólkið okkar fær ekki rödd eða vettvang til að skína. Ég þykist vita að á stærri miðlunum er stöku sinnum farin fréttaferð á Reykjanesið, þá á helst að ná sem flestum fréttum í einu á hundavaði. Oft líður svo ansi langt þar til önnur slík ferð er farin. Við erum einhvern veginn alltaf að súpa seyðið af því að vera ekki hluti af höfuðborginni og á sama tíma ekki nógu mikil lands- byggð heldur,“ bætir Eyþór við. Hámhlustun til þess að dreifa huganum Góðar sögur er aðgengilegt á helstu streymisveitum eins og Spotify og Apple, eins á vefnum reykjanes.is og er þegar komið á lista yfir vinsælustu hlaðvörp landsins. „Það er því ljóst að íbúar á Reykja- nesi hafa verið að hlusta. Vonandi halda þeir því áfram og deila sögum okkar til allra landsmanna,“ segir Dagný. „Hlaðvarp er ótrúlega vin- sæll miðill og við vildum nýta tæki- færið nú á þessum tímum þegar við erum í samkomubanni að dreifa huganum og bjóða upp á áhugavert efni. Við höfum stundum fengið þær niðurstöður í rannsóknum á ímynd svæðisins að fólkið hér sé leiðinlegt, sem við erum ekki alveg tilbúin að skrifa undir, en Góðar sögur eru ein leið til að leiðrétta þann mis- skilning.“ Góðar sögur er styrkt af Sóknar- áætlun Suðurnesja og unnið í sam- starfi Heklunnar, atvinnuþróunar- félags Suðurnesja og Markaðsstofu Reykjaness. Að lokum vilja þau Eyþór og Dagný hvetja Suðurnesja- menn til að senda inn tillögur að áhugaverðum viðmælendum, sem hafa sögu að segja. „Viðtölin hafa komið skemmtilega á óvart þar sem viðmælendur hafa treyst okkur fyrir sinni sögu hvort sem hún er af áföllum og sorg eða baráttu og sigri. Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 33

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.