Spássían - 2010, Qupperneq 20

Spássían - 2010, Qupperneq 20
 20 Glæpir og fantasía Í bókaseríunni um bókmenntarannsóknarkonuna Thursday Next flakkar breski rithöfundurinn Jasper Fforde milli raunheims og bókaheims þar sem söguhetja hans glímir við alls kyns glæpamál sem tengjast bókmenntum, oft heimsbókmenntum, á einn eða annan hátt. Fimm bækur um Thursday Next hafa komið út og er sú sjötta á leiðinni: The Eyre Affair (2001) Lost in a good book (2002) The Well of Lost Plots (2003) Something Rotten (2004) First Among Sequels (2007) One of our Thursdays is missing (2011) Í nýjustu bókaseríu sinni segir Fforde skilið við bókmenntaarfinn og kannar heim litanna á sinn súrrealíska hátt. Fyrsta bókin kom út í fyrra en von er á fleirum. Jasper Fforde gaf út sína fyrstu skáldsögu fyrir tíu árum, The Eyre Affair, og er nú einn vinsælasti fantasíuhöfundur heims. Á þeim tíma hefur hann gefið út átta skáldsögur, en fimm þeirra segja frá bókmenntarannsóknarkonunni Thursday Next og ævintýrum hennar. Sögusviðið er England níunda áratugarins og Thursday er fyrrum stríðshetja með erfiða fortíð og hættulega stórglæpamenn á eftir sér. Heimurinn er ansi líkur okkar en allt er þó aðeins á skjön. Erfðafræðitilraunir og tímaferðalög teljast daglegt brauð og allir eiga dódófugla sem gæludýr. Bretland heyir enn blóðugt stríð við Rússland um yfirráð yfir Krímskaga og hvert einasta mannsbarn þekkir klassísku bókmenntirnar eins og við Harry Potter bækurnar. Vampírismi er vel þekktur og hvimleiður sjúkdómur og áhrif kirkjunnar í senn mikil og engin þar sem hún hefur splundrast í svo margar einingar að nauðsyn er á að sameina þær allar undir formerkjum CGSD (The Church of Global Standard Deity). Rithöfundarnir eru hins vegar að mestu leyti þeir sömu og í okkar heimi (á það sérstaklega við um þá klassísku) og víst er að þetta er heimur þar sem skáldverkið ræður lögum og ríkjum. Allir þekkja klassísku bókmenntasöguna eins og hverja aðra dægurmenningu. Í stað þess að fara á Rocky Horror sækir fólk sýningar á Ríkarði þriðja þar sem áhorfendur taka að sér hlutverk og snúa út úr textanum. Og í stað skóútsala koma bókaútsölur af stað kaupæði. Þessi mikli bókmenntaáhugi nær inn í öll skúmaskot samfélagsins, ekki síst þau myrkustu þar sem glæpatíðni í kringum útgáfustarfsemi grasserar. Það þykir því nauðsynlegt að halda uppi deild sérstakrar bókmenntalögreglu. Fyrir utan bókmenntafalsanir þarf Thursday Next að kljást við svartamarkaðsbrask með farsæl sögulok, óeirðir súrrealista og einstaka týnda sögupersónu. Og það er ekkert miðað við vandræðin sem skapast innan bókaheimsins sjálfs sem hún fær að kynnast af eigin raun. Bókmenntaverk eiga sér nefnilega sjálfstætt líf handan hugarheims höfundar og lesenda. Þetta líf er þó ekki sjálfsprottið og flókið kerfi er til staðar til að halda kjarna sögunnar gangandi. Aðeins örfáir einstaklingar búa yfir þeim hæfileika að komast inn í heim skáldsagnanna en sá hæfileiki er afar hentugur þegar sögupersónur taka upp á því að valda vandræðum í raunheiminum. Bókaheimurinn er nokkurs konar hliðstæður heimur og lýtur sínum eigin lögmálum. Okkar heimur kemur íbúum hans jafn spánskt fyrir sjónir og þeirra heimur gestum bókaheims. Þar eru til að mynda ekki til tungubrjótar, klósettferðir eru næstum óþekktar og safaríkar sagnir og óvænt endalok ganga kaupum og sölum á svarta markaðnum.

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.