Víkurfréttir - 16.04.2020, Síða 59
auðvitað fylgst með fréttum frá
Íslandi en yfirvöld í Danmörku
voru töluvert seinni til að bregðast
við og þegar það gerðist þá var það
af fullum þunga. Sem dæmi þá voru
allir sem komu frá Ischgl-skíðasvæð-
inu settir í sóttkví á Íslandi en sama
dag fór vinnufélagi minn þangað á
skíði og mætti svo til vinnu.
– Hvernig ert þú að fara varlega
í þessu ástandi?
Við höldum okkur heima við, förum
ekki í heimsóknir eða hittum vini.
Þegar við förum út að versla þá
reynum við að halda tveim metrum í
næsta mann og notum spritt. Heima-
við þá er maður farinn að þvo sér í
tíma og ótíma.
– Hvernig finnst þér yfir-
völd á þínum stað vera að
standa sig?
Ekkert sérstaklega, hér eru
það pólitíkusar sem ráða
ferðinni og að bera það
saman við Ísland þá eru Víðir,
Þórólfur og Alma miklu betri.
Sem dæmi á blaðamannafundi
þegar landinu var lokað þá
sagði forsætisráðherra að þetta
væri pólitísk ákvörðun og sóttvarna-
læknir hér sagði að það væru ekki
læknisfræðilegar ástæður til að loka
landamærum. Þrátt fyrir að það hafi
verið samstaða á pólitíska sviðinu á
þeim punkti þá eru núna mismun-
andi skoðanir komnar fram, sérstak-
lega hvernig eigi að aflétta þeim.
– Hefur þú fylgst með aðgerðum
heima á Íslandi og borið þær
saman við það sem er verið að
gera á þínu svæði?
Já og það verður að spyrja að leiks-
lokum en það er ótti að kúrfan í
Danmörku hafi ekki náð að rísa nóg
og að við verðum í lengri tíma að
fara í gegn en önnur lönd. Nú á að
opna aftur leikskóla og grunnskóla
fyrir yngstu bekkina (0.–5. bekk) en
aðrar lokanir eru í gildi til 10. maí.
– Hefur eitthvað komið til tals að
yfirgefa svæðið og koma heim til
Íslands?
Nei, veit ekki hvert við ættum
svo sem að fara. Við búum hér og
verðum hér þangað til við ákveðum
annað og þá myndum við flytja
heimilið.
– Ertu í miklum samskiptum við
þitt fólk og vini heima á Íslandi
núna? Meira en vanalega?
Já, að einhverju leyti. Þar sem við
erum meira heima er meiri tími til
að vera í samskiptum við fjölskyld-
una á Íslandi. Þetta er samt sá tími
ársins að ég sendi oftar myndir úr
garðinum, af hitamælinum og grill-
inu, fæ þannig viðbrögð að heiman
þar sem oft er snjór ennþá en 10–15
gráður hér yfir daginn þegar sólin
skín.
–Hvernig hagar þú innkaupum
í dag?
Nei, við höfum verslað í þeim mat-
vörubúðum sem við gerðum áður,
sem eru hér í bænum. Við veljum
tíma þegar er minna að gera í búð-
unum ef við getum.
– Hvað gerir þú ráð fyrir að
ástandið muni vara lengi?
Við verðum líklega út þetta ár með
einhverjar ráðstafanir, við gerum ráð
fyrir að fara á karatemót í Póllandi
og Slóvakíu í haust og keyrum líklega
á báða staði.
– Hvernig eru aðrir fjölskyldu-
meðlimir að upplifa ástandið?
Er ótti?
Við upplifum ekki ótta í okkar fjöl-
skyldu, fólk er varkárt og passar sig
og sem betur fer höfum við sloppið
ennþá en Ásta er ein af þeim sem
þarf að mæta í vinnu og því erum
við með spritt í bílnum sem dæmi.
– Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Að við tökum öll ábyrgð og hugsum
um hvort annað, verjum tíma með
börnunum okkar og hlýðum Víði.
Lárus Frans Guðmundsson býr í Solrød Strand í Danmörku ásamt fjölskyldu sinni
Lárus er „hitamælahrekkjalómur“
og er duglegur að senda vinum
á Íslandi myndir af hitamælinum
í Danmörku á þessum árstíma.
Hér sýnir mælirinn 16 gráður!
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 59