Víkurfréttir - 16.04.2020, Page 51
fatnaður og annar aðbúnaður til að
berjast gegn þessu er af skornum
skammti.
– Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Það er mjög mikilvægt að standa
saman gegn þessum hræðilega
faraldri og að fylgja þeim leiðbein-
ingum sem stjórnvöld og þeirra sér-
fræðingar gefa til þess að minnka
frekari útbreiðslu á COVID-19. Það
er á tímum sem þessum sem maður
gerir sér grein fyrir því hversu mikil-
vægir vinir og fjölskylda eru og allir
þeir litlu hlutir sem við hugsum
aldrei um, eins og að faðma þá sem
manni þykir vænt um.
– Hefur eitthvað komið til tals að
yfirgefa svæðið og koma heim til
Íslands?
Nei, það hefur ekki gert það.
– Ertu í miklum samskiptum við
þitt fólk og vini heima á Íslandi
núna? Meira en vanalega?
Já, ég er það og þá sérstaklega for-
eldra mína. Það er afskaplega gott að
geta haft samband í gegnum netið til
þess að heyra í þeim og fá að vita að
þau eru hress.
– Hvernig hagar þú innkaupum í
dag? Notar þú netið meira?
Eftir að útgöngubannið var sett á hér
í Bretlandi þá hvöttu stjórnvöld alla
til þess að versla í gegnum netið og
fá matvörur sendar heim en ég hef
ekki notað þessa þjónustu. Þar sem
ég er ekki sýktur og get farið út og
verslað sjálfur er óþarfi fyrir mig að
fá sent heim. Það eru svo margir sem
eru veikir heima og komast ekki út
og þeir eiga að hafa forgang í svona
þjónustu.
– Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
Það er ómögulegt að segja en ég held
að þetta muni taka mánuði frekar en
vikur til þess að ganga yfir.
– Hvernig eru aðrir fjölskyldumeð-
limir að upplifa ástandið? Er ótti?
Það er viss ótti vegna þess fjölda
fólks sem hefur dáið hér í landi. Við
þekkjum báðir marga sem hafa veikst
en þeir eru allir á batavegi, sem betur
fer. Við reynum bara að gera okkar
besta til að sýkjast ekki, horfa ekki of
mikið á sjónvarp og passa upp á það
að hafa nóg fyrir stafni. Það hjálpar. Kisurnar Molly og Milly.
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 51