Víkurfréttir - 16.04.2020, Síða 61
Sveinn Magni Jensson er eigandi
að Millvúd pípulögnum og Svítan
guesthouse. Amilía Máney á hann
líka fyrir afa og það er eiginlega
fullt starf segir Sveinn.
— Hvernig varðir þú páskunum?
Bæta við ístruna, flatmagandi í sóf-
anum á heimatónleikum og glápandi
á Peaky Blinders í TV-inu.
— Hvernig páskaegg fékkstu og
hver var málshátturinn?
Þetta er í fyrsta skipti í mörg ár sem
mér er fært páskegg. Takk, Óskar
Einarsson. Málshátturinn var: „Fleira
þarf í dansinn er fagra skó.“
— Hvaða aðferðir ertu að nýta til
að eiga í samskiptum við fólk?
Hef verið að snappa meira en vana-
lega en samt ekki verið að senda
heilu tónleikana úr TV-inu úr sím-
anum til snappvina, meira svona rugl
frá mér.
— Ef þú fengir bara að hringja eitt
símtal í dag, hver fengi það símtal
og hvers vegna?
Ég myndi vilja hringja sama símtalið
og Silvía nótt átti í laginu „til ham-
ingju Ísland” og fá svör við því hvort
Daði Freyr ætti einhvern möguleika
í Júróinu.
— Hvernig ertu að upplifa nýjustu
tíðindi um að það muni jafnvel
taka margar vikur inn í sumarið að
aflétta hömlum vegna COVID-19?
Nýjustu tíðindin koma mér ekkert
á óvart. Ég er búinn að vera nokkuð
viss um að margar hömlur verði
fram á haust, ætli að nóvember,
desember verði ekki svona tíminn
sem við verðum farin að að vera í
1,5 m frá næsta ókunnuga manni.
— Hvaða lærdóm getum við dregið
af heimsfaraldrinum?
Njóta og að „styðja VÍÐIR“.
— Ertu liðtækur í eldhúsinu?
Ég get reddað mér en er mun betri
við að halda kokkinum rökum við
eldamennskuna.
— Hvað finnst þér virkilega gott
að borða?
Ofnbakaðir, léttsaltaðir þorsk-
hnakkar, með aspars og einhverri
bráðsmitandi sósu (made by Dagga),
með ísköldum VES.
— Hvað var í páskamatinn?
Það var lambalæri og vildi svo
undarlega til að mér var treyst til að
sjá um sósuna og brúna kartöflurnar
og er svolítið stoltur af því þar sem
besti matreiðslumeistari landsins, Óli
Már, var í mat hjá okkur.
— Hvað finnst þér skemmtilegast
að elda?
Ég er náttúrlega snillingur í að
steikja pólskar pulzur og fela þær í
Bearnaise-sósu.
— Hvað var bakað síðast á þínu
heimili?
Ketó marmarakaka og hún hvarf
bara.
— Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað
myndir þú kaupa í matinn?
Hef nú ekkert verðskin á mat. Ætli
ég myndi ekki splæsa í eins og 2–3
kg af humri og gott hvítvín fyrir
afganginn.
— Hvað hefur gott gerst í vikunni?
Ég halaði inn nokkrum krónum út
úr veðmáli við einn sem fullyrti um
áramótin að Liverpool væru orðnir
enskir meistarar í lok mars … (easy
money).
— Hvað hefur vont gerst í vikunni?
Fyrir utan þetta ástand finn ég bara
ekkert vont sem gerst hefur, nema
kanski að fá ekki að fara í Öndverða-
nesið í bústaðinn.
Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?
Hver er spurningin og svarið við henni?
Hvað heldur þú að margir sem þekkja þig eigi eftir
að lesa þetta rugl í þér?
Veit það ekki en skal svara því þegar þeir eru búnir að senda
mér skilaboð/snapp af sér í rugluðu stuði, símann í annarri og
vatnsglas í hinni.
N
etspj@
ll
Njóta og
styðja Víði!
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 61