Víkurfréttir - 16.04.2020, Page 50
Óskar Brown (Örlygsson) býr í Ewell, bæ í Surrey, suður af London.
Hann er giftur Robin Brown og eiga þeir tvær kisur, systurnar Molly og
Milly, sem eru um fimm ára gamlar. Óskar hefur hef búið í Englandi
síðan 1999 en bjó á Spáni í fjögur ár þar á undan. Hann er lærður bóka-
safns- og upplýsingafræðingur.
„Ég hef undanfarin ár tekið að mér
styttri samninga og afleysingavinnu
hjá skólum og stofnunum, var síðast
hjá Royal College of Obstetricians
and Gyneacologists. Ég ákvað á síð-
asta ári að taka mér hlé frá vinnu í
eitt og hálft ár og hef verið að sýsla
við hitt og þetta síðan þá,“ segir
Óskar í samtali við Víkurfréttir sem
heyrðu í honum um páskana.
Í dag er hann með vikulegan
útvarpsþátt á Surrey Hills Radio
sem heitir The Cat’s Pyjamas, er í
karlakór og er í fjarnámi við Háskóla
Íslands í ensku. Víkurfréttir lögðu
spurningar fyrir Óskar um heims-
faraldurinn og hvernig hann snertir
líf hans og störf.
– Hvernig ert þú að upplifa
ástandið í kringum COVID-19?
Hefurðu áhyggjur?
Það er ekki hægt annað en að hafa
áhyggjur einsog ástandið er hér í
England og reyndar um allan heim.
Fjölmiðlar tala ekki um annað en
COVID-19-sýkingar og dauðsföll og
það er ómögulegt að láta það ekki
snerta sig.
– Hvaða áhrif hefur faraldurinn
á þitt daglega líf? Hvernig eru
dagarnir hjá þér núna? Hefur þú
gert miklar breytingar í daglegu
lífi?
Faraldurinn hefur haft mikil áhrif
á líf mitt og annara hér í Bretlandi.
Það er strangt útgöngubann og allir
eru hvattir til þess að vera heima hjá
sér og fara ekki út nema þeir nauð-
synlega þurfi. Dagarnir hjá mér eru
því allir heima við, fyrir utan klukku-
tíma á dag þegar ég fer í göngutúr
um nágrennið og vikulega ferð í búð
til að kaupa í matinn. Til þess að lífga
aðeins upp á vikuna þá höfum tekið
uppá því að panta pizzu á föstu-
dögum þar sem við getum ekki
lengur farið út að borða.
– Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar varðandi vinnu eða
daglegt líf?
Það er óhætt að segja að það hafa
orðið miklar breytingar á mínu lífi,
eins og sjálfsagt lífi fólks um allan
heim síðan þessi faraldur byrjaði.
Hljóðverið hjá Surrey Hills Radio
er ekki lengur í notkun og ég get
því ekki gert þáttinn minn í beinni
útsendingu. Þátturinn er núna tekinn
upp á heimilistölvunni, klipptur og
sendur til útvarpsstjórans sem hefur
aðgang að tölvukerfi stöðvarinnar.
Kórinn minn er orðinn „fjarkór“
með vikulegum hittingum á netinu
og við erum núna að vinna í því að
taka upp lag sem vonandi verður til-
búið fljótlega og verður sett á netið.
– Hvenær fórstu að taka COVID-19
alvarlega? Hvað varð til þess?
Við fórum í vikuferð til Portúgal um
miðjan mars og það var greinilegt
að Portúgalarnir tóku COVID-19
mun alvarlegar en Bretar. Breska
ríkisstjórnin hafði reyndar beðið fólk
um að fara varlega en það voru ekki
neinar sérstakar ráðstafanir í gangi.
Á meðan dvöl okkar stóð sáum við
hverning verslanir og veitingastaðir
takmörkuðu aðgang viðskiptavina,
eða lokuðu, og Portúgalska ríkis-
tjórnin lýsti síðan yfir neyðarástandi
daginn áður en við flugum heim.
Það sama gerðist síðan í Bretlandi
nokkrum dögum eftir að við komum
til baka.
–Hvernig ert þú að fara varlega
í þessu ástandi?
Öll samskipti við vini og vandamenn
eru núna í gegnum síma eða netið
og ég fer varla út fyrir hússins dyr.
Þegar ég fer út, hvort sem það er í
göngutúr eða að versla í matinn, þá
held ég mig í tveggja metra fjarlægð
frá öllum, passa ég mig á því að vera
alltaf með handspritt og þvæ mér vel
um hendurnar þegar ég kem heim.
– Hvernig finnst þér yfirvöld á
þínum stað vera að standa sig?
Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá
finnst mér þau ekki hafa staðið sig
neitt sérstaklega vel. Boris Johnson
virtist ekki taka faraldurinn alvar-
lega til að byrja með og gerði lítið úr
þeirri hættu sem stafaði af honum.
Það var ekki fyrr en ráðherrar í rík-
isstjórninni fóru að veikjast að það
var byrjað gera ráðstafanir til þess að
reyna að stoppa hann.
– Hefur þú fylgst með aðgerðum
heima á Íslandi og borið þær
saman við það sem er verið að
gera á þínu svæði?
Ég hef gert það og ég verð að segja
að mér finnst Ísland hafa staðið sig
mun betur í þessu öllu saman. Það er
auðvitað mikill munur á stærð land-
anna og íbúafjölda en Ísland virðist
hafa verið mun betur undirbúið til
að takast á við faraldurinn. Hér er
til dæmis ómögulegt að láta mæla
sig til að vita hvort maður er sýktur
eða ekki nema að maður endi inn á
spítala – og öndunarvélar, hlífðar-
– Óskar Brown býr suður af London þar sem er strangt útgöngubann vegna COVID-19.
„Viss ótti vegna þess fjölda
fólks sem hefur dáið hér“
Faraldurinn hefur
haft mikil áhrif á
líf mitt og annara
hér í Bretlandi.
Það er strangt
útgöngubann og
allir eru hvattir til
þess að vera heima
hjá sér og fara
ekki út nema þeir
nauðsynlega þurfi.
Óskar Brown og Robin Brown.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
50 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.