Víkurfréttir - 16.04.2020, Qupperneq 67
Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?
Hver er spurningin og svarið við henni?
– Hversu mörg barnabörn áttu?
Fimm að verða sex, hamingjan verður ekki meiri en það.
– Hvernig varðir þú páskunum?
Ferðuðumst innanhúss og skruppum
aðeins að skoða Gunnuhver og í
kringum Reykjanesvita. Fór líka í
góða göngutúra, eins og ótrúlega
margir.
–Hvernig páskaegg fékkstu og
hver var málshátturinn?
Ég fékk Nóa Síríus númer 4 í afmæl-
isgjöf og málshátturinn var: „Ekki
batnar allt, þó bíði.“
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til
að eiga í samskiptum við fólk?
Símtöl og snjáldrið kemur til góðra
nota.
– Ef þú fengir bara að hringja eitt
símtal í dag, hver fengi það símtal
og hvers vegna?
Hann Óli minn.
– Hvernig ertu að upplifa nýjustu
tíðindi um að það muni jafnvel
margar vikur inn í sumarið að
aflétta hömlum vegna COVID-19?
Fer að verða svolítið erfitt en þetta
er bara það sem við þurfum að gera,
Hlýða Víði. Þetta kemur okkur hjá
Duus Handverk mjög illa, við erum
með lokað en bjóðum upp á að fólk
hringi og ég opna.
– Hvaða lærdóm getum við dregið
af heimsfaraldrinum?
Fara varlega, almennt hreinlæti,
handþvottur og knúsa minna … Ég
á erfitt með þetta síðasta.
– Ertu liðtæk í eldhúsinu?
Já, ég tel mig ágætan kokk.
– Hvað finnst þér virkilega gott
að borða?
Humar er í allra mesta uppáhaldi
... En gott lamba- eða folaldakjöt
klikkar seint.
– Hvað var í páskamatinn?
Hamborgarhryggur og Bayonne-
skinka
– Hvað finnst þér skemmtilegast
að elda?
Lamb og alls kyns fisk.
– Hvað var bakað síðast á þínu
heimili?
Súkkulaðikaka í síðustu viku og
vöfflur um helgina.
– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað
myndir þú kaupa í matinn?
Grænmeti og rjóma ... Á slurk af
kjöti í frysti, hehe.
– Hvað hefur gott gerst í vikunni?
Ég og stórfjölskyldan er heilsuhraust
og höfum öll komist hjá smiti.
– Hvað hefur slæmt gerst í vik-
unni?
Ekkert í þessari viku en urðum fyrir
bruna í vikunni á undan.
Gott lamba-
eða folaldakjöt
klikkar seint
Netspj@ll
Gerður Sigurðardóttir, bókari hjá Happy
Campers og hönnuður hjá Duus Handverk,
ferðaðist innanhúss um páskana en fór líka
út að Reykjanesvita og Gunnuhver.
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 67